Sjö manns sóttum forstjórastarf Sjúkrahússins á Akureyri og rann umsóknarfrestur út 23. mars.
Sjúkrahúsið á Akureyri starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Sjúkrahúsið á Akureyri er kennslusjúkrahús og þekkingarstofnun sem veitir sérfræðiþjónustu í helstu greinum læknisfræði og hjúkrunarfræði sem og almenna sjúkrahúsþjónustu í sínu umdæmi. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum. Sjúkrahúsið á Akureyri er annað stærsta sjúkrahús landsins og lögum samkvæmt varasjúkrahús Landspítala. Að jafnaði starfa tæplega 700 manns á sjúkrahúsinu.
Hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í stöðuna til 5 ára































Athugasemdir