Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Sólmyrkvi á Íslandi: Við erum klár!

Hópur sjálf­boða­liða til taks á Snæ­fells­nesi og Vest­fjörðum

Sólmyrkvi á Íslandi: Við erum klár!
Neyð­ar­varnateymi Rauða kross­ins og fram­kvæmda­stjóri félags­ins æfa sig að nota sól­myrkvagler­augun Rauði kross­inn hvetur fólk til að leggja tím­an­lega af stað Mynd: Rauði krossinn/Davíð Þór

Neyð­ar­varnateymi Rauða kross­ins og hópur sjálf­boða­liða verður í við­bragðs­stöðu vegna sól­myrk­vans 12. ágúst. Flest verða þau til taks á Snæ­fells­nesi og Vest­fjörðum þar sem gert er ráð fyrir að margt ferða­fólk komi saman. Íbúar víða á vest­an­verðu land­inu, lík­lega um 70 pró­sent lands­manna, munu geta notið almyrkva á sólu frá heim­ilum sínum og þurfa því ekki að leggj­ast í ferða­lög. Á öðrum svæðum verður deild­ar­myrkvi.

Rauði kross­inn hefur átt gott sam­starf við aðra við­bragðs­að­ila við und­ir­bún­ing­inn síð­ustu mán­uði og nú hafa allir stillt saman strengi. Meðal verk­efna Rauða kross­ins er að hafa til reiðu sér­út­búnar kerrur með neyð­ar­varna­bún­aði, s.s. beddum og teppum. Einnig verður stórt tjald til taks á sunn­an­verðum Vest­fjörðum sem hægt er að koma fljótt upp.

En fyrir hvað er Rauði krossinn að undirbúa sig sem gæti orðið til þess að nýta þurfi þennan mannskap og búnað?

„Mottó Rauða kross­ins er að vera til­bú­inn að bregð­ast við ef hættu- eða neyð­ar­á­stand skap­ast og fólk þarf af ein­hverjum ástæðum á stuðn­ingi okkar að halda,“ segir Aðal­heiður Jóns­dóttir, teym­is­stjóri neyð­ar­varna hjá Rauða kross­inum. Búast má við því að margt fólk verði á ferð­inni á vest­an­verðu land­inu, að umferð bæði minni og stærri bíla verði mikil og það á svæðum sem eru mörg hver við­kvæm og úr alfara­leið. Umferð verður stýrt á nokkrum svæðum og í ofaná­lag gæti veður með einum eða öðrum hætti haft áhrif á ferða­lög fólks. Þá verða mörg skemmti­ferða­skip úti fyrir vest­ur­strönd lands­ins og umferð loft­fara gæti einnig orðið meiri en venju­lega.

„Ef slys verða eða ann­ars konar áföll henda verður Rauði kross­inn til­bú­inn til aðstoðar og getur komið upp fjölda­hjálp­ar­stöð í tjald­inu eða hent­ugu hús­næði ger­ist þess þörf,“ segir Aðal­heiður. Hún hvetur fólk sem hugsar sér til hreyf­ings að kynna sér skipu­lagða áhorfs­staði í sinni heima­byggð sem og fyr­ir­hug­aðar örygg­is­ráð­staf­anir, svo sem umferð­ar­stýr­ingu sem beitt verður um lengri eða skemmri tíma á ákveðnum svæðum. Ítar­legar upp­lýs­ingar er að finna á vefnum Island.is og á sol­myrkvi2026.is

„Við biðlum til þeirra sem ætla að vera á ferð­inni að leggja tím­an­lega af stað og fara að öllu með gát við þessar óvenju­legu aðstæður svo að sem flest geti notið þessa stór­kost­lega sjón­ar­spils sem almyrk­vinn verður,“ segir Aðal­heiður. „Fólk á far­alds­fæti má búast við því að sitja fast í umferð og ætti að útbúa sig til ferð­ar­innar með það í huga.“

Aðal­heiður ítrekar þau skila­boð sem sett hafa verið fram af yfir­völdum: „Með því að velja hent­ugan stað á eða við heim­ili okkar til að fylgj­ast með almyrk­v­anum getum við í sam­ein­ingu lagt okkar af mörkum við að tryggja almanna­ör­yggi og vernd við­kvæmra svæða.“

Rauði kross­inn hvetur alla sem vilja veita öðrum aðstoð og stuðn­ing til að ger­ast sjálf­boða­liðar hjá félag­inu. Kynntu þér sjálf­boða­liða­störf okkar hér.

FIMM HOLLRÁÐ RAUÐA KROSSINS

Hvort sem þú ætlar að aka stuttan spöl eða leggj­ast í lengra ferða­lag til að njóta almyrk­vans þann 12. ágúst skaltu vera undir það búin að ferðin taki lengri tíma en á venju­legum mið­viku­degi. Þú verður í félagi við þús­undir úti á veg­unum og umferð­ar­tafir eru fyr­ir­séðar víða.

Hugaðu að þessum fimm atriðum áður en lagt er af stað:

  1. Útbúðu við­laga­kassa í bíl­inn. Í hann skaltu t.d. setja vatn, nesti, hrein­læt­is­vörur, teppi, hlý föt, auka­skó, hleðslu­banka fyrir sím­ann og skyndi­hjálp­ar­tösku.
  2. Fylgstu vel með veð­ur­spá og leið­bein­ingum frá yfir­völdum, s.s. um umferð­ar­tak­mark­anir.
  3. Fylltu á bíl­inn (elds­neytistank­inn eða raf­hlöð­una).
  4. Leggðu tím­an­lega af stað og ekki flýta þér heim.
  5. Mundu eftir sól­myrkvagler­aug­unum!
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil