Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stebbi Jak hættir í Dimmu með látum

„Ég kýs að umvefja mig fólki sem er nær­andi en ekki ærandi og tær­andi.“

Stebbi Jak hættir í Dimmu með látum
Stebbi Jak Stebbi hefur yfir­gefið Dimmu Mynd: Facebook

Stefán Jak­obs­son, betur þekktur sem Stebbi Jak, söngv­ari hljóm­sveit­ar­innar DIMMU, hefur ákveðið að segja skilið við sveit­ina eftir 15 ára starf. Ákvörð­unin kemur í kjöl­far sýknu­dóms í lík­ams­árás­ar­máli og langvar­andi álags sem hann segir hafa haft djúp áhrif á líf sitt.

Í færslu á Facebook greinir Stefán frá því að málið hafi staðið yfir í tvö og hálft ár og haft veru­leg áhrif á hann og hans nán­ustu. „Í gær lauk tveggja og hálfs árs óvissu­tíma með skýrum sýknu­dóm vegna ákæru um lík­ams­árás. Ég hafði alltaf trú á að þetta færi vel, en léttir­inn að fá þetta stað­fest er ólýs­an­legur,“ segir hann.

Hann lýsir því jafn­framt að sá aðili sem lagði fram kæruna hafi á sama tíma beitt hann og fjöl­skyldu hans ítrek­uðu áreiti og hót­unum:

„Í tvö og hálft ár hefur þessi maður beitt mig og fólkið í kringum mig gengd­ar­lausu ofbeld. Má þar nefna fyrr­ver­andi sam­býl­is­konu ger­and­ans, lög­fræð­ing­inn minn og eig­in­konu mína. Ger­and­inn hefur hótað mér og mínum ótelj­andi oft, auk þess sem hann hefur áreitt okkur ítrekað í gegnum sms og tölvu­pósta.“

Samkvæmt Stefáni náðu hót­an­irnar einnig til barna hans og tengdra aðila, auk þess sem haft hafi verið sam­band við vinnu­staði og skóla barn­anna. Hann segir málið ítrekað hafa verið til­kynnt til lög­reglu án þess að gripið hafi verið til aðgerða sem stöðv­uðu áreitið.

„Allt hefur þetta verið til­kynnt til lög­reglu án þess að nokkuð hafi verið að gert og afleið­ing­arnar þar af leið­andi engar fyrir ger­and­ann. Okkur var í eitt skipti sagt að hann hefði verið hand­tek­inn og settur í klefa, sem ætti að róa slíka menn. Það var þó ekki vegna hót­ana í minn garð eða í garð míns fólks, heldur vegna hót­ana sem hann sendi á almennt net­fang dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.“

Tengir brotthvarf við stöðu innan hljómsveitarinnar

Í færsl­unni tengir Stefán ákvörðun sína um að hætta í DIMMU einnig við sam­skipti innan sveit­ar­innar. Hann segir að tengsl milli aðila í mál­inu og fjöl­skyldu bassa­leik­ara sveit­ar­innar hafi haft áhrif á sam­starfið.

„Umræddur maður sem ég vísa til sem ger­anda í þessu máli er tengdur eig­in­konu Silla Geirdal, sem er bassa­leik­ari DIMMU. Eig­in­konan á svo og rekur mark­aðs­fyr­ir­tæki, þar sem ger­and­inn er skráður sem starfs­maður.“

Stebbi heldur áfram:

„Silli og eig­in­konan hans hafa frá upp­hafi máls tekið skýra afstöðu gegn mér í þessu máli þrátt fyrir að hafa átt við þau ítrekuð sam­töl, sem hafa snú­ist um það að ger­and­inn er veikur ein­stak­lingur sem aug­ljós­lega þarf á aðstoð að halda, kusu þau að setja kík­inn fyrir blinda augað og kenna mér um ófarir þessa manns. Þannig var því haldið fram að ég og mitt fólk söfn­uðum hót­unum hans saman, ein­ungis með það í huga að geta náð okkur niður á honum síðar. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það að við svona aðstæður er ómögu­legt að eiga nokk­urt sam­starf eða sam­tal. Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugð­ist á öllum stigum máls­ins,“ skrifar hann og bætir við að við slíkar aðstæður hafi reynst ómögu­legt að við­halda sam­starfi.

Þung ákvörðun eftir 15 ár

Stefán segir ákvörð­un­ina hafa verið erf­iða, enda hafi hann starfað með hljóm­sveit­inni af heilum hug í mörg ár:

„Ég hef starfað með DIMMU af heilum hug í 15 ár. Eftir okkur liggja heil­steyptar plötur, tón­leikar og gleði­stundir sem skipta þús­undum.“

Hann þakkar jafn­framt stuðn­ing aðdá­enda í gegnum tíð­ina og seg­ist ætla að horfa fram á veg­inn:

„Ég kýs að umvefja mig fólki sem er nær­andi en ekki ærandi og tær­andi. Ég hlakka því til þess sem fram­tíðin ber í skauti sér.“

Stefán lýkur færsl­unni á orðum um mik­il­vægi þess að sleppa tak­inu þegar aðstæður krefj­ast þess og segir ákvörð­un­ina hluta af því að vera sjálfum sér trúr.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag