Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég var kominn með svakalega sektarkennd og niðurrifið var mikið”

Börkur Brynjars­son sökk djúpt í spilafíkn og sekt­ar­kennd en leit­aði sér loks hjálpar

„Ég var kominn með svakalega sektarkennd og niðurrifið var mikið”
Börkur Brynjars­son Börkur opnar sig um erf­ið­leik­ana í við­tali við Sölva Tryggva Mynd: YouTube-skjáskot

Börkur Brynjars­son utan­vega­hlaup­ari og verk­fræð­ingur seg­ist gríð­ar­lega þakk­látur fyrir starf Píeta-sam­tak­anna, sem hann þurfti að nota sér sjálfur. Börkur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur und­an­farin ár staðið fyrir hlaupi til styrktar sam­tök­unum. Eftir að hafa sjálfur keyrt sig í algjört þrot átt­aði hann sig enn betur á mik­il­vægi þess að opna á erf­ið­leik­ana og byrja að vinna fyrir alvöru í sínum málum:

„Ég var að reka gamla­gróið fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki og var með 5-10 manns í vinnu, en fann að álagið var að keyra mig niður og lok­aði fyr­ir­tæk­inu um ára­mótin 2023/2024. Þá var ég kom­inn í ein­hvers konar sam­bland af þung­lyndi, kvíða og kulnun. Ég taldi mig kom­inn á botn­inn og hugs­aði með mér að nú yrði ég bara að vinna í mínum málum og koma mér upp aftur. En það tók við mik­ill tóm­leiki eftir að ég fór í veik­inda­frí. Í þessum tóm­leika fannst mér ég verða að finna eitt­hvað að gera og vildi láta pen­ing­inn sem ég átti vinna fyrir sér. Eitt leiddi af öðru og ég var fljót­lega kom­inn í „day-tra­d­ing” og taldi að þar gæti ég unnið inn pen­inga. En ég fór fljót­lega með það í mikla fíkn og felu­leik og svo varð þetta eig­in­lega bara að spilafíkn. Það fylgir þessu mikil skömm og ég faldi þetta fyrir kon­unni minni. Ég var að remb­ast við að vinna upp tapið, en þetta varð bara verra og verra og svo var ég kom­inn út í horn með að fela þetta. Ég var þá kom­inn með svaka­lega sekt­ar­kennd og nið­ur­rifið var mikið yfir því að hafa farið þessa leið,” segir Börkur, sem þá byrj­aði að taka á sínum málum:

„Ég end­aði á að fara bæði í áfeng­is­með­ferð og vinna í spilafíkn­inni. Í vinn­unni með SÁÁ átt­aði ég mig fyrst fyrir alvöru á því hvað afneit­unin var orðin mikil og hvernig þetta tengd­ist því að ég hafði keyrt kerfið mitt í þrot þegar ég var að reka fyr­ir­tækið og hvað það var mikið högg fyrir ímynd­ina að þurfa að loka því. Maður er bara í því að grafa holu þegar maður er kom­inn á þennan stað. Manni finnst maður svo lít­ils virði, ekki síst af því að maður hefur verið í felu­leika að lifa tvö­földu lífi. Svo þegar maður loks­ins horf­ist í augu við sann­leik­ann kemur allt áfallið bara í einu.”

Börkur hefur und­an­farin ár staðið fyrir hlaupi til styrktar Píeta sam­tök­unum. Hlaupið fór fram nýlega og heppn­að­ist vel og þátt­takan var góð. Börkur segir mik­il­vægt að verkja athygli á starfi sam­tak­anna, sem hann þekkir af eigin raun:

„Ég á tvo vini sem hafa tekið líf sitt og á aðra vini sem eru aðstand­endur í þessum málum. Svo fór ég sjálfur á þennan stað að fara að hugsa að enda þetta bara þegar staðan var orðin sem verst. Við karl­menn virð­umst margir eiga sér­stak­lega erfitt með að leita okkur hjálpar og finnst við bara vera byrði á annað fólk ef við erum að ganga í gegnum erf­ið­leika. Það er þessi hug­mynd um að við eigum að vera sjáf­stæðir og geta „dílað” við hlut­ina sem virð­ist inn­gróin hjá okkur. Samkvæmt alþjóð­legri töl­fræði eru um sjö­tíu pró­sent sjálfs­víga framin af körlum. Það er aug­ljóst að karl­menn þurfa að verða betri í að opna sig um líðan sína þegar þeir fara í gegnum erf­ið­leika. Þegar hlut­irnir voru sem allra dimm­astir hjá mér guggn­aði ég meira að segja á fyrsta sím­tal­inu í Píeta, en sem betur fer var strax hringt til baka eftir að ég hafði skellt á. Það var ómet­an­legt að geta fengið hlustun frá ein­hverjum sem ekki dæmdi mig á neinn hátt og við verðum að muna að við erum ekki minni karl­menn þó að við opnum okkur um hlut­ina, heldur þvert á móti. Það er svo mik­il­vægt að muna að við erum aldrei einir. Það að finna ein­hvern sem við getum talað við án þess að upp­lifa að við séum dæmdir getur stundum verið algjört lyk­il­at­riði í að byrja að vinna í sér.”

Börkur seg­ist enn vera að vinna í sínum málum, en leggur mikla áherslu á að heið­ar­leg og opin­ská umræða sé lyk­il­at­riði í því að ná bata:

„Það tekur rosa­lega á þá sem verða eftir ef ein­hver fer þá leið að enda sitt eigið líf. Þegar mér fannst ég vera sem minnst virði var það sú hugsun að ég ætti þrjú börn, for­eldra og konu og ég gæti ekki gert þeim þetta. Ég skildi að þetta fjall­aði ekki bara um mig heldur alla fjöl­skyld­una. Við­brögðin sem ég hef fengið við því að opna á þessa hluti hafa almennt verið mjög góð. Maður ótt­ast að fólk dæmi mann þegar maður talar um erf­ið­leika, en það er ekki raunin. Og ef ein­hver dæmir mann er það ekk­ert per­sónu­legt og hefur lík­lega bara meira að segja um þann sem dæmir.”

Börkur hvetur aðra sem standa í svip­uðum sporum og hann gerði til að leita sér hjálpar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu