Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið

Tvær kyn­lífs­verka­konur voru með honum dag­inn sem hann lést

Liam Payne sagður hafa misst stjórn á sér skömmu fyrir andlátið
Liam Payne Liam féll til bana aðeins 31 árs að aldri. Mynd: TOBIAS SCHWARZ / AFP

Liam Payne, fyrr­ver­andi söngv­ari One Direction, á að hafa misst stjórn á sér undir áhrifum áfengis og fíkni­efna á síð­ustu klukku­stund­unum fyrir and­lát sitt. Þetta kemur fram í skýrslum tveggja kyn­lífs­verka­kvenna sem segj­ast hafa verið með honum dag­inn sem hann lést.

Payne, sem var 31 árs, lést 16. októ­ber 2024 eftir að hafa fallið um 14 metra af svölum á þriðju hæð CasaSur Palermo-hót­els­ins í Buenos Aires í Argent­ínu.

Samkvæmt gögnum sem Mail on Sunday seg­ist hafa undir höndum voru kon­urnar, Aldana Serrano og Lucila Goitea, yfir­heyrðar af lög­reglu skömmu eftir and­látið. Þær sögð­ust hafa verið kall­aðar á hót­elið af Payne fyrr um dag­inn og að kyn­mök þeirra hefðu farið fram með sam­þykki allra aðila.

Konurnar sögðu að Payne hefði orðið æ æst­ari þegar honum tókst ekki að greiða þeim umsamda upp­hæð, 5.000 banda­ríkja­dali, jafn­virði um 618.000 króna, þar sem hann hefði ekki haft aðgang að reiðufé.

Þær halda því fram að hann hafi brotið dýrt Rolex-gullúr sitt, sem metið var á um 30 þús­und pund, og sagt að hann gæti „keypt tíu slík úr“. Þá hafi hann slegið sjón­varp hót­el­her­berg­is­ins þrisvar sinnum með hnef­anum.

Að sögn kvenn­anna róað­ist Payne síðar, féll á hnén og bað þær um að vera áfram. Hann hafi sagt að „pen­ingar gerðu hann ekki ham­ingju­saman“, sungið eigin lög undir áhrifum áfengis og síðar beðið þær um kókaín.

Eit­ur­efna­rann­sókn sem gerð var eftir and­látið leiddi í ljós að Payne var með áfengi, kókaín og róandi lyfið Klonopin í blóði sínu þegar hann féll til bana.

Payne hafði verið í Argent­ínu í rúmar tvær vikur á meðan hann beið eftir end­ur­nýjun banda­rískrar vega­bréfs­á­rit­unar. Fyrstu tvær vik­urnar dvaldi hann þar með kær­ustu sinni, Kate Cassidy, og vini sínum Rogelio „Roger“ Nores. Samkvæmt frétt­inni var hann edrú á þeim tíma, en eftir að þau fóru bæði frá Argent­ínu á hann að hafa farið að hegða sér óút­reikn­an­lega.

Hann flutti sig af Park Hyatt-hót­el­inu yfir á CasaSur Palermo eftir að hafa að sögn skemmt hót­el­her­bergi og lent í deilum við starfs­fólk.

Konurnar sögð­ust hafa átt í erf­ið­leikum með sam­skipti við Payne þar sem hann tal­aði aðeins ensku en þær spænsku og því hafi þær not­ast við þýð­ing­ar­for­rit.

Þær sögð­ust hafa dvalið hjá honum í um tvær klukku­stundir áður en þær ósk­uðu á ný eftir greiðslu. Í stað þess hafi hann boðið þeim Rolex-úrið sitt, sem hann hafi síðan brotið þegar þær neit­uðu að taka við því.

Þær yfir­gáfu hót­elið skömmu fyrir klukkan fjögur síð­degis. Samkvæmt frá­sögn þeirra hélt Payne áfram að hegða sér und­ar­lega áður en hann fór aftur inn á her­bergi sitt.

Hann féll til bana klukkan 17:07 sama dag. Konurnar segj­ast ekki hafa vitað af and­láti hans fyrr en þær sáu fréttir af því á sam­fé­lags­miðlum og gáfu síðar skýrslu til lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife