Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Knattspyrnukappi flutti frá stríðshrjáðri Bosníu til Fáskrúðsfjarðar

„Að mínu mati er Ísland para­dís á jörðu.“

Knattspyrnukappi flutti frá stríðshrjáðri Bosníu til Fáskrúðsfjarðar
Ifet Mešetović Ifet er hæstá­nægður með lífið á Íslandi Mynd: Facebook

Ifet Mešetović flutti frá Bosníu og Her­segóvínu til Íslands árið 2002, þá 36 ára gam­all og á loka­spretti knatt­spyrnu­fer­ils­ins. Hann varð fyrsti Bosn­íu­mað­ur­inn til að setj­ast að á Aust­ur­landi og hefur búið á Fáskrúðs­firði allar götur síðan ásamt fjöl­skyldu sinni. Hann er í við­tali við Aust­ur­frétt en allt við­talið má lesa í Aust­ur­glugg­anum.

Ifet segir að upp­haf­lega hafi hann aldrei gert ráð fyrir að dvölin á Íslandi yrði svona löng, en lífið hafi þró­ast á annan veg.

„Í byrjun hugs­aði ég að dvöl mín á Íslandi yrði styttri, en eftir því sem tím­inn leið, ár eftir ár, gekk allt vel. Ég gat lifað góðu lífi hér. Fólkið var gott, alltaf til­búið að hjálpa, aldrei nein vanda­mál. Ég fann aldrei fyrir neins konar óör­yggi,“ segir Ifet.

Eig­in­kona hans, Zuhrijeta Mešetović, og börn þeirra tvö komu til Íslands hálfu ári síðar eftir að honum hafði verið tryggð vinna og aðstaða hjá knatt­spyrnu­fé­lag­inu Leikni Fáskrúðs­firði.

Ifet rifjar upp að fyrstu árin hafi fjöl­skyldan þurft að end­ur­nýja dval­ar­leyfi sitt árlega áður en hún fékk var­an­legt leyfi.

„Vinur minn samdi um að við kæmum til Fáskrúðs­fjarðar, að ég myndi spila fót­bolta fyrir Leikni í þriðju deild og fólk hjá bænum og félag­inu lof­aði að ég stæði mig sem leik­maður og í vinnu þá yrði fjöl­skyldan sótt. Og það var algjör­lega staðið við það.“

Hann segir flutn­ing­inn til Íslands hafa markað nýtt upp­haf eftir erfið ár á Balkanskaga í kjöl­far stríðs­ins í Bosníu en þar hafði hann verið atvinnu­maður í knatt­spyrnu.

„Enginn gat trúað því, ekki einu sinni ég sjálfur, að ég gæti byrjað nýjan feril orð­inn 36 ára gam­all. Það var ekki fer­ill þar sem ég skrif­aði undir atvinnu­samn­ing, en ég bjó mér til nýjan feril í líf­inu. Mér fannst eins og ég hefði unnið í lottói. Á þessum tíma, eftir stríðs­á­tökin í Bosníu og Her­segóvínu, að koma til svona fal­legs, frið­sæls, stöðugs lands, að fá strax papp­íra og atvinnu­leyfi, að vera ekki háður neinum, að geta lifað og starfað eðli­lega, að geta komið með fjöl­skyld­una - það er mér meira virði en stóri pott­ur­inn í lottó­inu,“ segir Ifet um komu sína til Íslands.

Knatt­spyrnu­fer­ill hans stöðv­að­ist um tíma þegar stríðið hófst árið 1992 og heima­bær hans varð her­tek­inn. Fjöl­skyldan neydd­ist til að yfir­gefa heim­ili sitt og gat ekki snúið aftur fyrr en fimm árum síðar.

„Í Bosníu og Her­segóvínu hófust stríðs­á­tökin árið 1992 og þá byrj­aði fólk að skipt­ast eftir þjóð­erni. Við vorum neydd til að yfir­gefa heim­ili okkar. Við bjuggum um 10 kíló­metra frá víg­lín­unni sem skildi að tvær stríð­andi fylk­ingar. Ég kom ekki í húsið mitt í fimm ár.“

Þegar fjöl­skyldan sneri loks aftur heim eftir und­ir­ritun Dayton-frið­ar­sam­komu­lags­ins árið 1997 hafi aðkoman verið átak­an­leg.

„Snemma árs 1997 var Dayton-sam­komu­lagið und­ir­ritað og þá komum við fyrst aftur heim og það sem við sáum var slá­andi. Þá kom ég inn í húsið mitt og vildi hvergi ann­ars staðar vera. Það var vetur þegar við gengum heim, um 7-8 kíló­metra. Við áttum ekk­ert á þeim tíma. Tengda­faðir kon­unnar minnar gaf okkur málm­ofn, við settum teppi fyrir glugga og girtum fyrir úti­dyrnar til að dýr kæmust ekki inn. Svona bjuggum við í nokkurn tíma áður en við byrj­uðum end­ur­bæt­urnar,“ segir hann.

Ifet segir að það hafi verið stór ákvörðun að flytja til lands sem hann þekkti lítið sem ekk­ert til.

„Það var mikið að hugsa um. Hugsið ykkur að flytj­ast til lands sem þú finnur ekki einu sinni á korti. Það er stórt skref að ákveða slíkt. En miðað við ástandið eftir stríð held ég að maður hafi ekki haft mikið val,“ segir hann.

Hann við­ur­kennir að fjöl­skyldan hafi saknað hins bosn­íska sam­fé­lags­anda, fjöl­skyldu­lífs­ins og mann­lífs­ins á götum úti, en segir jafn­framt að Ísland hafi gefið þeim öryggi og tæki­færi.

„Við sökn­uðum bosn­íska hug­ar­fars­ins. En maður veit að maður getur ekki fengið allt. Það þarf að fórna mörgu ef maður vill ná árangri. Að þurfa að takast á við vanda­mál og allt mögu­legt. Ég þakka þessu fólki fyrir að taka á móti mér svona, því við erum jú útlend­ingar. Að mínu mati er Ísland para­dís á jörðu.“

Fyrstu kynni hans af Íslandi voru þó nokkuð dramat­ísk. Þegar hann lenti á Íslandi í maí árið 2002 rigndi mikið og ferðin austur á firði virt­ist honum enda­laus.

„Það var maí og það rigndi.. Þá spurði ég kon­una mína hvort him­inn­inn gréti því ég hefði yfir­gefið landið mitt? Þá hataði ég sjálfan mig fyrir að neyð­ast til að fara svona langt, en ég var með ákveðið mark­mið.“

Dvölin sem átti upp­haf­lega að vara í eitt til tvö ár hefur nú staðið yfir í 24 ár.

„Ég sagði við sjálfan mig að við yrðum í 1-2 ár, en að lokum höfum við verið hér í 24 ár.“

Lengri útgáfa birt­ist í Aust­ur­glugg­anum. Hægt er að panta áskrift hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu