Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Ég fékk fullt af nei-um“

Sá fljót­lega að það er alið upp í konum að útlit sam­svari virði

„Ég fékk fullt af nei-um“
„Ég vann á dag­inn og þegar dóttir mín var sofnuð vann ég í að búa til þá aðferð sem heill­aði mig og úr varð The Viking Method. Mynd: Hjördís Bjarnadóttir

Svava Sig­berts­dóttir einka­þjálf­ari er nú flutt heim eftir 22 ár í London en hún hefur verið að gera góða hluti með æfinga­prógrami sínu The Viking Method. Í gegnum tíð­ina hefur hún þjálfað stór­stjörnur á borð við Nicole Scherzinger, Amanda Holden og fyr­ir­sæt­una Suki Waterhouse. Árið 2019 gaf hún út bók­ina The Viking Method sem hefur heldur betur slegið í gegn. Nú er hún að fara af stað með nýtt pró­gramm sem lofar mjög góðu.

Svava er alin upp í Árbænum og seg­ist alltaf hafa verið mjög mikið í íþróttum og tóm­stundum og þá helst í fót­bolta, hand­bolta, dansi og kickboxi. Hún elskar að læra nýja hluti og stunda nýja hreyf­ingu. „Þegar ég var 24 ára fór ég í söng­leikja­nám til London í þrjú ár. Ég heill­að­ist svo af London að eftir það ákvað ég að flytja alfarið út með dóttur mína sem ég eign­að­ist þegar ég var 18 ára. Ég fann það svo að námi loknu að mig lang­aði svo miklu meira að vinna við hreyf­ingu og að hjálpa fólki að líða vel í sínum eigin lík­ama og huga.“

Fyrstu árin var hún í námi með vinnu og tók einka­þjálf­ar­ann, nær­ing­ar­fræði og jóga­kennar­ann. „Ég byrj­aði að vinna sem þjálf­ari og sá fljót­lega að það er alið upp í konum að útlit sam­svari virði þeirra. Og ekki bara útlit, heldur mjög ákveðið útlit, útlit sem sam­fé­lagið segir að sé aðlað­andi. Og ef þú ert ekki akkúrat með það, ertu minna virði. Þetta getur svo stjórnað því hvernig við lítum á okkur sjálfar og metum okkar eigin lík­ama.“

Í kjöl­far þess lang­aði Svövu að athuga hvort hún gæti hannað heilsu­m­eð­ferð sem sner­ist á engan veg um ytra sam­þykki, heldur ein­ungis um innri vellíðan. „Ég vann á dag­inn og þegar dóttir mín var sofnuð vann ég í að búa til þá aðferð sem heill­aði mig og úr varð The Viking Method. Ég átti ekk­ert á þessum tíma, við vorum bara tvær, ég og dóttir mín, í landi þar sem ég hafði enga fjöl­skyldu, þekkti engan og hafði engin sam­bönd né tengsla­net.“.

Ég fékk fullt af nei-um

Það er alltaf þess virði að spyrja og halda áfram að spyrja þar til þú færð já, sem ég svo byrj­aði að fá frá öllum: rækt­inni, frétta­fólki og frægu fólki, segir Svava um prógram­mið sitt.

Það sem Svava bjó að var trúin á eigin getu og svo átti hún lausan tíma á kvöldin sem hún gat nýtt í þessa hug­mynda­vinnu. „Og það er nóg í byrjun. Það er ekki hægt að bíða þar til maður hefur meira eða bíða eftir hinum full­komna tíma. Maður byrjar þar sem maður er með það sem maður hefur. Og rest­ina lærir maður á leið­inni.“

Eftir að hún setti upp The Viking Method var mesta vinnan í raun­inni eftir, það var að koma þessu áfram og kynna með­ferð­ina. „Þú getur verið með frá­bæra vöru, en ef eng­inn veit af henni þá er eins og hún sé ekki til. Þannig eyddi ég mörgum mán­uðum í að tala við lík­ams­rækt­ar­fröm­uði, senda tölvu­pósta á fjöl­miðla­fólk til að fá umfjöllun og hafa sam­band við þekkt fólk til að fá að þjálfa það. Ég fékk fullt af nei-um, sem ég var alveg ókei með, af því að það versta sem þú færð er nei. Það er alltaf þess virði að spyrja og halda áfram að spyrja þar til þú færð já, sem ég svo byrj­aði að fá frá öllum: rækt­inni, frétta­fólki og frægu fólki.“

Fylla þig af sjálfri þér

„Fjöl­miðla­fólk kom á æfingar til mín og þjálf­aði með mér ókeypis í marga mán­uði“

Eftir mikla mark­aðsvinnu byrj­aði Svava að þjálfa stjörnur á borð við Nicole Scherzinger, Suki Waterhouse og Amöndu Holden. „Ég var að þjálfa fólk í The Viking Method einka­þjálfun og bjó til online prógröm. Eft­ir­spurnin jókst smátt og smátt á þessum tíma og með auk­inni þátt­töku fór orðið að ber­ast á milli manna um ágæti þess­arar með­ferðar á lík­ama og sál. Fjöl­miðla­fólk kom á æfingar til mín og þjálf­aði með mér ókeypis í marga mán­uði og gerði svo grein fyrir því hverju aðferðin væri að skila sér. Ég gerði lítið annað á þessum árum en að vinna og vera með dóttur minni og hef reyndar alltaf elskað það; að sjá hve vel fólki líður eftir æfing­arnar.

Í dag þjálfar Svava fólk út um allan heim. „Ég hef ferð­ast á heilsu­há­tíðir, ég fór til Tyrk­lands og vann þar með Hummel í heilsu­aug­lýs­inga­her­ferð. Ég hef unnið með the North face, MTV, Victoria´s Secret, Lulu Lemon og fleirum. Fyrir nokkrum árum gaf bóka­út­gáfan Penguin The Viking Method bók­ina út á heims­vísu. The Viking Method snýst ekki um að líta út á ein­hvern ákveð­inn hátt. Hún snýst meira um að líða á ákveð­inn hátt og um að bæta stans­laust við sig góðum hlutum. Og að FYLLA ÞIG AF SJÁLFRI ÞÉR. Við erum yfir­full af nei­kvæðum sjálfs- og lík­ams­skoð­unum, álitum ann­arra, lágu sjálf­mati og full­komn­un­ar­áráttu sem kemur ekki frá okkur. Við bjuggum þetta ekki til, heldur hefur þessum nei­kvæðu sjálfs­við­horfum verið plantað í okkur frá því við fæð­umst. Þannig að með þess­ari aðferð erum við að taka stjórn­ina til baka. Henda út því sem er ekki að gera neitt fyrir okkur og ákveða sjálf hvað við viljum fylla okkur með. Það sem við trúum um sjálf okkur ræður hegðun okkar. Við erum að taka lygarnar út sem við fengum að utan.“

Svava vill að við hugsum um okkur eins og við værum Víkingar. „Ég flutti nýlega aftur heim eftir 22 ár í London. Dóttir mín er að eign­ast dóttur en hún flutti heim fyrir þremur árum út af vinnu sem hún fékk á Íslandi eftir að hún kláraði háskóla­námið sitt í London. Og það er engin staður sem ég myndi frekar vilja vera á en með þeim.“

Algjört bull

„Ég hef svo oft verið spurð út í þetta í við­tölum, hvað konur eigi að gera til að fá lík­ama eins og Nicole Scherzinger, og ég HATA þessa spurn­ingu.“

Síðustu miss­eri hefur Svava verið að vinna að nýju prógrammi. „Ég er búin að vera með konur í þjálfun hjá mér í nýja prógramm­inu og ætla mér að halda áfram með það með konum hér á Íslandi; sem ég er svo spennt fyrir. Og öll hug­mynda­fræði The Viking Method er í því. Þetta pró­gramm kall­ast Per­sónu­lega prógram­mið. Það er algjör­lega ein­stak­lings­bundið og mjög per­sónu­legt sem bygg­ist þannig á að þú átt að geta vel ráðið við það.

Aðal­á­stæðan fyrir því að konur gef­ast upp er ekki af því að þær eru ekki með nógu mik­inn aga. Það er heldur ekki út af því að þær séu „of góðar við sig“ eða veik­geðja, eða að ástæðan sé ein­hver aum­ingja­skapur. Það er ekk­ert rangt við einn eða neinn. Út af þessum stans­lausa hávaða frá umheim­inum um að konur eigi, verði, að líta út á ein­hvern ákveð­inn hátt eru konur oft að setja sér röng mark­mið. Ég hef svo oft verið spurð út í þetta í við­tölum, hvað konur eigi að gera til að fá lík­ama eins og Nicole Scherzinger, og ég HATA þessa spurn­ingu. Þessi stans­lausi sam­an­burður sem verið er að setja á okkur er svo óhollur að segja að lík­ami hennar eigi að vera eitt­hvað mark­mið fyrir okkar lík­ama. Það er algjört bull. Við erum allar með mis­mun­andi lík­ama. Engir tveir lík­amar eru eins. Þú gætir búið með Nicole, gert nákvæm­lega allt það sama og hún gerir, og þú myndir ekki fá eins lík­ama og Nicole. Af því að engin getur verið með lík­ama eins og Nicole nema Nicole. Af því að það er hennar lík­ami. Alveg eins og það getur engin verið með lík­amann þinn nema þú.“

Rangt markmið

„Það er ekk­ert að þér og þínum lík­ama.“

Svava vill end­ur­for­rita það hvernig við setjum okkur mark­mið. „Röngu mark­miðin eru að lík­am­inn þinn verði að líta út á mjög ákveð­inn hátt til að þú getir verið sátt við þinn lík­ama, og/eða þú þarft að sjá ákveðna tölu á vigt­inni til að þú getir verið sátt við þinn lík­ama. Og þegar þú ert með þessi mark­mið, þá ertu að koma frá stað sem segir að þinn lík­ami sé „rangur“, að þú þurfir að taka eitt­hvað af þér eða frá þér. Þegar þú kemur frá þeim stað sérðu ekk­ert af því góða sem þú ert að fá með því að æfa, sérð ekk­ert af því jákvæða, aðeins að þú ert ekki enn með lík­amann sem þú þarft að hafa og ert ekki í þyngd­inni sem þú vildir vera í. Að æfa verður að refs­ingu fyrir það; þú ert ekki nógu góð eins og þú ert og þú þarft að æfa til að breyta því. Leiðin er allt eða ekk­ert. Það er ekk­ert hægt að setja þak á „allt.“. Þú ert aldrei að gera nóg og gætir alltaf gert meira. Engin getur haldið þessu áfram til fram­búðar. Þarna gef­ast konur upp, auð­vitað, og kenna sér svo um. Ástæðan er ekki, sem það er, að mark­miðið og planið voru röng, heldur er ástæðan að þær eru ekki nógu agaðar, nógu öfl­ugar, nógu góðar. Þessi fer­ill er svo end­ur­tek­inn aftur og aftur. Af því að ranga mark­miðið og ranga planið eru alltaf end­ur­tekin. Í Per­sónu­lega prógramm­inu hjá mér hendum við þessu í ruslið. Við erum að koma frá allt öðrum stað, með mark­mið og plan sem er rétt. Það er ekk­ert að þér og þínum lík­ama. Það eina sem við erum að gera er að bæta við þig. Það er EINA mark­miðið. Bæta við þig styrk, bæta við þig krafti, snerpu, jafn­vægi, lið­leika og sam­hæf­ingu, og þegar þú kemur frá þeim stað sérðu allt í jákvæð­ara ljósi. Alla öfl­ugu við­bæt­ing­una í hvert ein­asta skipti sem þú æfir og það er svo geggjað að upp­lifa það.

Það fyrsta sem ætl­ast er til í nýju aðferð­inni er að hitt­ast. „Eftir að kona skráir sig í prógram­mið, það fyrsta sem við gerum er að við hitt­umst. Við ræðum um allt sem við­kemur henni. Hennar sam­band við sjálfa sig, sinn lík­ama, hennar líf, hennar sjálfs­á­lit og skoð­anir, hvaðan þær koma og hvaða áhrif þær hafa haft, á ALLT. Við förum saman yfir hennar viku­legu lífs­rútínu, því að allir hafa mis­mun­andi tíma. Þú gætir haft 30 mín á mánu­degi, 20 mín á fimmtu­degi og 60 mín á laug­ar­degi til að æfa. Allir eru mis­mun­andi. Sér­stak­lega þegar þú ert að byrja á ein­hverju nýju, verður það að vera auð­velt að gera. Ég hanna sér­hæft plan með allt þetta í huga. Það sem ég set upp er það eina sem hún á að gera. Ekkert meir. „Allt“ er með þaki. Prógram­mið kemur svo bæði með hennar per­sónu­lega lík­am­lega æfing­ar­prógrammi og einnig, sem er það mik­il­væg­asta, af því það stjórnar svo hvað við gerum, með mynd­böndum sem eru fyrir hana per­sónu­lega til að bæta sam­bandið við sjálfa sig, bæta sjálfs­traustið, sjálfs­virð­ing­una, innri styrk, kraft og vin­gjarn­leika. Við erum að FYLLA OKKUR AF OKKUR SJÁLFUM. Þetta er þitt líf. Tími til kom­inn að taka risa pláss í því. Þú finnur Per­sónu­lega Prógram­mið inni á vef­síð­unni www.thevikingmethod.co.uk

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu