Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna

Vís­inda­maður varar við versn­andi sjó­gæðum við Kanarí­eyjar

Sjórinn við Kanaríeyjar getur ógnað heilsu ferðamanna
Skólp í sjó Varla vill nokkur mann­eskja synda í þessu? Mynd: Trausti Hafsteinsson

Einn fremsti haf­vís­inda­maður Kanarí­eyja varar við því að versn­andi sjó­gæði við strendur eyj­anna séu orðin vax­andi ógn, ekki aðeins fyrir líf­ríki hafs­ins heldur einnig heilsu íbúa og ferða­manna. Hann hvetur stjórn­völd til taf­ar­lausra aðgerða.

Ricardo Haroun, for­stöðu­maður ECOAQUA-rann­sókna­stofn­un­ar­innar við háskól­ann á Gran Canaria, segir að óhreinsað skólp sem berst í sjó­inn og aukið magn salt­pækils frá sjó­af­sölt­un­ar­stöðvum hafi „alvar­legar afleið­ingar“ fyrir vist­kerfi hafs­ins.

Að sögn Harouns hefur versn­andi vatns­gæði við strendur ekki aðeins áhrif á líf­fræði­lega fjöl­breytni og þau gæði sem haf­svæðin veita, heldur geti þau einnig haft áhrif á heilsu þeirra sem baða sig í sjónum, bæði heima­manna og þeirra millj­óna ferða­manna sem heim­sækja strendur eyj­anna ár hvert.

Hann segir brýnt að stjórn­völd á Kanarí­eyjum geri með­höndlun skólps og salt­pækils að for­gangs­máli og móti mark­viss­ari lang­tíma­stefnu í umhverf­is­málum.

Við­vör­unin kemur í kjöl­far vax­andi áhyggja af sjó­gæðum við Kanarí­eyjar. Und­an­farið hefur þurft að loka nokkrum bað­ströndum vegna bakt­er­íu­meng­unar og aukin athygli hefur beinst að með­höndlun frá­veitu á eyj­unum.

Vara við áhrifum afsöltunar

Haroun lét þessi orð falla á fyrsta svæð­is­fundi vís­inda­ráða líf­hvolfs­svæða Kanarí­eyja sem hald­inn var í Puerto del Rosario á Fuer­teventura.

Hann segir nú þegar til staðar nýja tækni sem geti dregið veru­lega úr, eða jafn­vel komið í veg fyrir losun meng­andi efna í sjó. Slíkar lausnir gætu jafn­framt skapað ný störf innan svo­kall­aðs „blás hag­kerfis“, sem byggir á sjálf­bærri nýt­ingu hafs­ins.

Haroun bendir einnig á að bæði evr­ópskir styrkir og einka­fjár­fest­ingar séu í boði til að end­ur­nýja frá­veitu­kerfi og afsölt­un­ar­stöðvar.

Sjávargróður hverfur

Á fund­inum bentu vís­inda­menn á að hnignun líf­fræði­legrar fjöl­breytni í haf­inu væri eitt stærsta umhverf­is­vanda­mál Kanarí­eyja. Þar væri ófull­nægj­andi með­höndlun skólps og aukin losun salt­pækils meðal helstu orsaka.

Þótt hluti frá­rennsl­is­ins sé lög­legur segir Haroun að annað sé ólög­legt og að hvort tveggja geti valdið umhverf­is­spjöllum ef ekki sé rétt staðið að málum.

Sér­stak­lega hafi sjáv­ar­gras­breiður, svo­kall­aðir sebada­les, orðið illa úti. Haroun segir stór hluti þess­ara vist­kerfa hafa horfið á síð­ustu ára­tugum vegna skólp­meng­unar og síðar vegna auk­innar los­unar salt­pækils.

Þessar sjáv­ar­gras­breiður gegna mik­il­vægu hlut­verki sem upp­eldis- og hrygn­ing­ar­svæði fjöl­margra sjáv­ar­teg­unda, þar á meðal nytja­fiska sem eru und­ir­staða hefð­bund­inna fisk­veiða á Kanarí­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife