Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla

Heiðrún Emilía Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í fjár­mála­þjón­ustu, kemur fram í við­tala­röð Mannlífs við stjórn­endur. Hún er lög­maður með fjöl­breytta reynslu og hefur verið fram­kvæmda­stjóri hjá KEA, Símanum og Eimskip á miklum umróta­tímum. Heiðrún leggur áherslu á að vera hrein­skiptin í sam­skiptum og að treysta sam­starfs­mönnum í þeim verk­efnum sem þeir bera ábyrgð á. Hún hefur gengið í gegnum ýmis áföll í einka­líf­inu og úti­lokar ekki að það að missa nær alla sjón á öðru auga teng­ist áföllum og álagi þeim tengdum.

Rík af reynslu og auðmjúk eftir röð áfalla
Heiðrún Emilía Jóns­dóttir Fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í fjár­mála­þjón­ustu er með fjöl­breyttan bak­grunn. Mynd: Golli

Heiðrún Jóns­dóttir. Heiðrún segir að sér þyki vænt um nafnið sitt af því að ömmur hennar hétu Heiðveig og Guðrún og voru nöfnin sam­einuð með þessum hætti. „Svo gerði ég þetta reyndar sjálf eftir að ég eign­að­ist son­inn Jón Hallmar. Pabbi heitir Jón Helgi og hinn afi hans heitir Hall­grímur og einn langafi hans Valdimar þannig að þetta er suða úr þeim nöfnum. Mamma heitir Halldóra María og hin amma hans Margrét þannig að þarna er fullt af „hall“ og „mar“. Dóttir mín fékk nafnið Heiðveig eins og amma mín heitin hét.“ Jón Hallmar er lög­fræð­ingur eins og móðir sín. Dóttirin, Heiðveig Björg, stundar nám í hag­fræði við Háskóla Íslands.

Stúlkan sem var skírð nafn­inu til að heiðra báðar ömmur sínar ólst upp á Húsavík fyrir utan að fjöl­skyldan flutti til Sví­þjóðar þegar hún var níu ára og þar bjuggu þau í tvö ár. Hún var oft í sveit á sumrin hjá ömmu sinni Heið­veigu og afa Gesti í Múla í Aðaldal. „Ég elskaði að fara í sveit­ina og drullum­alla og lesa en ég las mikið sem krakki. Ég var róleg og undi mér alveg ein.

Ég fór í sauð­burð á vorin en gerði þó almennt lítið gagn. Fimm ára fékk ég að hjálpa til við að reka kýrnar sem ekki var mjög flókið þar sem þær röltu bara út í haga og heim sjálfar. Þegar frænka mín reyndi að leið­beina mér sneri ég mér snúð­ugt að henni og sagði: „Ég vek baþa eins og méþ sýn­ist.“ En R gat ég ekki sagt fyrr en fimm ára.

Ég var líka mikið með ömmu Guggu og afa Hödda, fór á sjóstöng með honum í góð­veðri á Skjálf­anda. Enn í dag fylgir því mikil ró að vera á sjóstöng á Skjálf­anda í góðu veðri en nú eru það frændur mínir sem fara með mig.“

Sjálfstraust á heimavist

Heiðrún seg­ist hafa verið jarð­bund­inn krakki. Og jarð­bundni krakk­inn á Húsavík kláraði grunn­skóla­námið og þá voru kafla­skil. Heiðrún og Ellý vin­kona hennar fóru í Sam­vinnu­skól­ann á Bifröst sem þá var mennta­skóli.

„Auðvitað er þetta kannski óvana­legra í dag en óaf­vit­andi var klókt hjá okkur að byrja í heima­vist­ar­skóla. Á heima­vist kynn­ist maður alls konar týpum og þarf að treysta á sjálfan sig. Ég held að þetta hafi byggt upp sjálfs­traust og styrkt sjálfsí­mynd og ég kynnt­ist krökkum alls staðar frá. Þetta var ekki stór skóli en afar hollt vega­nesti. Þetta var auð­vitað fyrir tíma far­síma. Frammi á gangi var tíkalla­sími og gátu flestir heyrt sím­töl ef þeir kærðu sig um.“

Vin­kon­urnar voru tvo vetur í Borg­ar­firði en eftir það fluttu þær til Reykja­víkur og útskrif­uð­ust stúd­entar frá Versló 1989.

„Það besta sem kom fyrir mig og kannski líka for­eldra mína er að hafa farið að heiman“

Heiðrún segir að það hafi ekki verið erfitt að flytja að heiman sextán ára gömul en að sér hafi hins vegar þótt erfitt þegar sonur hennar, Jón Hallmar, hafi ákveðið að hefja nám við Mennta­skól­ann á Akureyri á sínum tíma en fjöl­skyldan bjó þá og býr enn í Garðabæ. „Ég var þá stjórn­ar­for­maður Norð­lenska og síðar einnig stjórn­ar­for­maður Íslenskra verð­bréfa á Akureyri þannig að ég var mikið fyrir norðan. Ég fór oft á fundi á föstu­degi og var fram á sunnu­dag. Ég segi að það besta sem kom fyrir mig og kannski líka for­eldra mína er að hafa farið að heiman. Maður kann að meta for­eldra sína og hlut­ina með öðrum hætti.“

Aftur að Húsa­vík­ur­mær­inni Heiðrúnu sem flutti suður til að fara í Versló en vann á sumrin fyrir norðan í Sam­vinnu­bank­anum og ýmist í rækju­vinnsl­unni eða á hót­el­inu um kvöld og helgar. Hvernig var að flytja í borg­ina?

„Okkur fannst þetta spenn­andi. Við þurftum að finna íbúð til að leigja og sam­býl­ingar mínir, Ellý og Gulla, voru hús­legri en ég. Við vorum með sam­eig­in­legt ávís­ana­hefti fyrir heim­il­is­út­gjöldum og skipt­umst á að sinna heim­il­is­verkum. Þegar fór að minnka á sam­eig­in­legum reikn­ingi í lok mán­aðar voru slátur og stafa­súpa í mat­inn.“

Heiðrún segir að þær hafi fengið hræði­lega ljót hús­gögn lánuð og potta, glös og fleira frá ætt­ingjum en að þeim hafi fund­ist þetta vera frá­bært.

„Svo hafði þetta ýmsa góða kosti.. Við skipt­umst á að vera í fötum af hver annarri, enda fjár­hag­ur­inn þröngur. Það var bara gaman.“

Wham eða Duran Duran?

„Engin spurn­ing, Duran Duran. Ellý vin­kona hefur rifjað það upp hvað ég var skotin í John Taylor. Ástin náði ekki lengra en svo að ég var búin að gleyma því. Síðar varð ég algjör U2-aðdá­andi og er reyndar enn.“

Þetta var á níunda ára­tugnum þegar herða­púð­arnir voru skylda. „Við vorum í peysum með tvö­földum herða­púðum. Okkur fannst við vera ótrú­lega miklar gellur. En þegar ég sé þessar myndir af okkur frá þessum tíma þá skil ég af hverju við gengum ekki út. Ég er mjög fegin að þetta var ekki tími sam­fé­lags­miðla. Það er ekki hægt að finna þessar myndir á net­inu.“

Þegar múrinn féll

Stúd­ents­húfan fór á koll­inn eftir tvö ár í Versló og Heiðrún hélt út í hinn stóra heim. Það var árið 1989.

„Það kom smá útþrá í mig eftir stúd­ent­inn og ég fór sem au pair til íslenskrar fjöl­skyldu í München þar sem ég lærði þýsku fyrir útlend­inga í háskól­anum.“

Í nóv­em­ber 1989 féll múr­inn.

Heiðrún og Bína, vin­kona hennar, sáu í dag­blöð­unum að það var eitt­hvað að ger­ast með múr­inn í Berlín og tóku næstu næt­ur­lest til að spara gist­ingu. „Skrýtið, núna sér maður í hill­ingum hvað það var gaman öðrum þræði að eiga ekki pen­ing,“ segir Heiðrún og hlær. „Það var níst­ings­kuldi, við vorum í þrennum peysum og vorum eins og panda­birnir.“ Þetta var helgin sem múr­inn féll. Þær voru í Vestur-Berlín fyrri dag­inn og þar var fullt af tra­böntum frá Austur-Berlín. „Fólk var að berja í múr­inn, bæði tákn­rænt en einnig til að taka steina úr honum. Varðmenn úr austr­inu fylgd­ust með en aðhöfð­ust ekk­ert en það var spenna í lofti.“

Síðari dag­inn fóru þær til Austur-Berlínar og þar voru þær nán­ast í tómri borg. Borg­ar­hlut­inn var skítugur og ef þær sáu bíl þá var það Trabant. Múrinn féll og ári síðar var búið að sam­eina Þýska­land og í kjöl­farið féllu Sov­ét­ríkin. „Núna er aftur óvissu­tími í Evrópu.Við erum búin að búa við frið og far­sæld í allan þennan tíma og orðin of væru­kær.“

Heiðrún var í Þýska­landi vet­ur­inn 1989-1990 og þá tók aftur nýr kafli við.

„Þegar ég var í Versló voru upp­á­halds­fögin stærð­fræði og hag­fræði; þetta voru mín hæstu fög.“ Heiðrún ætl­aði í hag­fræði en svo varð ekki. Hún skráði sig í lög­fræði. Hún vissi ekki alveg hvað hún ætl­aði að gera.

„Lögfræði er skemmti­leg en við­skipta­lífið togar alltaf svo­lítið í mig. Fyrsta árið bjó ég áfram með Ellý vin­konu en á öðru ári fluttum við Halla saman,“ segir hún og á við Höllu Bergþóru, lög­reglu­stjóra í Reykja­vík.

„Við vorum aðeins á djamm­inu. Það var sak­laust en samt fór tími í það. Við vorum sam­visku­samar, mættum í tíma og skipt­umst á að glósa. Í laga­deild­inni eign­uð­umst við góða vini og árgang­ur­inn heldur vel hóp­inn.“

Voðaskot

Vorið 1994 varð Heimir, frændi hennar, fyrir voða­skoti og lést. Hann var tutt­ugu og eins árs. Hann og Heiðrún voru systra­börn. „Fjórum mán­uðum síðar dó Halldór, stjúp­bróðir hans, í bílslysi. Þá var ég á fjórða ári í lög­fræði. Þetta var gíf­ur­legt áfall fyrir alla fjöl­skyld­una og breytti sýn minni á margt.“

Heiðrún útskrif­að­ist sem lög­fræð­ingur vorið 1995 og flutti þá til Akur­eyrar. Hún vann á Lög­manns­stofu Akur­eyrar hjá Ólafi Birni Árnasyni á árunum 1995-1998. „Hann var fróður og skemmti­legur og reynd­ist mér vel. Ég tók próf­mál og varð hér­aðs­dóms­lög­maður 1996. Við vorum í fjöl­breyttum verk­efnum í einka­málum, sifja­málum sem og saka­málum sem mér fannst líka mjög skemmti­legt.“

KEA, Landssími Íslands og LEX

Heiðrún fór í fæð­ing­ar­or­lof 1998 og hafði hugsað sér að halda áfram í lög­mennsku en hóf störf sem fram­kvæmda­stjóri starfs­manna­sviðs og lög­fræð­ingur KEA og starf­aði þar í þrjú ár.

KEA var stofnað 1886 og var stærsta kaup­fé­lagið og á þessum tíma voru starfs­menn um tvö þús­und. Félagið var í end­ur­skipu­lagn­ingu og verið að stofna hluta­fé­lög utan um starf­semi ein­stakra deilda.

Leiðin lá aftur til Reykja­víkur og á árunum 2001-2003 var Heiðrún upp­lýs­inga­full­trúi Lands­síma Íslands, sat í fram­kvæmda­stjórn og vann að einka­væð­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Miklar áherslu­breyt­ingar voru á félag­inu á þessum tíma og ítrekuð for­stjóra­skipti. „Ég hafði þrjá for­stjóra á rúmu ári og það gekk ýmis­legt á.“

Heiðrún var á árunum 2003-2005 fram­kvæmda­stjóri og síðar með­eig­andi LEX lög­manns­stofu.

„Mér var boðið að vera fram­kvæmda­stjóri hjá LEX lög­manns­stofu og það kitl­aði af því að ég var aðeins farin að hafa áhyggjur af því að ég væri að missa af lög­fræð­inni. Ég hafði vissu­lega verið að vinna lög­fræði­leg verk­efni en með öðru. Þarna var ég búin að kynn­ast seinni manni mínum, Jóhann­esi Sig­urðs­syni, og fædd­ist dóttir okkar í maí 2005.“

Heiðrún nýtti tím­ann í barns­burð­ar­leyf­inu meðal ann­ars til að taka lög­gild­ingu í verð­bréfa­miðlun.

Öldusjór

Eftir barns­burð­ar­leyfið tóku við sex ár hjá Eimskip á árunum 2006-2012. Heiðrún var fyrst fram­kvæmda­stjóri starfs­manna- og sam­skipta­sviða auk þess að vera með umsjón með lög­fræði­málum á Íslandi. „Það var upp­gangur þegar ég byrj­aði að vinna hjá Eimskip.“

Á þessum tíma voru starfs­menn um fjögur þús­und. Félagið var með rekstur víða í Evrópu, Kína og Banda­ríkj­unum og var Heiðrún með heild­ar­á­byrgð á fyrr­nefndum sviðum og vann þvert á félagið. Árið 2008 fór hún alfarið yfir á lög­fræði- og sam­skipta­svið félags­ins og sam­stæð­unnar auk þess að verða reglu­vörður félags­ins og rit­ari stjórnar.

Félagið lenti í erf­ið­leikum sum­arið 2008, fyrst og fremst vegna skuld­setn­ingar og fór fram á nauða­samn­inga árið 2009.

Þarna þurrk­að­ist út allt hlutafé í Eimskip eins og mörgum öðrum fyr­ir­tækjum hér á landi. „Við fórum að end­ur­skipu­leggja félagið og áhersla á að eiga fyrir launum um hver mán­aða­mót, tryggja að skipin yrðu ekki kyrr­sett og eiga fyrir hafn­ar­gjöldum. Það sem gerði þetta flókið var að það voru ekki bara íslenskir kröfu­hafar. Eimskip og flug­fé­lagið Atlanta höfðu verið sam­einuð þannig að við vorum að semja við kröfu­hafa skipa­fé­lags­ins sem og flug­fé­lags­ins, til dæmis flug­véla­leigu­sala. Nauða­samn­ing­arnir voru sam­þykktir af 100% kröfu­hafa.“

Töff tímabil

Heiðrún fór í stjórn Gildis líf­eyr­is­sjóðs vorið 2008 og var ekki búin að vera þar lengi þegar líf­eyr­is­sjóðir misstu stóran hlut af eigna­safni sínu hér á landi í hrun­inu.

„Ábyrgð stjórn­ar­manna er mikil og það var óraun­veru­legt að horfa á eftir stórum hluta eign­anna haustið 2008 en sem betur fer áttu sjóð­irnir veru­legar eignir erlendis. Krónan féll þannig að þær eignir hækk­uðu í verði í íslenskum krónum. Þetta var afar erfitt en lær­dóms­ríkt tíma­bil en sjóð­irnir hafa unnið ákaf­lega vel úr sínum málum, bæði er snýr að eigna­söfnun sem og upp­bygg­ingu á atvinnu­líf­inu eftir 2009.“

Árið 2008 fór Heiðrún í stjórn Norð­lenska og varð stjórn­ar­for­maður árið 2009. „Norð­lenska er stór vinnu­staður á Norð­ur­landi, ekki fjár­sterkur og ekki fjár­sterkir aðilar á bak við félagið. Eigendur voru bændur og félagið var að hluta með erlend lán. Það þurfti að end­ur­skipu­leggja félagið og semja um skuldir. Það end­aði allt vel en það var óvissa í langan tíma sem tók á. Það var afar ólíkt að leiða lítið félag í gegnum þessa tíma eða stórt félag eins og Eimskip sem og stóran sjóð eins og Gildi.“

Heiðrún hefur verið í stjórnum fjölda fyr­ir­tækja og hefur alltaf vera með leið­ar­ljós sem hún hafði þegar hún var í stjórn Gildis. „Þetta er ekki minn pen­ingur og þetta er ekki fé án hirðis. Það er strit­andi fólk á bak við eignir sjóð­anna sem treystir því að fá sinn verð­skuld­aða líf­eyri. Mér finnst afar mik­il­vægt að þeir sem höndli með þessa hags­muni hugsi með þessum hætti.“

Og enn kom að kafla­skilum og ákvað Heiðrún að verða sjálfs sín herra og á árunum 2012-2022 var hún sjálf­stætt starf­andi lög­maður og stjórn­ar­maður í fyr­ir­tækjum. Á þessum tíma var hún meðal ann­ars í stjórnum Íslands­banka, Símans, Icelandair, Olís, RB, Norð­lenska og Gildis að ógleymdu Royal Arctic Line á Græn­landi.

Grænland 2020-2023

„Ég sat í stjórn Royal Arctic Line á Græn­landi í þrjú við­burða­rík ár. Fulltrúi lands­stjórn­ar­innar hafði sam­band við mig í gegnum Linkedin. Ég féllst á að fara þar í stjórn ef enska væri töluð á fundum en gögnin máttu vera á dönsku,“ segir Heiðrún, sem varð heilluð af nágranna­land­inu.

„Ég féll fyrir Græn­landi, nátt­úr­unni, fólk­inu og menn­ing­unni. Grænland er sann­ar­lega ein­stakt.Vissu­lega eru þar ýmis félags­leg vanda­mál en landið er auð­ugt af nátt­úru­auð­lindum. Danir hafa í gegnum ald­irnar ekki farið neitt sér­stak­lega mjúkum höndum um Græn­lend­inga. Eitt dæmið er að þar er kennd danska og sumir inn­fæddir tala nú dönsku sín á milli. Ensku fá þeir ekki að læra fyrr en síðar en þetta eykur á ein­angrun þeirra. Ég hefði viljað skoða mig meira um en ég náði þó að ganga á Græn­lands­jökul. Ég á nokkra góða vini sem ég var með í stjórn og mér þykir mikið til þeirra koma.“

Missir og sorg

Það hafa ekki bara orðið kafla­skipti á starfs­ferl­inum heldur líka í einka­líf­inu , í vina­hópnum og fjöl­skyld­unni. Ýmis áföll hafa dunið yfir sem hafa haft mikil áhrif. Heiðrún hefur þurft að kveðja vini sem dóu í blóma lífs­ins frá börnum.

Fjöl­skyldan hafði rætt það hversu heppin þau væru, engin stór áföll í nær­fjöl­skyld­unni, en það átti eftir að breyt­ast. Heiðrún átti tvær systur og var hún miðju­systirin. Haustið 2020 urðu Díana, systir Heiðrúnar, og börn hennar fyrir alvar­legu áfalli sem verður ekki rakið hér.

Í lok árs 2020 greind­ist elsta systirin, Brynja, með lungna­krabba­mein þá 53 ára gömul og lést hún fjórum mán­uðum síðar. „Hún var versl­un­ar­stjóri Nettó í Grinda­vík, var með mik­inn verk í baki, hélt að hún væri með brjósklos og fór í skoðun. Rannsókn leiddi í ljós að hún væri með lungna­krabba­mein sem hafði dreift sér og voru komin sex æxli í mæn­una. Ég vissi að þetta yrði endir­inn, ann­ars hefði krafta­verk þurft til.“

Brynja veikt­ist á Covid-tím­anum. Heiðrún réð tíma sínum nokkuð sjálf, var vara­for­maður stjórnar Íslands­banka og meðal ann­ars í stjórn Royal Arctic Line á Græn­landi. „Ég gat farið með tölv­una til Brynju, tekið fundi þaðan og setið hjá henni. Brynja bjó í Grinda­vík og á tímum Covid var engin heima­hjúkrun í boði. Annað hvort hefði hún þurft að vera ein heima virku dag­ana eða mað­ur­inn hennar hefði þurft að vera hjá henni.“

Heiðrún taldi mik­il­vægt að hann væri ekki allan sól­ar­hring­inn hjá henni og fengi eitt­hvert and­rými. Helga Jóna, dóttir þeirra, bjó líka í Grinda­vík og var mömmu sinni mikil stoð og stytta. „Ég var ákveðin í að styðja hana síð­asta spöl­inn. Ég mætti flesta morgna og var hjá henni þar til um tvö til þrjú á dag­inn þegar dóttir þeirra kom heim. Á þessum tíma voru öfl­ugir jarð­skjálftar í Grinda­vík. Ég átt­aði mig ekki á því fyrr en þetta var yfir­staðið hvað þetta var erfitt. Ég sat hjá henni og hélt henni félags­skap, við ræddum um dag­inn og veg­inn eða bara prjón­uðum í þögn­inni. Hún var stað­ráðin í því að vinna þessa bar­áttu. Ég spurði hana hvar hún vildi vera jörðuð, en hún sagð­ist ekki vera að deyja. Síðar tal­aði hún um að það væri svo skrýtið að bráðum yrði hún ekki til. Ég hafði engin svör við því og við prjón­uðum í þögn­inni.

Þegar hún dó eftir ömur­lega erf­iða bar­áttu fann ég fyrir létt­leika, var fegin hennar vegna að þess­ari hræði­legu bar­áttu væri lokið. Hún dó heima hjá sér með fjöl­skyld­una hjá sér.“

Brynja lést í maí. Um hálfu ári síðar veikt­ist Díana, fékk hjarta­bilun að því er virt­ist og fór suður með sjúkra­flugi. Í ljós kom að um var að ræða álag. Svo­kallað „bro­ken heart syndrome“.

Syst­urnar samanDíana, Heiðrún og Brynja.

Heiðrún seg­ist hafa fengið sjokk þegar hún hélt að yngri systir sín gæti líka verið að deyja. Hún tal­aði á þessum tíma við séra Vigfús Bjarna Alberts­son sem hjálp­aði mikið.

Telur Heiðrún að það sé eitt­hvað hinum megin? Að það taki eitt­hvað við eftir dauð­ann?

„Já, ég hef trú á því að það sé eitt­hvað þarna, hvað svo sem það er.“

Missti nær alla sjón á öðru auga

Heiðrún seg­ist alltaf hafa verið heilsu­hraust en henni tókst þó að slíta kross­bönd á báðum fótum á skíðum með um 10 ára milli­bili. En stuttu eftir and­lát Brynju fór hún að fá verk í nár­ann og kom í ljós gömul sprunga í mjöðm og þurfti að fara í aðgerð á mjöðm.

Annar, tor­kenni­legur heilsu­brestur gerði síðan vart við sig.

„Haustið 2023 var ég í vinnu­ferð í Stokk­hólmi. Ég fór að fá sjón­trufl­anir á öðru auga, svipað eins og mígreni. Í skoðun á Íslandi kom í ljós að ég var með bólgna sjón­taug í hægra auga. Það hefur aldrei komið í ljós hvað þetta er en ég missti nær alla sjón á aug­anu. Ég var búin að vera undir miklu álagi en þegar þarna var komið sögu var allt að kom­ast í eðli­legt horf. Ég ætla ekki að úti­loka að undir miklu og langvar­andi álagi geti eitt­hvað í lík­am­anum gefið eftir. Sjónina hef ég ekki fengið til baka. Ég var sjúk­lega hrædd á þessum tíma um að sama myndi koma fyrir hitt augað.“

Heiðrún var í rann­sóknum í um sex mán­uði og var fyrst greind með MS en síðar kom í ljós að svo var ekki. Hún seg­ist hafa fengið afar góða þjón­ustu, var send í alls konar rann­sóknir til að úti­loka mögu­lega sjúk­dóma. Það fannst ekk­ert sem skýrt gat hvers vegna sjón­taugin bólgn­aði. „Ég fékk grein­ing­una NAION, það er óút­skýrt hvers vegna bólga kom í sjón­taug sem leiddi til skemmda. Nið­ur­stöður rann­sókn­anna voru sendar til Karol­inska í Svíþjóð þar sem sænskir sér­fræð­ingar í augn­sjúk­dómum fóru yfir allar rann­sóknir og komust að sömu nið­ur­stöðu.

„Ég fann fyrir heilsu­kvíða í fyrsta sinn“

Auðvitað var áfall að missa sjón­ina. Ég fann fyrir heilsu­kvíða í fyrsta sinn og var hrædd um að þetta færi í hitt augað. Fjar­lægða­skynið minnk­aði og ég var klaufi í fyrstu. Kaffi­boll­inn var fyrir framan mig en ég sá hann ekki og hellti niður. Þá var ég að reka mig í fólk eða hluti. Og ekki batn­aði golfið við þetta.“

Lífið heldur áfram

Áföllin hafa breytt sýn Heiðrúnar á lífið. „Ég tek hlut­unum ekki sem jafn­sjálf­sögðum og áður. Maður gerir bara ráð fyrir því að halda heilsu en á einu auga­bragði er allt breytt. Núna passa ég mjög vel upp á svefn­inn og reyni heilt yfir að hugsa betur um heils­una. Þessi reynsla kennir manni auð­mýkt og þakk­læti. Það lenda allir í áföllum í líf­inu. Það er ekki áfallið sem skil­greinir okkur heldur hvernig við bregð­umst við. Mik­il­væg­ast er að standa upp og halda áfram. Lífið heldur áfram. En auð­vitað þarf fólk tíma til að safna kröftum og ná fók­usi aftur.

Hver og einn fer í gegnum áföll, sorg og lífs­reynslu með mis­mun­andi hætti. Og það er ekki rétt­ara hvernig ég geri þetta né heldur rétt­ara hvernig hinn gerir þetta. Hver og einn verður að finna sína leið til að kom­ast í gegnum and­streymið.“

„Ég hef nú minna umburð­ar­lyndi gagn­vart drama og vit­leysu“

Áföllin hafa líka haft áhrif á það hverja Heiðrún umgengst. Nú velur hún betur hverja hún vill hafa í kringum mig. „Við höfum öll tak­mark­aðan tíma og orku. Áföllin hafa gert það að verkum að fjöl­skyldu­tengslin verða meira virði og vin­irnir líka. Vinátta tekur breyt­ingum eins og annað í líf­inu. Stundum þroskast fólk í sundur. Ég á frá­bæra fjöl­skyldu og mikið af traustum vinum sem veita mér orku og standa með mér. Ég hef nú minna umburð­ar­lyndi gagn­vart drama og vit­leysu. Ég hef aldrei verið sér­lega með­virk, oft full hrein­skiptin, kem til dyr­anna eins og ég er klædd. Það hentar ekki öllum, eðli­lega ekki. En ég ríg­held í létt­leik­ann. Við verðum að hafa gaman, ann­ars er bara leið­in­legt.“

Í alþjóðlegu samstarfi

Heiðrún hóf árið 2022 starf sem fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í fjár­mála­þjón­ustu og þar er hún enn.

„SFF eru hags­muna­sam­tök og eru aðild­ar­fé­lögin 25, það eru bank­arnir, vátrygg­inga­fé­lög, verð­bréfa­fyr­ir­tæki, spari­sjóðir og minni aðilar. Starfs­menn eru sjö. Eitt af lyk­il­verk­efnum okkar er að fylgj­ast með lagaum­gjörð, þróun og breyt­ingum á lögum og reglum. Við fylgj­umst með því sem er að ger­ast í Evrópu og miðlum til lands­manna.

Við erum undir ströngum sam­keppni­reglum og getum ekki fjallað um verð, þjón­ustu né skil­mála. En við getum fjallað um þetta almennt sem og hvað er að ger­ast í sam­an­burð­ar­lönd­unum. Starfs­menn innan aðild­ar­fé­laga okkar eru yfir 2.000 og því varðar þetta umhverfi marga. Allir lands­menn eru við­skipta­vinir og því þurfum við öll að vanda okkur.

SFF skrifa mikið af umsögnum, til dæmis er varða laga­frum­vörp er snúa að okkar umhverfi. Við erum ýmist að mæla með, vara við ein­hverju eða leggja til breyt­ingar. Þannig að við veitum með þessu aðhald bæði hvað varðar stjórn­völd og þegar kemur að þing­inu. Þetta er hið leið­bein­andi hlut­verk sam­tak­anna.

Við erum í alþjóð­legu sam­starfi. Ég mæti á fundi með evr­ópskum banka­sam­tökum sem og evr­ópskum trygg­inga­sam­tökum. Þá er mikið sam­starf við nor­rænu syst­ur­sam­tökin.“

Að drukkna í reglum frá Evrópu

Heiðrún seg­ist hafa vitað að hún væri að fara í skemmti­legt starf en að þetta sé miklu skemmti­legra heldur en hún hélt, afar gef­andi og ólík verk­efni hverju sinni. Þá er SFF í miklum sam­skiptum við opin­bera aðila, fjöl­miðla og aðra hags­muna­að­ila.

„Við höldum ráð­stefnur, til dæmis fimm ráð­stefnur á síð­asta ári sem voru ákaf­lega vel sóttar auk þess sem margir fylgd­ust með á streymi. Við erum að fylgj­ast með hvað er að ger­ast, fyrst og fremst í Evrópu og Banda­ríkj­unum. Evr­ópu­ríkin eru að kvarta yfir því sama og við. Við erum að drukkna í reglum frá Evrópu. Og þar fyrir utan er oft bætt við gull­húðun á Íslandi. Við höfum ítrekað varað við því að við í okkar litla hag­kerfi göngum lengra en nágranna­ríki okkar, það skekkir sam­keppn­is­stöðu okkar sem þjóðar.

Stóru ríkin eru líka að kvarta yfir þessum ofur­reglum Evrópu. Þekkt er svokölluð Draghi-skýrsla (skýrsla um sam­keppn­is­hæfni Evrópu) þar sem fram kemur að ef fram heldur sem horfir þá er Evrópa að reglu­væða sig út úr sam­keppni við Banda­ríkin og Asíu. Núna er verið að tala um að mörg fjár­fest­ing­ar­tæki­færi sem hefði átt að vera hægt að afgreiða í Evrópu hafa farið til Asíu og Ameríku. Norrænir seðla­banka­stjórar og EBF, evr­ópsku banka­sam­tökin, hafa ályktað um ofur­reglu­væð­ingu og skerta sam­keppn­is­hæfni. Það þarf að snúa vörn í sókn og breyta þessu. Ísland er að mörgu leyti í öfunds­verðri stöðu. Hér er hátt mennt­un­ar­stig og mikið af nátt­úru­auð­lindum. En við erum líka með vanda­mál sem mörg eru heima­gerð, okkar eigin verk sem hægt er að snúa til betri vegar.“

Heiðrún bendir á að íslenskur almenn­ingur eigi um 80% hlut í bönk­unum, með beinum eða óbeinum hætti í gegnum rík­is­sjóð og líf­eyr­is­sjóði. „Ísland er með mestu skatta á bank­ana þegar horft er til sam­an­burð­ar­land­anna sem gerir það að verkum að hætta er á að við séum ekki sam­keppn­is­hæf miðað við löndin sem við berum okkur saman við. Ef við erum ekki sam­keppn­is­hæf þá fá fyr­ir­tæki ekki sam­keppn­is­hæf kjör. Það er ávísun á að það dragi úr lífs­kjörum okkar miðað við önnur ríki.“

Vill fjármálalæsi í skóla

Heiðrún hefur í núver­andi starfi sínu lagt áherslu á mik­il­vægi fjár­mála­læsis og að það verði gert að skyldu í skólum og kennt þar með heild­rænum og sam­ræmdum hætti. Hún líkir því við að börn séu ekki send út í umferð­ina án þess að kunna umferð­ar­regl­urnar. „Við erum að senda ung­menni út í lífið án þess að kenna þeim grund­vall­ar­at­riði um fjár­mál, þannig fá þau ekki tæki­færi til að byggja sér upp heil­brigðan fjár­hag og hætta er á að þau fest­ist í fátækt­ar­gildru.

Tíu pró­sent ein­stak­linga segj­ast hafa lært fjár­mála­læsi í skólum. 90 pró­sent barna og ung­menna segj­ast hafa viljað læra meira um fjár­mála­læsi í skóla. Það er mik­ill sam­fé­lags­legur þrýst­ingur á börn. Um 50 pró­sent barna læra um fjár­mál á net­inu, þar er hætt á að þau læri frekar að taka smá­lán eða stunda fjár­hættu­spil. Það verður að vera þannig að öll börn fái lág­marks­þekk­ingu í fjár­málum áður en þau fara út í lífið.

Fjár­mála­læs­is­verk­efnið er rekið í gegnum Fjár­mála­vit, sem er rekið af SFF en stutt af Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða. Á síð­ustu árum höfum við gefið um 22.000 bækur inn í skól­ana. Það skiptir sköpun að gera fjár­mála­læsi að skyldu, þá ekki síst vegna þeirra barna sem eru ekki með sterkt bak­land og eiga undir högg að sækja.“

Getur verið kalt á toppnum

Heiðrún var tæp­lega þrí­tug þegar hún varð fyrst fram­kvæmda­stjóri og í byrjun seg­ist hún hafa verið í vörn. Nú seg­ist hún vera afslapp­aðri og opn­ari en áður. Það komi með þrosk­anum og lífs­reynsl­unni.

Getur verið kalt á toppnum? „Já, það getur verið kalt á toppnum. Ég held að það sé grund­vall­ar­at­riði að vera ekki of upp­tek­inn því að ein­hver sé manni ósam­mála eða jafn­vel að baktala mann. Maður stýrir því ekki. Fólk á rétt á því að hafa sínar skoð­anir.“

Heiðrún segir að stundum þyki hún vera „of hrein­skiptin“. „Auðvitað á maður alltaf að sýna fólki kurt­eisi en vera samt stað­fastur og vinnu­samur. Ég reyni að leit­ast við að taka sjálfa mig ekki alvar­lega en taka verk­efnin alvar­lega og vera vand­virk. Ef eitt­hvað kemur upp reyni ég að stíga inn fljótt. Ég á vini sem hafa verið í sama starf­inu síðan þeir útskrif­uð­ust úr laga­deild en mér þykir vera skemmti­legra að breyta til,“ segir Heiðrún sem hefur eins og þegar hefur komið fram unnið á nokkrum stöðum.

Gleym-mér-ei

Heiðrún fer í göngutúr með hund­inn Nóa þegar hún þarf and­rými. „Helst á fjall en það þarf ekki að vera stórt eða krefj­andi, bara drífa sig út.“ Það gerir hún ein­fald­lega til að slaka á.

Hún prjónar mikið og segir að það sé sín hug­leiðsla. Og svo er hún byrjuð í golfi, hefur gengið frekar hægt síð­asta árið að ná niður for­gjöf­inni en það truflar hana lítið.

Heiðrún er gift Jóhann­esi Sig­urðs­syni, lög­manni og áður dóm­ara við Lands­rétt. Hann á þrjá syni úr fyrra hjóna­bandi, Sigurð Loga, Andrés og Tómas. „Andrés og Björk eiga gleði­gjaf­ana og grallar­ana Heimi og Elmar Nóa.“

Hjónin eiga sum­ar­hús í Skorra­dal þar sem þau fara reglu­lega allan árs­ins hring. Heiðrún segir að þar sé ekki síður fal­legt á vet­urna og þá sé enn meiri kyrrð.

„Þar kemur sveita­stelpan fram; að fara í lopa­peys­una, í stíg­vél og upp á fjall. Við höfum verið að gróð­ur­setja tré og ég hefði aldrei trúað því hversu gef­andi það er að labba með Nóa og skoða tré sem ég gróð­ur­setti. Ég labba upp á fjall eða hjóla stundum í kringum Skorra­dals­vatn um 42 kíló­metrar. Mér finnst vera end­ur­nær­andi að vera ein og hlusta á nátt­úr­una. Og einmitt ef ég er þungt hugsi þá rölti ég út og fæ mér súr­efni.“

Hún sem sækir í nátt­úr­una er spurð hvert upp­á­halds­blómið sé. „Það er eng­inn vafi að það er gleym-mér-ei. Það teng­ist æskuminn­ingu, ömmu og sveit­inni. Það er lítið, fal­legt og virð­ist við­kvæmt en er hart af sér.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Stjórnandinn

Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, er reynslumikill stjórnandi, móðir og náttúruunnandi. Hún hefur á rúmlega tveggja áratuga ferli leitt fólk, byggt upp vinnustaðamenningu, stýrt breytingum og tekist á við krefjandi verkefni í atvinnulífi, fjölmiðlum og félagasamtökum.
Viðtal
Stjórnandinn

Breyttur heimur sem verður aldrei eins

Viðtal
Stjórnandinn

Intró­vert­inn sem þurfti að verða extró­vert