Kristinn Árni Lár Hróbjartsson kynntist snemma hinum stóra heimi en hann fæddist á Íslandi en flutti svo til Þýskalands þar sem foreldrar hans voru í námi og var að verða sjö ára þegar fjölskyldan flutti til Íslands.
„Ég var svolítið í tölvuleikjum og svona nördastöffi. Nexus-dótaríi. Ég var líka í tónlist en ég spilaði á klarinett og óbó.“
Hann var átta ára þegar hann byrjaði að læra á klarinett og í tvö ár lærði hann á það hljóðfæri en svo talaði kennarinn hans um að hann færi að læra á óbó og það gerði hann í átta ár eða þar til hann var átján ára.
Tónlistin togaði fast í hann og á árunum í Menntaskólanum við Hamrahlíð, þar sem hann var á bæði náttúrufræði- og málabraut, söng hann tenórrödd með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og síðan með Hamrahlíðarkórnum í þrjú ár eftir að stúdentshúfan var komin …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















Athugasemdir