Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega

„Slík umfjöllun á ekk­ert erindi í opin­bera umræðu“

Gagnrýnir Facebook-færslu Stebba Jak harðlega
Stefán var söngv­ari Dimmu Sævar er afar ósáttur við skrif Stebba Jak Mynd: Facebook/Stebbi Jak

Lögmaður manns­ins sem kærði tón­list­ar­mann­inn Stefán Jak­obs­son fyrir lík­ams­árás segir óásætt­an­legt að vegið sé að per­sónu umbjóð­anda síns í gegnum sam­fé­lags­miðla og fjöl­miðla. Frá því segir Vísir. Stefán var sýkn­aður í mál­inu fyrr í vik­unni og til­kynnti í kjöl­farið á Facebook að hann hygð­ist hætta sem söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar Dimmu, í langri færslu sem vakti gríð­ar­lega athygli.

Sævar Þór Jónsson, lög­maður manns­ins, sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann und­ir­strikar að „lögvar­inn réttur hvers manns að tjá sig um nið­ur­stöðu dóms­mála“ sé ótví­ræður. Hann telur þó að Stefán, sem gengur undir nafn­inu Stebbi Jak, hafi farið yfir strikið í Facebook-færsl­unni sem hann birti í gær.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að þar sé „vegið að æru umbjóð­anda míns, hann titl­aður „ger­andi“ og fjallað um per­sónu­lega heilsu­fars­sögu hans og við­kvæm einka­mál­efni á opin­berum vett­vangi“.

Sævar gagn­rýnir sér­stak­lega það sem hann kallar atlögu að frið­helgi einka­lífs, þar sem upp­lýs­ingar úr sjúkra­skrám og öðrum við­kvæmum gögnum séu dregnar fram opin­ber­lega. Slík umfjöllun eigi ekki heima í opin­berri umræðu og geti valdið frekara tjóni. Að hans mati gefi hún jafn­framt „ranga og ein­hliða mynd af mála­vöxtum“.

Í yfir­lýs­ingu sinni rakti Stebbi Jak atburða­rás máls­ins sem staðið hefur yfir í tvö og hálft ár. Færslan bar yfir­skrift­ina „Hættur í Dimmu“, en þar til­kynnti hann jafn­framt brott­hvarf sitt úr hljóm­sveit­inni. Sagði hann ástæðu þess meðal ann­ars vera ágrein­ing við bassa­leik­ar­ann Silla Geirdal og eig­in­konu hans, sem hann telur hafa tekið afstöðu gegn sér vegna tengsla við kær­and­ann.

Í færsl­unni segir Stebbi meðal ann­ars: „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissu­tíma með skýrum sýknu­dómi vegna ákæru um lík­ams­árás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttir­inn að fá þetta stað­fest er ólýs­an­legur.“ Hann kveðst jafn­framt munu vísa til manns­ins sem áður var nefndur „brota­þoli“ sem „ger­anda“.

Í yfir­lýs­ingu lög­manns­ins er jafn­framt bent á að dómur hér­aðs­dóms sé ekki end­an­leg nið­ur­staða þar sem áfrýj­un­ar­frestur sé enn í gildi. Rík­is­sak­sókn­ari hefur fjórar vikur til að áfrýja nið­ur­stöðu máls­ins.

Að lokum segir í yfir­lýs­ing­unni að umbjóð­andi hans muni ekki bregð­ast við ein­stökum ásök­unum opin­ber­lega, þar sem slíkur mál­flutn­ingur „dæmi sig sjálfur“.

Hér fyrir neðan má sjá yfir­lýs­ingu Sævars í heild sinni:

Yfir­lýs­ing vegna opin­berrar umfjöll­unar Stefáns Jak­obs­sonar

Und­ir­rit­aður lög­maður sendir frá sér eft­ir­far­andi athuga­semd fyrir hönd umbjóð­anda míns vegna yfir­lýs­ingar sem Stefán Jak­obs­son birti á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum.

Það er lögvar­inn réttur hvers manns að tjá sig um nið­ur­stöðu dóms­mála, en það er hins vegar með öllu óásætt­an­legt að nýta slíkan vett­vang til að vega að per­sónu umbjóð­anda míns með þeim hætti sem gert er. Í yfir­lýs­ing­unni er vegið að æru umbjóð­anda míns, hann titl­aður „ger­andi“ og fjallað um per­sónu­lega heilsu­fars­sögu hans og við­kvæm einka­mál­efni á opin­berum vett­vangi.

Sér­stak­lega er mót­mælt þeirri atlögu að frið­helgi einka­lífs umbjóð­anda míns sem felst í því að draga fram upp­lýs­ingar úr sjúkra­skrám og per­sónu­legum högum til að sverta ímynd hans. Slík umfjöllun á ekk­ert erindi í opin­bera umræðu, er til þess fallin að valda frek­ari skaða og dregur upp ranga og ein­hliða mynd af mála­vöxtum.

Rétt er að árétta að nið­ur­staða hér­aðs­dóms er ekki end­an­leg þar sem áfrýj­un­ar­frestur er enn yfir­stand­andi. Að öðru leyti mun umbjóð­andi minn ekki svara ein­stökum ásök­unum eða full­yrð­ingum Stefáns á opin­berum vett­vangi, enda er það mat okkar að slíkur mál­flutn­ingur dæmi sig sjálfur.

Lögð er rík áhersla á að fjöl­miðlar sýni ábyrgð og gæti þess að ger­ast ekki mál­pípa fyrir ómál­efna­legar dylgjur og opin­bera útlistun á við­kvæmum per­sónu­upp­lýs­ingum.

Fyrir hönd umbjóð­anda míns.

Virð­ing­ar­fyllst,

Sævar Þór Jónsson hrl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi