Grínistinn Jakob Birgisson á rétt á, sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, biðlaunum í þrjá mánuði en þetta kemur fram í svari dómsmálaráðuneytisins.
Tilkynnt var nýlega að Þórdís Valsdóttir tæki við starfi Jakobs en hann ætlar að snúa sér að gríni samkvæmt tilkynningu sem hann setti á Facebook.
Heildarkostnaður við biðlaun Jakobs er 5.398.230 krónur en tilkynnt var um ráðningu hans 2. janúar 2025.
Jakob útskrifaðist frá Menntaskólanum í Reykjavík 2018. Hann hefur starfað sem uppistandari og hefur haldið fjölda sýninga um land allt. Samhliða uppistandi hefur Jakob starfað við texta- og hugmyndavinnu hjá auglýsingastofunni Hvíta húsinu. Þá hefur hann verið sjálfstætt starfandi við textagerð, stefnumótun og kynningarmál. Jakob á einnig feril í dagskrárgerð í útvarpi og sjónvarpi. Eiginkona hans er Sólveig Einarsdóttir hagfræðingur og eiga þau saman dæturnar Herdísi og Sigríði.































Athugasemdir