Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Til í næstum hvaða ævintýri sem er“

Alltaf líf og fjör í kringum Snærósu

„Til í næstum hvaða ævintýri sem er“
Snærós Sindra­dóttir varð stjúp­móðir um tví­tugt og móðir 22 ára. Mynd: Í einkaeigu

Blaða­maður heyrði stutt­lega hljóðið í Snærósu Sindra­dóttur þar sem hún sat á huggu­legu kaffi­húsi í pínu­litlu þorpi á Spáni með lítið sem ekk­ert 5G-net­sam­band. Þó að Snærós sé víð­förul á hún sterkar rætur að rekja heim til Íslands. Hún seg­ist koma úr Vest­ur­bænum með við­komu á Vest­fjörðum. Þá er hún tengda­dóttir Skaga­fjarðar með ættir að rekja úr Þing­eyja­sýslu, Hruna­manna­hreppi, Snæ­fells­nesi og að sjálf­sögðu úr miðbæ Reykja­víkur eins og hún orðar það.

Snærós bar mikla ábyrgð ung. Eins og hún var dóttir tveggja ung­linga sem hún segir að hafi mótað sig heil­mikið varð hún sjálf stjúp­mamma um tví­tugt og móðir 22 ára. Í dag er hún galler­isti í SIND gall­ery í krafti þess að hafa menntað sig í list­fræði og stjórnun. Ásamt þessu sinnir hún starfi fram­kvæmda­stjóra Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar og er sjálf­stæður ráð­gjafi um almanna­tengsl og fjöl­miðla­fram­komu.

Snærós hefur nóg á sinni könnu eins og sjá má, en ein­hvern veg­inn finnur hún sér alltaf tíma til að bæta við sig fleiri verk­efnum. Hún hefur starfað sem háskóla­kenn­ari og kennt fjöl­miðlun á Íslandi og í Ung­verja­landi. Einnig vann hún sjálf 12 ár í fjöl­miðla­brans­anum, í þeim ástríðu­bransa, eins og hún kallar hann.

Það er alltaf líf og fjör í kringum Snærósu og hún elskar tón­list þar sem hún getur dansað og sungið með. Þá seg­ist hún vera mik­ill kokkur og elskar elda­mennsku sem dregst á lang­inn með vín­drykkju og trúnó. Umfram allt er hún kona sem elskar vini sína og fjöl­skyldu og það sem kemur alls ekki á óvart, þá elskar hún að hafa mikið að gera. Því þá upp­sker maður oft­ast ríku­lega, segir hún kampa­kát í sól­inni á Spáni.

Er önnur manneskja eftir að hún kom heim

„Ég varð vör við miklu þétt­ara og sam­ofn­ara sam­fé­lag úti en ég hef upp­lifað á Íslandi“

Hvernig var að búa í Ung­verja­landi? „Mín bestu ár. Búdapest er algjör perla í Evrópu, stút­full af menn­ingu og rík af ánægju­legri afþr­ey­ingu, veit­inga­stöðum og almenn­ings­görðum. Umfram allt eign­uð­umst við vini þarna fyrir lífs­tíð og lærðum alls konar sam­skipti en það sem fyr­ir­finnst í íslenskum lok­uðum vina­hópum. Ég er önnur mann­eskja eftir að ég kom heim, miklu opn­ari og hlýrri við fólk held ég.“

Hvernig voru flutn­ing­arnir heim og er eitt­hvað þaðan sem þú saknar? „Ég sakna Búdapest dag­lega. Mest sakna ég útsýn­is­ins úr íbúð­inni minni, sem ég gat dvalið enda­laust við, og þess að taka virkan þátt í hlýja hverf­is­sam­fé­lag­inu okkar.

Ég sakna þess að hjóla í skól­ann við bakka Dónár og þess að setj­ast á upp­á­haldsveit­inga­stað­ina okkar eftir langa daga í „thrift búðum“ að grafa eftir ger­semum. Ég sakna þess líka að slá um mig á þeirri litlu ung­versku sem ég lærði og að fá fjöl­skyld­una í langar heim­sóknir.“

Gætum við Íslend­ingar lært eitt­hvað af Ung­verjum?

„Já, sam­kennd. Ég varð vör við miklu þétt­ara og sam­ofn­ara sam­fé­lag úti en ég hef upp­lifað á Íslandi. Stundum jaðrar hún við afskipta­semi en er alltaf gerð af hlý­hug og vel­vilja. Ung­verjar snyrta til í kringum sig vit­andi að ef aðrir gera það sama og þar með glansar nærum­hverfið. Þeir buðu okkur alveg ofboðs­lega vel­komin og tóku svo vel utan um okkur að við roðn­uðum niður í tær.“

Hugmyndin vaknaði í Búdapest

„Ég varði 10 mán­uðum í að und­ir­búa opn­un­ina“

Þú varst að opna lista­gall­erí, gæt­irðu sagt mér aðeins meira frá því og hvernig sú hug­mynd kom upp?

„Hug­myndin að SIND gall­ery vakn­aði í tíma í Búdapest og kom til mín nán­ast full­mótuð. Ég varði 10 mán­uðum í að und­ir­búa opn­un­ina, setja upp dag­skrá fyrsta árs­ins, safna pen­ingum, finna hent­ugt hús­næði og panta ljós og annan búnað í rýmið sem ég hann­aði í nýbygg­ingu við Hring­braut í Vesturbæ. Það hefur gengið vonum framar að reka SIND og eftir tæpt ár í rekstri held ég að hægt sé að full­yrða að gall­er­íið mitt sé komið á kortið. Nýlega lauk sjö­undu sýn­ingu þess og nú tekur við smá sum­ar­lokun þar til ég opna aftur 11. sept­em­ber. Ég hlakka mjög til næsta sýn­ing­ar­árs og þess að sjá hvernig mark­að­ur­inn tekur í verk þeirra lista­manna sem þá opna sýn­ingar hjá mér.

Til í næstum hvaða ævin­týri sem er

„Raunar veit ég ekk­ert hvað tekur við 1. sept­em­ber en sit við sím­ann og er til í næstum hvaða ævin­týri sem er.“

Þú varst ráðin fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­hreyf­ing­ar­innar á Íslandi. Gætirðu sagt mér í hverju starfið felst?

„Í hverju felst það ekki? Ég hef sinnt hálfu starfi fram­kvæmda­stjóra sam­hliða öllu öðru í vetur sem hefur bæði verið lær­dóms­ríkt og gef­andi. Eftir 12 ár í fjöl­miðlum var ég ekki alveg til­búin að gefa það upp á bát­inn að hafa fingraför mín í dæg­ur­mál­unum og póli­tík­inni. Þegar ég þáði boð um þetta góða starf átti ég þó ekki von á því að augna­bliki síðar yrði sett á þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um aðild­ar­við­ræður Íslands að ESB. Það hentar mér ákaf­lega vel að hvetja fólk til þess að segja Já í ágúst enda að upp­lagi mjög jákvæð kona.“

Hvernig finnst þér umræðan um Evr­ópu­málin hafa verið upp á síðkastið og hvað finnst þér að betur mætti fara?

„Hún hefur auð­vitað verið alls konar. Ég hef vandað mig við að tala vel um alla og segja ekk­ert nema sann­leik­ann. Hið sama á ekki við um alla og því miður hefur óþarf­lega mik­ill tími farið í að leið­rétta rang­færslur, lygar og útúr­snún­inga þeirra sem vilja ekki að þjóðin semji við ESB og taki svo afstöðu til þess samn­ings til hags­bóta fyrir almenn­ing. Það mætti betur fara.“

Næst á döf­inni hjá Snærósu er þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan 29. ágúst. „Ég vakna um miðjar nætur til að bæta atriðum á verk­efna­list­ann og fá nýjar hug­myndir inn í kosn­inga­bar­átt­una fyrir Já-inu. Raunar veit ég ekk­ert hvað tekur við 1. sept­em­ber en sit við sím­ann og er til í næstum hvaða ævin­týri sem er.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu