Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af TRS kóriander fræjum sem Fiska/Lagsmaður flytur inn, en varan greindist með leifar af ólöglegu varnarefninu chorpyrifos. Kemur þetta fram í tilkynningu frá MAST.
Fyrirtækið hefur innkallað vöruna í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes ( HEF).
Tilkynningin kom til Íslands í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF sem er tilkynningakerfi um hættuleg matvæli og fóður á markaði.
Neytendur skulu ekki neyta vörunnar heldur farga henni eða skila til verslunarinnar til að fá endurgreitt.
































Athugasemdir