Heiðrún Jónsdóttir. Heiðrún segir að sér þyki vænt um nafnið sitt af því að ömmur hennar hétu Heiðveig og Guðrún og voru nöfnin sameinuð með þessum hætti. „Svo gerði ég þetta reyndar sjálf eftir að ég eignaðist soninn Jón Hallmar. Pabbi heitir Jón Helgi og hinn afi hans heitir Hallgrímur og einn langafi hans Valdimar þannig að þetta er suða úr þeim nöfnum. Mamma heitir Halldóra María og hin amma hans Margrét þannig að þarna er fullt af „hall“ og „mar“. Dóttir mín fékk nafnið Heiðveig eins og amma mín heitin hét.“ Jón Hallmar er lögfræðingur eins og móðir sín. Dóttirin, Heiðveig Björg, stundar nám í hagfræði við Háskóla Íslands.
Stúlkan sem var skírð nafninu til að heiðra báðar ömmur sínar ólst upp á Húsavík fyrir utan að fjölskyldan flutti til Svíþjóðar þegar hún var níu ára og þar bjuggu þau í tvö ár. Hún var oft í sveit …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















Athugasemdir