Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”

Hjónin Númi Snær og Elín eru nýj­ustu gestir Sölva Tryggva.

„Hvenær ætlum við að vakna upp af dáleiðslunni?”
Elín og Númi Snær Hjónin segja streita hrjá stóran hóp Íslend­inga Mynd: YouTube-skjáskot

Hjónin Númi Snær Katrín­ar­son og Elín Jóns­dóttir segja að í starfi sínu verði þau vör við að hraði og streita í nútíma­sam­fé­lagi sé farin að hafa skýr áhrif á heilsu margra Íslend­inga. Þau voru nýverið gestir í hlað­varpi Sölva Tryggva­sonar. Númi og Elín hafa starfað við heilsu­tengd mál í mörg ár bæði á Íslandi og erlendis og leggja mikla áherslu á að efla heil­brigði. Að sögn Elínar hefur auk­inn hraði sam­fé­lags­ins smám saman orðið til þess að margir upp­lifi sig aftengda.

„Það að vera í lít­illi teng­ingu við sig sjálfan og nátt­úr­una er stór ástæða þess að við erum mörg ekki á góðum stað þegar kemur að heilsu. Maður finnur það alveg sjálfur þegar maður fer í streitu og hraða að þá fer þessi teng­ing og maður hættir að finna jafn­mikið og það er erf­ið­ara að fá aðgang að inn­sæ­inu. Ég held að stærsta ein­staka vanda­málið á Íslandi þegar kemur að heil­brigði sé þessi skortur á teng­ingu við okkur sjálf. Ég finn það alveg á sjálfri mér að því holl­ari nær­ingu sem ég læt ofan í mig og því betur sem ég hugsa um mig, því næm­ari verður maður. Þá finn ég hvað ég þarf og lík­am­inn lætur mig vita og ég get hlustað á hann. Suma daga þarf maður meiri slökun, en aðra daga meiri hraða og það er mis­jafnt á milli daga hvernig nær­ingu lík­am­inn vill. Það er frá­bær til­finn­ing að finna þessa teng­ingu við sjálfa sig. Það er ólíkt hver birt­ing­ar­mynd heilsu­leysis er hjá kynj­un­unum, en almennt er hrað­inn og streitan of mikil. Margar konur eru að vinna mikið, sjá um heim­ilið og æfa í mik­illi ákefð og líður vel tíma­bundið á eftir, en hægt og rólega fer öll ákefðin að taka toll. Svo eru aðrar konur sem þyrftu kannski að fara í meiri karlorku og ákefð, þannig að lyk­il­at­riðið í þessu er jafn­vægið og að hver og einn finni sína réttu leið,” segir Elín, sem þekkir þetta af eigin raun:

„Þegar það er orðið álag á öllum víg­stöðvum alla daga verðum við að muna að það er auka streita á kerfið að fara á erf­iðar æfingar. Það var mikið álag á okkur þegar við bjuggum úti í Svíþjóð, en við náðum alltaf að hlaða okkur inn á milli. Svo vorum við komin með þrjú börn, komin heim til Íslands og að reka fyr­ir­tæki, en maður hélt bara áfram að keyra á æfing­arnar eins og áður. Þetta getur orðið að ákveð­inni fíkn. Að halda þessarri keyrslu stöðugt áfram. Þegar ég horfi á þetta núna eftir á, þá var maður í raun að þjösnast á lík­am­anum.”

Númi, sem hefur víð­tæka reynslu á sviði heilsu, vinnur dag­lega með fólki og segir að margir séu komnir úr jafn­vægi. Að hans mati sé það að ein­hverju leyti sam­fé­lags­legt verk­efni að hjálpa fólki að finna aftur leið að betri heilsu, þó að end­an­leg ábyrgð liggi alltaf hjá hverjum ein­stak­lingi.

„Ég vil ekki sjá krakk­ana mína á þeim stað að þau þurfi að ganga í gegnum gríð­ar­lega van­líðan eða sjúk­dóma til að átta sig á því að heilsan ætti alltaf að vera í for­gangi. Við sjáum þetta bæði í skól­unum og íþróttum og á fleiri stöðum að það er bara allt fullt af gjörunnum mat­vælum og lítið verið að hugsa út í hlut­ina. Það er bara sykur og bólgu­mynd­andi matur sama hvert við horfum og svo er kostn­að­ur­inn við heil­brigð­is­kerfið á lóð­réttri leið upp, en það er eins og við gerum ekki teng­ingu þarna á milli. Á end­anum áttum við okkur flest á því að við þurfum að koma okkur út í nátt­úr­una, borða nátt­úru­legan mat og hægja á okkur. En því miður ger­ist það oft ekki fyrr en of seint. Þegar staðan er orðin þannig að heilsan er farin er mjög aug­ljóst að það er bara eitt for­gangs­at­riði og það er að ná heilsu. Við ættum að átta okkur á því að við eigum bara einn lík­ama, sem ætti í raun að vera alltaf í for­gangi.”

Hjónin vilja að með­vit­und almenn­ings um heilsu auk­ist og telja mik­il­vægt að það verði sam­eig­in­legt mark­mið að byggja upp heil­brigð­ara sam­fé­lag á Íslandi.

„Það er ekk­ert mikið rætt um heilsu í stjórn­málum eða í sam­fé­lags­um­ræð­unni almennt. En þetta er samt klár­lega eitt stærsta mál sam­tím­ans. Bara kostn­að­ur­inn við heil­brigð­is­kerfið hefur rokið upp fyrir utan það að frá mann­úð­ar­sjón­ar­miði aukast öll lífs­gæði þegar fólk verður heil­brigð­ara. Það er eig­in­lega und­ar­legt að við tökum ekki stærri og meiri umræðu um heil­brigði sem sam­fé­lag og hvar við erum stödd þegar kemur að heilsu. Bara að koma þessu meira inn í mennta­kerfið og sjá til þess að hver og einn ein­stak­lingur sé í meiri með­vit­und um að taka ábyrgð á eigin heilsu. Það er hægt að gera svo margt á Íslandi sem myndi færa okkur í rétta átt.”

Númi og Elín eiga þrjú börn saman sem öll eru á grunn­skóla­aldri. Númi segir að ferða­lag fjöl­skyld­unnar til Costa Rica hafi haft mikil áhrif á lífs­við­horf þeirra, en þar dvöldu þau mán­uðum saman í nánum tengslum við nátt­úr­una.

„Okkur lang­aði að prófa að taka allt úr sam­bandi. Ekki síst fyrir krakk­ana okkar. Að hverfa, tengj­ast og vera í nátt­úr­unni. Og hvað er þá betra en að fara bara inn í frum­skóg­inn eins langt frá því sem við þekkjum og mögu­legt er. Við vorum þarna partur af sam­fé­lagi þar sem allir hjálp­ast að til að geta búið saman. Krakk­arnir fóru í skóla og við vorum að vinna hluta af deg­inum og svo voru alls kyns upp­á­komur, list­sköpun og margt fleira. Það var margt sem við upp­lifðum þarna sem var erfitt að koma í orð, en það að vera inni í frum­skóg­inum og vakna upp við dýra­hljóðin á hverjum degi var algjör­lega magnað. Að taka svo 40 mín­útur á hverju kvöldi í hug­leiðslu og teng­ingu við dýra­lífið og nátt­úr­una var stór­kost­leg upp­lifun,” segir Númi, sem upp­lifði hálf­gert sjokk þegar hann kom aftur heim.

„Það er svo mik­ill hraði og keyrsla á öllu á Íslandi og mikil efn­is­hyggja. Maður sér það mjög skýrt þegar maður skiptir um aðstæður í svona langan tíma. Við erum oft að elta eitt­hvað sem við vitum ekki einu sinni hvað er. Innst inni viljum við öll bara vera séð, heyrð og snert, en brynjan hjá mörgum er orðin mjög þykk í þessu efn­is­hyggju­kapp­hlaupi. Ég vil ekki vera nei­kvæður, en við erum á margan hátt á rangri leið. Heilsan er aðal­at­riðið og við verðum líka að hugsa um börnin okkar. Hver ætlar að taka við þegar við föllum frá? Við gefum okkur fæst tíma og rými til að hægja á okkur og spyrja okkur hvort við séum að gera það sem við viljum gera í líf­inu og hvort við séum að fara í rétta átt. Til­hneig­ingin er að halda áfram að hlaupa án þess að vita hvert maður er að fara. En stað­reyndin er sú að það svörin eru öll innra með okkur og lík­am­inn er stór­kost­legt tæki sem kann að heila sjálfan sig ef við hlustum almenni­lega á hvað hann er að reyna að segja okkur. Spurn­ingin er hvort og hvenær við ætlum að vakna upp úr dáleiðsl­unni sem við erum föst í?”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu