Inga Sæland á í mestu vandræðum með að standa við það loforð til strandveiðisjómanna að þeir fái að halda út að minnsta kosti í 48 daga í sumar. Í fyrra var loforðið svikið en í ár var bætt nokkur þúsund tonnum í pottinn. Það var reyndar gert með því að „taka veiðiheimildir að láni“ en þær þarf að borga til baka á næstu árum úr sama potti.
Ekki er talið að það dugi til að uppfylla loforð formannsins og viðbúið að veiðar verði stöðvaðar áður en dagafjöldinn næst. Hluti vanda Ingu er að Hanna Katrín Friðriksson ráðherra sjávarútvegsmála virðist áhugalítil um að uppfylla loforðið góða ...































Athugasemdir