Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

Lögmaður Trump segir kröfur BBC um afhend­ingu gagna bæði „íþyngj­andi“ og „allt of víð­tækar“.

Dómari skipar Trump að afhenda gögn
Donald Trump Trump þarf nú að afhenda fjár­hags­gögn Mynd: ANDREW CABALLERO-REYNOLDS / AFP

Dómari í Flórída hefur úrskurðað að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti verði að afhenda fjár­hags­gögn sem BBC hefur farið fram á í tengslum við 10 millj­arða doll­ara meið­yrða­mál sem hann hefur höfðað gegn breska rík­is­út­varp­inu.

Úrskurð­ur­inn var kveð­inn upp við fyrstu fyr­ir­töku máls­ins. Trump höfð­aði málið vegna þátt­ar­ins Panorama, þar sem mis­mun­andi hlutar úr ræðu hans á degi árás­ar­innar á þing­húsið í Washington 6. jan­úar 2021 voru klipptir saman.

Dómarinn Enjoliqué Lett féllst á kröfu lög­manna BBC um að Trump afhendi fjár­hags­gögn sem eru í vörslu Donald J. Trump Revocable Trust, sjóðs sem Trump stofn­aði til að halda utan um við­skipta­hags­muni sína meðan hann gegnir emb­ætti for­seta.

Úrskurð­inum, sem var kveð­inn upp á þriðju­dag í Miami, má enn áfrýja.

BBC vill sönnun fyrir fjárhagstjóni

Ákvörð­unin telst þó ákveð­inn sigur fyrir BBC, sem hefur kraf­ist þess að Trump leggi fram gögn sem styðji full­yrð­ingar hans um að umrædd klipp­ing á Panorama-þætt­inum hafi valdið honum fjár­hags­legu tjóni.

Dómarinn komst jafn­framt að klof­inni nið­ur­stöðu varð­andi aðra kröfu BBC um afhend­ingu gagna sem tengj­ast árásinni á þing­húsið sjálfa.

Málið er nú á svoköll­uðu gagna­öfl­un­ar­stigi, þar sem báðir máls­að­ilar þurfa að afhenda skjöl og önnur gögn sem kunna að verða notuð sem sönn­un­ar­gögn fyrir dómi.

BBC segir Trump hafa afhent aðeins 735 blaðsíður

Lögmenn BBC sögðu fyrir dómi að útvarps­fé­lagið hefði þegar afhent um 87.000 blað­síður af gögnum, á meðan lög­menn Trump hefðu aðeins lagt fram 735 blað­síður.

Þeir héldu því fram að um væri að ræða „sýnd­ar­gagna­af­hend­ingu“, þar sem skjölin væru að mestu frétta­greinar og annað efni sem hefði verið sótt af inter­net­inu.

Lögmaður BBC, Charles Tobin, sagði því að gagna­öfl­unin hefði verið „algjör­lega ein­hliða“.

Lögmaður Trump, Alej­andro Brito, hafn­aði þeirri gagn­rýni og sagði kröfur BBC um afhend­ingu gagna vera bæði „íþyngj­andi“ og „allt of víð­tækar“.

Hann mót­mælti einnig kröfum um gögn sem tengj­ast sam­tölum Trumps við ráð­gjafa sína um árás­ina á þing­húsið, auk stefna sem BBC hefur sent alrík­is­stofn­unum og fyrr­ver­andi emb­ætt­is­mönnum.

Lögmenn Trumps sök­uðu BBC um að stunda svo­kall­aða „veiði­ferð“ (fis­hing expedition) með það að mark­miði að áreita fyrr­ver­andi emb­ætt­is­menn.

Byggja meðal annars á afsökunarbeiðni BBC

Stór hluti mál­flutn­ings lög­manna Trumps sner­ist um bréf sem stjórn­ar­for­maður BBC, Samir Shah, sendi for­set­anum í nóv­em­ber á síð­asta ári.

Í bréf­inu bað Shah afsök­unar á umræddu mynd­skeiði og sagði að það hefði óvilj­andi skapað þá röngu mynd að Trump hefði bein­línis hvatt til ofbeldis.

Brito sagði bréfið fela í sér bæði „við­ur­kenn­ingu“ og „játn­ingu“ af hálfu BBC.

BBC hefur áður farið fram á að mál­inu verði vísað frá og byggir þá kröfu meðal ann­ars á því að Panorama-þátt­ur­inn hafi aldrei verið sýndur í Banda­ríkj­unum. Dóm­stóll­inn hefur enn ekki tekið afstöðu til þeirrar kröfu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife