Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar

„Það er búið að eyði­leggja mið­bæ­inn.“

Bubbi lýsir yfir andláti miðborgarinnar
Bubbi Morthens Ekki eru allir sam­mála Bubba Mynd: Facebook

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bubbi Morthens segir miðbæ Reykja­víkur hafa tapað lífi sínu og telur að þró­unin und­an­farin ár hafi haft nei­kvæð áhrif á borg­ar­lífið.

Í færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðlum lýsir hann upp­lifun sinni eftir að hafa flutt úr sveit í borg­ina og síðar sest að á Sel­tjarn­ar­nes, þar sem hann hefur búið und­an­farin fimm ár.

„Mín skoðun er eftir að hafa flutt í borg­ina úr sveit­inni að mið­bær Reykja­víkur sé ónítur dauður hvað gerð­ist hverjum datt í hug að hrekja nán­ast alla verslun úr Mið­borgin vart finn­an­leg bíla­stæði jú það má finna túrista,“ skrifar Bubbi.

Hann segir að mið­bær­inn hafi áður verið lif­andi og iðandi af fólki og verslun, en að nú sé annað upp á ten­ingnum. Að hans mati séu heima­menn sjald­séðir í mið­borg­inni.

„En heima­menn sjást varla einu sinni var mið­bærin fullur af fólki verslun og lífi,“ segir hann enn fremur.

Bubbi seg­ist fara dag­lega um borg­ina og byggja skoðun sína á þeirri reynslu. Hann er ekki í vafa um nið­ur­stöð­una:

„Ég er búin að búa á Sel­tjarn­ar­nes í 5 ár og fer dag­leg um borg­ina mín skoðun er sú það er búið að Eyði­leggja mið­bæ­inn.“

Athugasemdarkerfið logar

Athuga­semda­kerfið við færslu Bubba fyllt­ist snögg­lega af nafn­tog­uðum mið­bæj­ar­rottum sem flestar eru ósam­mála söngvaskáld­inu.

Þor­finnur Ómarsson fjöl­miðla­maður svarar meðal ann­ars athuga­semd frá Georg nokkrum, sem kennir Degi B. Egg­erts­syni, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra um ásýnd mið­borg­ar­innar og segir: „Dagur á hrós skilið fyrir að gera miðbæ Reykja­víkur að spenn­andi og lif­andi miðbæ, nokkuð sem hann var ekki hér áður fyrr. Miðbær Reykja­víkur hefur aldrei verið meira lif­andi en einmitt nú.“

Illugi Jök­uls­son fjöl­miðla­maður tjáir sig einnig um færslu Bubba:

„Ég hef búið í mið­bænum í 38 ár. Þar áður átti ég dag­lega leið um mið­bæ­inn. Mín skoðun er sú að það hafi aldrei - segi og skrifa ALDREI verið jafn mikið líf í mið­bænum og einmitt nú, og það eru alls ekki ein­göngu túristar. Þetta segi ég ekki af ein­hverri póli­tík, heldur er þetta bara mitt ein­lægt álit. Ég hef aftur á móti sjaldan séð þig í mið­bænum.“

Þessu svarar Bubbi, í mesta bróð­erni:

„Kannski vegna þess þú sért ekki vak­andi klukkan 9 að kveldi eða við ein­fald­lega erum ekki á sama tempói og segir ekk­ert um það sem ég segi hér annað en þú ert mèr ekki sam­mála.“

Goð­sögnin Edda Björg­vins­dóttir svarar Illuga einnig og er honum hjart­an­lega sam­mála:

„nákvæm­lega!!! Í ára­tugi hef ég fylgst með því hvernig mið­borgin verður feg­urri og líf­legri með hverju árinu. Þegar ég var að fara rúnt­inn í gamla daga var ekki kjaftur á ferli og meng­andi bílar áttu Lauga­veg­inn. Og kæri Bubbi bila­stæðin voru miklu miklu færri. Í dag notum við bíla­stæða­húsin og njótum þess að geta gengið um göt­urnar.“

Fjöl­miðla­konan Lára Zulima Ómars­dóttir, tekur líka upp hansk­ann fyrir mið­borg­inni í sinni athuga­semd við svar Illuga:

„alger­lega sam­mála, td á föstu­dag var allt krökkt af fólki á Óðins­torgi, allt Íslend­ingar- Lauga­veg­ur­inn er iðandi af lífi þar sem göngugatan er, hér er allt til alls - bara í 100 metra rad­íus frá mér eru 3 bak­arí, fjöldi kaffi­húsa, íslenskar hönn­un­ar­vöru­búðir, bús­á­halda­búð, fata­versl­anir, nytja­mark­aðir, veit­inga­staðir og ef ég fer í 350 metra þá bæt­ast við mat­vöru­versl­anir, sund­laug og enn fleiri bak­arí, kaffi­hús, veit­inga­staðir, versl­anir og ég veit ekki hvað og hvað. Mið­borgin okkar er æði! Bubbi Morthens Áður var td ekki hægt að ganga Lauga­veg­inn með barn vegna meng­unar og þar var eng­inn á ferli nema seint á föstu­dags- og laug­ar­dags­kvöldum og þá blind­fullur.“

Enn einn fjöl­miðla­mað­ur­inn, Egill Helgason tjáir sig í athuga­semd við færslu Bubba:

„Ástæðan fyrir þessu er að reist voru versl­ana­hverfi á útjöðrum sem drógu lífsand­ann úr versl­un­inni. Til dæmis allar búð­irnar sem reknar eru í járn­grinda­skemmum út á Granda og drápu verslun í Miðbænum- og Vest­ur­bænum. Þetta bygg­ist nefni­lega allt á ákvörð­unum í skipu­lags­málum. En á móti kemur að hægt er að velja um ótal veit­inga­staði af öllu tagi - með mat og drykk frá ýmsum heims­hornum - sem var svo sann­ar­lega ekki þegar við vorum ungir.“

Ekki eru þó allir ósam­mála Bubba en Eyþór Laxdal Arnalds, tón­list­ar­maður og fyrr­ver­andi odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­inni, en hann er þó hrif­inn af veit­inga­stöð­unum:

„það er synd að missa versl­anir eins og Brynju, herra­fata­verslun Guð­steins og núna Húrra. Það eru komnir frá­bærir veit­inga­staðir en versl­unin hefur tap­ast víða.“

Friðrik Karlsson gít­ar­snill­ingur er einnig sam­mála Bubba:

„Sammàla Bubbi èg hef varla farið í mið­bæ­inn í 10 àr algjör­lega búið að rústa honum!!!!!“

Frétta­rit­ar­inn Jóhann Hlíðar Harð­ars­son svarar reyndar Friðriki á skemmti­legan máta:

„Ef þú hefur varla farið í mið­bæ­inn í heilan ára­tug þá ert þú varla besti dóm­ar­inn um það hvernig mið­bær­inn er.“

Hinn umdeildi athafna­maður Hilmar Leifsson er einnig sam­mála Bubba og segir:

„Þetta er alveg hár­rétt hjá þér Bubbi þetta er allt sam­fylk­ing­unni og Degi B að kenna þau eru buinn að stór­skaða borg­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu