Hópslysaáætlun var virkjuð í morgun eftir að rúta valt í Suðursveit. Útkallið barst klukkan 10:15 og fyrstu viðbragðsaðilar komu á vettvang skömmu fyrir klukkan 11.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu voru þrettán manns um borð í rútunni þegar slysið varð. Sex eru slasaðir en enginn er talinn vera í lífshættu.
Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfesti upplýsingarnar í samtali við RÚV.
Þjóðveginum hefur verið lokað á slysstað á meðan viðbragðsaðgerðir standa yfir og lögregla sinnir vettvangsrannsókn.
Lögreglan hefur jafnframt óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæsla Íslands, sem er á leið á vettvang. Björgunarsveitir á Suðurlandi hafa einnig verið settar í viðbragðsstöðu vegna slyssins.





















Athugasemdir