Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís

„Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýr­unum sjálfum.“

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís

Stjörnu­grís á Kjal­ar­nesi varð fyrir inn­broti aðfar­arnótt mánu­dags­ins 11. maí og rann­sakar lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu málið.

Við inn­brotið var svínum sleppt lausum og drápust tíu smá­grísir í kjöl­farið. Þá þurfti einnig að aflífa einn grís sem hafði kjálka­brotnað.

Talið er að verkn­að­ur­inn hafi verið fram­inn undir for­merkjum dýra­vel­ferðar.

Í til­kynn­ingu frá Stjörnu­grís, sem Vísir segir frá, kemur fram að brot­ist hafi verið inn í svínabú fyr­ir­tæk­is­ins þar sem tvær hurðir voru brotnar upp og umfangs­miklar skemmdir unnar bæði á skrif­stofu­að­stöðu starfs­fólks og inni í svína­hús­unum.

Þar segir að inn­rétt­ingar hafi verið rifnar upp, stíur opn­aðar og hurðir skildar eftir opnar þannig að dýrin gengu laus bæði inni í hús­unum og úti á túni.

Afleið­ing­arnar fyrir dýrin eru sagðar hafa verið mjög alvar­legar. Tíu smá­grísir drápust í ringul­reið­inni sem skap­að­ist og einn grís þurfti að aflífa vegna kjálka­brots. Þá hafi fjöl­margar gyltur hlotið áverka, meðal ann­ars orðið haltar og rispaðar, auk þess sem eitt fóst­ur­lát hafi þegar átt sér stað.

„Búast má við frek­ari afleið­ingum á næstu dögum og vikum, meðal ann­ars vegna streitu, mjólk­ur­missis hjá gyltum og mögu­legra fleiri fóst­ur­láta,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Fyr­ir­tækið segir jafn­framt að smit­vörnum bús­ins hafi verið veru­lega raskað þar sem dýr úr mis­mun­andi hópum blönd­uð­ust saman og sum þeirra komust út úr hús­unum.

Málið hefur verið kært til Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og er nú til rann­sóknar. Þá hefur Mat­væla­stofnun og emb­ætti yfir­dýra­læknis verið gert við­vart um atvikið.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni benda bæði umfang og fram­kvæmd verkn­að­ar­ins til þess að fleiri en einn hafi komið að inn­brot­inu. Þá þykja verksum­merki gefa til kynna að verkn­að­ur­inn hafi verið fram­inn í nafni dýra­vel­ferðar, þrátt fyrir að hann hafi valdið dýr­unum miklum þján­ingum og tjóni.

„Þegar starfs­fólk kom til vinnu um morg­un­inn blasti við skelfi­leg sjón. Dýrin voru aug­ljós­lega í miklu upp­námi og í óreið­unni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sér­stak­lega þung­bært var að finna dauða grísi eftir nótt­ina,“ segir Geir Gunnar Geirsson, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Hann segir starfs­fólkið hafa orðið fyrir miklu áfalli við að sjá bæði vinnu­stað sinn og dýrin í þessu ástandi og hafi því verið sent heim.

„Þetta er ekki aðeins tölu­vert eigna­tjón heldur fyrst og fremst mjög alvar­legt mál fyrir dýrin sjálf. Að ráð­ast inn að næt­ur­lagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veru­leg áhrif á líðan þeirra og öryggi,“ segir hann.

Geir segir jafn­framt að fyr­ir­tækið hafi um nokk­urt skeið unnið að und­ir­bún­ingi fram­kvæmda sem eigi að bæta aðbúnað dýr­anna enn frekar, þó ákveðin mál hjá stjórn­völdum bíði enn úrlausnar.

Að lokum skorar hann á þá sem stóðu að verkn­að­inum að gefa sig fram.

„Það er eitt að mót­mæla eða hafa skoð­anir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þján­ingu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyði­leggja umhverfi þeirra í nafni mál­staðar síns. Ég tel að allir hljóti að for­dæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýr­unum sjálfum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag