Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin

Stofnaði síðar mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í Kenýa og rekur það enn

Bjó í Afríku og Asíu til að komast í bestu fíkniefnin
Ólafur Hall­dórs­son Ólafur hefur átt ótrú­legt lífs­hlaup Mynd: YouTube-skjáskot

Ólafur Hall­dórs­son sneri lífi sínu á hvolf þegar hann var á bak­poka­ferða­lagi um Afríku, sem end­aði með því að hann stofn­aði mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili í Kenýa sem hann rekur enn. Ólafur, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur átt ótrú­legt lífs­hlaup, sem meðal ann­ars leiddi hann til Marokkó og Pakistan til þess að kom­ast í hrein­ustu fíkni­efni heims á meðan hann var í neyslu í áraraðir. Hann seg­ist nú þakk­látur fyrir allt það sem lífið hefur gefið honum:

„Ég fór á sjó­inn mjög ungur eftir að hafa hætt í Haga­skóla og 13-14 ára gam­all var ég bara kom­inn inn heim neysl­unnar. Ég var föð­ur­laus og sjó­ar­arnir voru í raun mín föð­urí­mynd og ég tók við því sem þeir réttu mér. Hvort sem það voru síga­réttur, áfengi eða annað. Þannig að ég var byrj­aður að drekka illa strax 13 ára gam­all, kom­inn í hassið 14 ára og ég var far­inn að sprauta mig 15 ára gam­all,” segir Ólafur, sem lifði og hrærð­ist í heimi fíkni­efna í áraraðir: 

„Ég var til skiptis á sjónum eða á flakki um heim­inn í fleiri ár og veit ekki hverjun ég var að leita að, nema bara góðum fíkni­efnum. Þegar ég komst að því að besta hassið væri í Marókkó fór ég þangað í margar ferðir og bjó þar til að vera nálægt besta efn­inu. Síðan lá leiðin austu á bóg­inn, fyrst til Indlands, en síðar Burma, Kína og Pakistan. Ég var ópíóða­fík­ill í mjög mörg ár og í þessum löndum var hægt að fá bestu efnin mjög ódýrt. Fyrir mér var hrein­lega ekk­ert vit í því að vera í neyslu á Íslandi. Það var skömm yfir þessu hér heima, efnin miklu verri og allt of dýr. Það var auð­veld­ara að vera bara einn af öllum hinum fíklunum í þessum löndum og maður hvarf inn í fjöld­ann.”

Eftir áraraðir af mik­illi neyslu komst Ólafur loks­ins á beinu braut­ina, eftir ítrek­aðar til­raunir.

„Ég var á end­anum orðin alæta á allar teg­undir fíkni­efna og á þessum tíma kunni eng­inn á Íslandi að eiga við fíkla sem voru komnir svona langt. Ég komst í með­ferð til Dan­merkur sem ég klúðr­aði illi­lega, en eftir þriðju til­raun byrj­aði eitt­hvað að ger­ast og ég náði að koma mér burt frá sterku efn­unum og áfeng­inu. Það tók lengri tíma að losna alveg við grasið. En það sem við tók var gríð­ar­lega langt frá­hvarfs­tíma­bil með miklum lík­am­legum ein­kennum. Ég var með maga­krampa og haus­verki í heilt ár og ég hélt að það yrði alltaf þannig, en smátt og smátt fór ég að lag­ast. Eitt af því sem hjálp­aði mér var trúin og ég tók út mikið af frá­hvör­f­unum með haus­inn í jörð­inni þar sem ég bað mörgum sinnum á dag.”

Það var svo eftir að Ólafur var laus undan oki fíkni­efn­anna og kom­inn í gegnum þessi miklu frá­hvörf sem köllun lífs hans kom óvænt á ferða­lag­inu um Afríku:

„Ég var upp­haf­lega þarna bara til að ferð­ast og ætl­aði að skoða Afríku betur þegar ég fékk gist­ingu á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili nálægt Vikt­or­íu­vatni. Ég vakn­aði umkringdur vannærðum og illa höldnum börnum. Ég hef stundum sagt að ég hafi ein­fald­lega fengið köllun. Ég átti í raun ekk­ert val eftir að þessi hug­mynd var komin í haus­inn á mér. Það var einn lít­ill strákur frá Uganda sem algjör­lega töfraði mig og eftir það var ekki aftur snúið. Ég hætti við öll frek­ari áform um ferða­lög og ákvað að nota ferða­pen­ing­inn frekar í að reyna að bæta aðbúnað þess­arra barna. Svo þegar ég kvaddi gerði ég sam­komu­lag við for­stöðu­mann­inn um að ég myndi senda pen­ing í hverjum mán­uði sem færi í morg­un­mat. Skilyrði fyrir því að pen­ing­ur­inn færi þangað var að aldrei yrðu lagðar hendur á börnin, sem er því miður allt of algengt. Árið eftir kom ég aftur og sá þá strax að pen­ing­ur­inn var ekki að fara í rétta hluti og með­ferðin á börn­unum var ekki nógu góð. Þá fann ég að ég yrði að gera eitt­hvað í þessu sjálfur og taka málin bara í mínar hendur, af því að það var ekki val fyrir mig að yfir­gefa bara þessi börn án þess að gera neitt í mál­unum. Ég man að ég sagði við sjálfan mig:

„Ef þú gerir ekk­ert í þessu skalt þú hundur heita,”

Það sem þarna gerð­ist var svo djúp­stætt að eftir það var aldrei aftur snúið og hann hefur ákveðið að helga líf sitt mun­að­ar­leys­ingja­heim­il­inu sem er rekið undir nafn­inu Björt Sýn:

„Ég hef lík­lega verið í hálf­gerðu geð­rofi þegar ég ákvað að gera þetta og í raun er ótrú­legt að ég hafi náð að koma þessu í gegn af því að ég vissi ekk­ert hvað ég var að fara út í. Ég náði að fá öll leyfi til þess að stofna mun­að­ar­leys­ingja­heim­ili sjálfur án þess að múta neinum, sem þykir merki­legt í þessum heims­hluta. Rekstur á mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilum er því miður oft á tíðum bara stór bis­ness í þriðja heim­inum. Þá er eng­inn hvati að ná að bæta aðbúnað barn­anna eða koma þeim út í lífið. Dæmið gengur bara út á að sýna illa haldin börn og fá reglu­legt fjár­magn sem fer síðan bara í allt aðra hluti en það sem þeir eiga að fara í. Ég hafði fengið sann­girn­is­bætur vegna slæmrar með­ferðar og ofbeldis sem ég sætti sem barn í Landa­kots­skóla. Það kom sér vel að geta nýtt stóran hluta af þeim í að byggja upp mun­að­ar­leys­ingja­heim­ilið og það var í raun það sem gerði mér kleyft að láta þetta ger­ast. Mér fannst það tákn­rænt eftir mína æsku að geta notað þetta fjár­magn fyrir börnin í Kenýa. Það hefur tekst núna að búa til betra líf fyrir um 70 börn sem eru þarna núna og það er alveg frá­bært. Þetta starf hefur gefið mér alvöru til­gang í fyrsta skipti á ævinni. Ég hef ekki lengur tíma til að vera fastur í eigin rassi dag­inn út og inn, af því að núna er eitt­hvað mik­il­væg­ara sem þarf að gera. Það er engin smá gjöf sem ég hef fengið til baka frá þessum börnum. Rekst­ur­inn er stundum erf­iður frá mán­uði til mán­aðar, en sem betur fer hefur verið að koma fjár­magn úr alls kyns áttum á Íslandi og ég er alltaf jafn­þakk­látur fyrir það.”

Hægt er að nálg­ast við­talið við Ólaf og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu