Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hana óraði aldrei fyrir því að þetta myndi enda eins og það gerði

Eigin upp­lifun dregin í efa, henni breytt eða sagt að hlutir hafi ekki gerst eins og maður man þá

Hana óraði aldrei fyrir því að þetta myndi enda eins og það gerði
Hvaða styrk­leika þróum við út frá til­finn­inga­legri van­rækslu? Mynd: Unsplash/Tim Mossholder

Blaða­maður Mannlífs hafði sam­band við konu sem kýs að koma fram undir nafn­leynd, því hún veit ekki hvernig yrði brugð­ist við ef hún myndi segja frá opin­ber­lega undir nafni. Konan er á fimm­tugs­aldri. Hún er móðir og amma og hefur menntað sig og starfað á ýmsum sviðum atvinnu­lífs­ins, meðal ann­ars sem ráð­gjafi, mannauðs­stjóri og í öðrum stjórn­un­ar­störfum. „Ég bý yfir mik­illi lær­dóms­ást og for­vitni sem hefur leitt mig á ýmsar brautir í líf­inu og ég er þakk­lát fyrir þau tæki­færi sem ég hef fengið og á sama tíma stolt og þakk­lát sjálfri mér fyrir að hafa oft þorað að henda mér í djúpu laug­ina. Hjarta mitt hefur þó alltaf verið í sál­fræð­inni. Ég hef lokið grunn- og fram­halds­námi á því sviði og hef einnig stundað nám með áherslu á sál­ræn áföll og ofbeldi en sá vett­vangur sem ég stefni á að skapa mér fram­tíð á er jákvæð sál­fræði.“

Í þeim fræðum fann hún loks­ins eitt­hvað sem hún hafði lengi leitað að í fræð­unum. Ekki aðeins spurn­ing­una: Hvað kom fyrir okkur og hvaða áhrif hafði það? Heldur líka: Hvað styrkir okkur? Hvað gerir mig að mér? Hvernig hefur reynslan mótað okkur og hvaða styrk­leikar geta jafn­vel orðið til í gegnum erf­iða lífs­reynslu?

Að menntun og vinnu und­an­skil­inni seg­ist hún vera kona sem elskar flest og hefur áhuga á alltof mörgu. „Mér end­ist lík­lega ekki ævin til að læra og prófa allt sem mig langar til, en það er svo sem ágætt lúx­us­vanda­mál. Börnin mín, mað­ur­inn minn og fjöl­skyldan sem ég hef sjálf skapað eru hjarta mitt.“

Þeir sem þekkja hana lýsa henni sem opinni, heið­ar­legri, ein­lægri og lífs­glaðri mann­eskju sem kemur til dyr­anna eins og hún er klædd „og ég er nokkuð sam­mála þeirri lýs­ingu, í dag hið minnsta.“

Hún tekur það fram að hún vilji taka eitt skýrt fram. „Ég hvorki upp­lifi mig né skil­greini mig sem fórn­ar­lamb, þó að margt í þessu við­tali geti gefið til­efni til þeirrar myndar. Ég hef upp­lifað ofbeldi og áföll, en það er lífs­reynsla mín, það er ekki ég. Ég lít frekar á mig sem bar­áttu­konu og sig­ur­veg­ara.“

Ég veit ekki hvernig brugð­ist yrði við ef ég segði frá opin­ber­lega undir nafni

Það er kannski ákveðin mót­sögn í því að hún lýsi sjálfri sér sem mjög opinni mann­eskju en kjósi svo að koma fram undir nafn­leynd í þessu við­tali. Ástæðuna segir hún ekki vera að hún skammist sín fyrir sögu sína eða standi ekki með því sem hún segi, þvert á móti.

„Ég kýs nafn­leynd fyrst og fremst vegna ótta við hvað gæti fylgt því að segja þessa sögu opin­ber­lega undir nafni. Á þeim árum sem liðin eru frá því að ég setti mörk hef ég upp­lifað nei­kvæðar frá­sagnir um mig og árásir á per­sónu mína hafa frekar auk­ist en minnkað og teygt sig út fyrir fjöl­skyld­una, inn í félags­legt umhverfi mitt og jafn­vel starfs­vett­vang. Sú reynsla hefur orðið til þess að ég veit ekki hvernig brugð­ist yrði við ef ég segði frá opin­ber­lega undir nafni.“

Henni finnst erfitt að við­ur­kenna þetta en hún vill ekki lifa í ótta og hún vill ekki láta þagga niður í sér. Hún þarf að gæta að sjálfri sér og fjöl­skyldu sinni.

„Nafn­leyndin er því ekki til­raun til að fela mig frá minni eigin sögu. Hún eru mörk sem ég kýs að setja utan um það hversu mikið aðgengi að mér og mínu lífi ég er til­búin að gefa á meðan ég segi hana.“

Hún gafst upp, aftur og aftur

Hefur þú orðið fyrir kerf­is­lægum þrýst­ingi í eitr­aðri fjöl­skyldu?

„Já, það hef ég. Og lík­lega skildi ég ekki sjálf hversu kerf­is­lægt þetta var fyrr en ég fékk fjar­lægð frá fjöl­skyld­unni.

Þetta var langt ferli. Ég byrj­aði í mik­illi sjálfs­vinnu upp úr tví­tugu sem hefur fylgt mér, með hléum, í rúm tutt­ugu ár. Sú vinna, menntun mín og það að mað­ur­inn minn kom inn í fjöl­skyld­una og sá hlut­ina utan frá urðu meðal ann­ars til þess að ég fór smám saman að átta mig á því að ýmis fjöl­skyldu­mynstur, fram­koma og hegðun sem ég hafði talið eðli­legan hluta af líf­inu voru það kannski alls ekki.“

Hún seg­ist samt alltaf hafa vitað eitt: Svona for­eldri ætl­aði ég ekki að verða og svona fjöl­skyldu­líf vildi ég ekki skapa börn­unum mínum.

Í hvert sinn sem hún reyndi að ræða erf­iða hluti eða hennar upp­lifun var allt svo mikið „vesen“ að á end­anum þurfti hún oft að biðj­ast afsök­unar svo allt gæti orðið gott aftur. Hún gafst því upp, aftur og aftur.

„Ég setti mér ákveðin mörk í gegnum tíð­ina og náði þannig að lifa innan kerf­is­ins. En eftir því sem ég styrkt­ist sjálf, mennt­aði mig og fann betur eigin styrk og rödd fann ég að ég pass­aði sífellt verr inn í gamla hlut­verkið mitt.

Það kom að þeim tíma­punkti að ég var til­búin og treysti mér til að ræða við for­eldra mína, hvort í sínu lagi. Ég bað um það sem mér fannst í raun mjög ein­falt: heið­ar­leg sam­skipti, virð­ingu, meiri kær­leika og nánd. Ég ræddi líka æsk­una og hvernig gömul, opin sár hefðu áhrif á sam­skipti okkar í dag.

Von mín var að við gætum við­ur­kennt það sem hafði gerst, byrjað að græða gömul sár og síðan vaxið og dafnað saman sem fjöl­skylda. Mig hefði aldrei órað fyrir því að þetta myndi enda eins og það gerði.

Ég ætl­aði mér aldrei að loka á neinn, slíta sam­skiptum, hvað þá að missa fjöl­skyld­una mína. Mark­miðið var nákvæm­lega hið gagn­stæða. Mitt eina mark­mið í upp­hafi var að opna á það sem allir vissu en eng­inn ræddi. Ég hafði ein­læga von um að við sem fjöl­skylda gætum unnið saman að betri fram­tíð okkar allra.

Þarna hrundi heim­ur­inn hennar

Í upp­hafi ákvað ég með­vitað að ræða þetta ekki við stór­fjöl­skyld­una. Ég vildi ekki að neinn upp­lifði að hann þyrfti að taka afstöðu og fór því ekki um og sagði mína hlið. En það sem gerð­ist í kjöl­farið breidd­ist smám saman út um fjöl­skyldu­kerfið.

Mér finnst mik­il­vægt að kalla það ekki „ágrein­ing“ eða „ósætti“, því þau orð lýsa ekki því sem gerð­ist frá mínum sjón­ar­hóli. Þetta byrj­aði ekki þannig að tveir aðilar væru ósam­mála og hvor hefði sína afstöðu til ein­hvers ágrein­ings­efnis. Samt voru einmitt þessi orð ítrekað notuð af fólki sem nálg­að­ist mig og reyndi að fá mig til að bakka og gera allt „gott“ aftur innan fjöl­skyld­unnar.

Það sem var raun­veru­lega að eiga sér stað var að ég, full­orðið barn for­eldra minna, sagði stopp. Ég sagði að ég gæti ekki lengur tekið þátt í sam­skipta­mynstri sem var skað­legt fyrir mig og börnin mín. Ég setti mörk, kall­aði eftir breyt­ingum og vildi að við horfð­umst í augu við það sem hafði gerst svo við gætum byggt upp heil­brigð­ari sam­skipti. Ég sagði í raun: „Ég vil ykkur í lífi mínu, en þetta getur ekki haldið áfram svona.“

Fyrst um sinn breytt­ist í raun lítið annað en sam­band mitt við for­eldra mína. Ég hélt áfram sam­skiptum við systk­ini mín og var áfram hluti af stór­fjöl­skyld­unni. Á þessum tíma komu ætt­ingjar til mín og spurðu hvers vegna ég væri að „loka á“ for­eldra mína, en mér fannst lítið hlustað á það sem ég reyndi að segja. Aðstæð­unum var gjarnan stillt upp eins og um venju­legt ósætti væri að ræða sem ég ætti ein­fald­lega að leggja til hliðar: „Þau eru bara eins og þau eru.“

Það litla sem ég sagði frá var gert lítið úr og síðar hef ég séð eftir því að hafa yfir­höfuð tjáð mig, því orð mín hafa verið tekin úr sam­hengi, þeim snúið og þau notuð gegn mér.

Sam­skiptin við systk­ini mín urðu eðli máls­ins sam­kvæmt erf­ið­ari. Ég sagði þeim ítrekað að þau þyrftu ekki að taka afstöðu og reyndi eftir fremsta megni að ræða ekki um for­eldra okkar í okkar sam­skiptum, einmitt vegna þess að ég vildi varð­veita sam­band okkar.“

Síðan fór eitt­hvað að breyt­ast. „Ég veit í raun enn þann dag í dag ekki nákvæm­lega hvað gerð­ist, en að lokum slitu systk­ini mín sam­skiptum við mig og sam­hliða því virt­ist mynd þeirra af mér breyt­ast. Ég varð í þeirra frá­sögn eitruð mann­eskja, stjórn­söm og ein­hver sem mis­not­aði eða stjórn­aði öðru fólki sér til hags­bóta.“

Í kjöl­farið breytt­ist allt. „Ein jólin, þegar við töldum okkur vera að fara í hið hefð­bundna fjöl­skyldu­jóla­boð, komst ég að því að það hafði þegar verið haldið án okkar. Meðvituð ákvörðun hafði verið tekin um að úti­loka okkur.“

Þarna hrundi heim­ur­inn hennar. „Fólkið sem ég hafði alist upp með hafði snúið við mér bak­inu. Ég upp­lifði að það sem hafði byrjað sem mín til­raun til að setja mörk og kalla eftir breyt­ingum væri orðið að allt annarri sögu – sögu um mig, per­sónu mína og það sem ég væri sögð hafa gert fjöl­skyld­unni. Í dag er fjöl­skyld­unni minni ekki boðið í fjöl­skyldu­sam­komur, afmæli og jóla­boð og sumir virða okkur ekki við­lits á förnum vegi. Samhliða þessu hefur orðið til mynd af mér sem ég kann­ast ekki við. Ég hef verið sögð veik á geði, eitruð, sjúk­lega stjórn­söm, óheið­ar­leg og lygin. Ég er sögð reyna að fá fólk „á mitt band“ og fólk innan fjöl­skyld­unnar hefur gengið svo langt að vara fólk sem er í lífi mínu við mér.“

Hún hefur fengið til sín frá­sagnir af sjálfri sér og atburðum í sínu lífi sem hún kann­ast ein­fald­lega ekki við, meðal ann­ars að hún hafi hent for­eldrum sínum út af heim­ili sínu. Það hefur aldrei átt sér stað, segir hún. „Það sem hefur komið mér hvað mest á óvart er að ég hélt lengi að með tím­anum myndi þetta róast. Mín upp­lifun hefur hins vegar verið þver­öfug.“

Eftir því sem tím­inn hefur liðið hefur fjand­skap­ur­inn sem hún upp­lifir í sinn garð auk­ist og færst út á fleiri svið lífs hennar. Sögur og ummæli hafa borist til vina og kunn­ingja og hún hefur upp­lifað til­raunir þar sem fjöl­skyldu­með­limir hafa reynt að hafa skað­leg áhrif á starfs­vett­vang sinn með því að nálg­ast fólk í fag­legu umhverfi hennar.

„Stór hluti fólks­ins sem virð­ist hafa myndað sér mjög sterka skoðun á mér hefur aldrei rætt við mig um það sem gerð­ist eða spurt mig hver mín hlið sé. Og ég hef sjálf ekki gengið um og sagt mína sögu. Þvert á móti hef ég lengst af kosið að ræða þetta ekki. Þess vegna hefur þetta orðið mjög yfir­þyrm­andi. Stundum upp­lifi ég eins og þetta haldi áfram að stækka, án þess að ég taki sjálf þátt í því. Ég veit ekki hvað verður sagt næst, hvert það berst eða hvar þetta endar.“

Ég hef jafn­vel hug­leitt hvort ég þurfi ein­hvern tím­ann að flytja úr landi

Hún á enn erfitt með að skilja hvernig þetta þró­að­ist svona og hvernig fólk sem hefur þekkt hana alla ævi getur trúað þess­ari mynd af sér.

„Það hefur skapað hjá mér raun­veru­legt óör­yggi og stundum ótta. Við búum í litlu sam­fé­lagi og þegar nei­kvæð frá­sögn um mann­eskju fer að teygja sig út fyrir fjöl­skyld­una og inn í félags­legt og fag­legt umhverfi hennar getur heim­ur­inn orðið mjög lít­ill. Ég er nú þegar flutt í annað sveit­ar­fé­lag og eftir þann flutn­ing hef ég fundið fyrir meiri ró og öryggi. Ég hef jafn­vel hug­leitt hvort ég þurfi ein­hvern tím­ann að flytja úr landi til þess ein­fald­lega að fá fjar­lægð frá þessu öllu.“

Hún lýsir því þannig að þegar hún er að tala um kerf­is­lægan þrýst­ing sé hún ekki ein­göngu að tala um við­brögð nokk­urra fjöl­skyldu­með­lima við því að hún setti mörk. Hún er að tala um ferli sem hún upp­lifir að hafi breiðst út og magn­ast með tím­anum, þar sem per­sóna hennar, trú­verð­ug­leiki og ásetn­ingur hafa ítrekað verið dregin í efa og nei­kvæð mynd af henni borist til fólks sem hefur jafn­vel aldrei rætt við hana um það sem raun­veru­lega gerð­ist. Þess vegna skiptir orða­lagið hana máli.

„Ég upp­lifi ekki að fjöl­skyldan mín hafi sundr­ast vegna þess að ég stofn­aði til ágrein­ings. Ég steig út úr óheil­brigðu mynstri og neit­aði að taka áfram þátt í ofbeldi, afneitun og þöggun sem ég hafði lengi sætt mig við. Það sem gerð­ist eftir að ég sagði stopp er stór hluti af þess­ari sögu. Ég fór ekki af stað til að berj­ast við neinn. Ég fór af stað vegna þess að mig lang­aði að laga fjöl­skyld­una mína.“

Tilfinningaleg vanræksla

Finnst þér þú hafa verið neydd til að bera ábyrgð á ofbeldi úr æsku?

„Já, og kannski birt­ist það einmitt skýr­ast í því að það sem ég upp­lifði hefur aldrei verið við­ur­kennt. Það fólst að miklu leyti í sál­rænu ofbeldi og því sem ég myndi í dag lýsa sem til­finn­inga­legri van­rækslu og ofbeldi. Það var einnig annað ofbeldi, en ég kýs með­vitað að fara ekki nánar út í ein­stök atvik. Það er mik­il­vægt fyrir mig að setja þau mörk. Ég hef í raun aldrei sagt mína sögu. Frá því ég man eftir mér vissi ég ein­hvern veg­inn að maður ætti að vernda fjöl­skyld­una og ekki tala um það sem gerð­ist innan hennar. Ég man ekki eftir að neinn hafi sagt það berum orðum. Ég bara vissi það. Samt hef ég fengið að heyra að það sem ég lýsi hafi ekki gerst eða hafi ekki verið „svona slæmt“. Þegar ég setti síðan loks mörk sem full­orðin kona upp­lifði ég að ábyrgð­inni væri snúið við: ég hefði skapað vand­ann og eyði­lagt fjöl­skyld­una. Frá því að þessi atburða­rás hófst hefur nán­ast eng­inn komið til mín og spurt: „Hvað gerð­ist? Hvað varð til þess að þú tókst þetta skref?“ Eftir allt sem hefur fylgt í kjöl­farið hef ég enn minni löngun til þess að lýsa opin­ber­lega ein­hverjum sár­ustu atburðum lífs míns til þess eins að reyna að sanna eitt­hvað. Til hvers? Til þess að varpa skugga á for­eldra mína og ljósi á minn sann­leika? Ég þarf þess ekki. Ég veit minn sann­leika. En málið er stærra en ég. Mig langar að við sem sam­fé­lag tölum um þetta vegna barn­anna sem lifa við ofbeldi, van­rækslu og ein­mana­leika í dag. Ekkert barn á að þurfa að læra að þegja til þess að vernda fjöl­skyld­una. Ég var að mörgu leyti heppin. Ég hafði fólk í kringum mig sem gaf mér kær­leika og sá mig. Ég held að það hafi skipt gríð­ar­legu máli. Það eiga ekki öll börn það.“

Var alltaf sú sem „skapaði vesen“

Hvernig er fjöl­skyldan þín upp­byggð, finnst þér þú ekki hafa fundið fyrir rétt­læti innan veggja heim­il­is­ins eða jafn­vægi?

„Nei. Þegar ég horfi til baka held ég að ein af sár­ustu upp­lif­unum mínum innan fjöl­skyld­unnar hafi einmitt verið sú að upp­lifa ekki jafn­vægi eða rétt­læti. Ég er elst systk­ina minna og frá því ég man eftir mér upp­lifði ég að rödd mín, til­finn­ingar og mín hlið á málum hefðu minna vægi en ann­arra. Ef eitt­hvað kom upp fannst mér ég sjaldn­ast hafa raun­veru­legt rými til að útskýra hvað hefði gerst frá mínum sjón­ar­hóli. Upplifun mín gat verið dregin í efa, henni breytt eða hún ein­fald­lega talin minna gild. Þetta sner­ist ekki bara um stór og alvar­leg mál. Þetta gat líka snú­ist um eitt­hvað svo ein­falt eins og hvað mig lang­aði, hvað mér fannst eða hvaða pláss ég mátti taka. Ég lærði mjög snemma að aðlag­ast, lesa í aðstæður og passa upp á líðan ann­arra. En mér fannst ekki sama rými vera til staðar fyrir mig.“

Sér­stak­lega var það sárt að upp­lifa að sömu reglur giltu ekki endi­lega um systk­ini hennar. „Ég vil alls ekki draga úr þeirra reynslu eða gera sam­an­burð á okkur sem ein­stak­lingum, en mín upp­lifun var sú að þeirra til­finn­ingar, þarfir og sjón­ar­mið fengju meira rými og væru frekar tekin gild en mín.“

Þetta mynstur fylgdi henni sem barni, ung­lingi og síðar full­orð­inni konu. „Ég varð mjög oft sú sem „skap­aði vesen“ þegar ég tjáði van­líðan, mót­mælti ein­hverju eða reyndi að setja orð á það sem mér fannst ekki í lagi.“

Þegar hún kynn­ist síðar hug­tak­inu scapegoating, eða blóra­bögg­uls­hlut­verki innan fjöl­skyldu­kerfa, seg­ist hún hafa fundið ákveðið tungu­mál yfir hluta þess sem hún hafði upp­lifað. „Ekki vegna þess að eitt hug­tak geti útskýrt heila fjöl­skyldu, heldur vegna þess að ég kann­að­ist við mynstrið þar sem einn ein­stak­lingur verður ítrekað gerður að vanda­mál­inu eða ábyrgur fyrir ójafn­vægi sem er í raun miklu stærra en hann sjálfur.“

Þegar hún svo loks­ins sagði sem full­orðin kona: „Mín upp­lifun skiptir líka máli. Ég má segja hvernig þetta hefur haft áhrif á mig og ég má setja mörk,“ upp­lifði ég aftur sama gamla mynstrið – að vanda­málið væri ekki það sem ég væri að reyna að tala um, heldur ég sjálf fyrir að tala um það.“

Þetta snertir enn við barn­inu í henni sem hún segir að hafi lært mjög snemma að rödd þess hefði minna vægi. „Munurinn er sá að í dag trúi ég því ekki lengur.“

„Ekki gera svona mikið mál úr engu“

Upp­lifðir þú gas­lýs­ingu af hálfu fjöl­skyldu­með­lima?

„Já. Gas­lýs­ing og afneitun á minni upp­lifun eru meðal skýr­ustu mynstr­anna sem ég þekki úr minni fjöl­skyldu. „Þetta var ekki svona vont“, „þetta var ekki svona alvar­legt“ og „ekki gera svona mikið mál úr engu“ eru setn­ingar sem ég heyrði ótal sinnum. Mér fannst það sem ég sagði, tjáði eða upp­lifði stöðugt breyt­ast þegar ég reyndi að koma því frá mér.

Þannig upp­lifðum við að við fengjum ekk­ert raun­veru­legt rými til þess að tala, spyrja eða segja okkar hlið

Ég var því mjög ung þegar ég hætti að leita til ann­arra eftir huggun. Þegar ég horfi til baka finnst mér ég hafa verið innan við sex ára þegar ég að ein­hverju leyti gafst upp á því. En þetta mynstur til­heyrir ekki aðeins æsk­unni. Ég upp­lifi það líka mjög sterkt í því sem hefur gerst und­an­farin ár. Eftir að sam­skiptin rofn­uðu var lokað á mig, mann­inn minn og elstu börnin mín á sam­skipta­leiðum þannig að við gátum ekki haft sam­band. Þegar börnin mín urðu eðli­lega reið og reyndu sjálf að fá skýr­ingar á því sem var að ger­ast og hvernig komið væri fram við mig var ýmist skellt á þau eða fleiri sam­skipta­leiðum lokað. Þannig upp­lifðum við að við fengjum ekk­ert raun­veru­legt rými til þess að tala, spyrja eða segja okkar hlið. Samhliða þessu hefur síðan borist til mín sú frá­sögn að það hafi verið ég sem lok­aði á sam­skipti for­eldra minna við mig og fjöl­skyld­una mína. Þetta er eitt af því sem hefur verið hvað erf­ið­ast fyrir mig að ná utan um í öllu ferl­inu. Ekki aðeins að missa mögu­leik­ann á sam­tali, heldur að upp­lifa síðan að frá­sögnin um það hvernig sam­skiptin rofn­uðu verði öfug við það sem ég og fjöl­skylda mín upp­lifðum.“

Og þarna snertir nútíðin mjög gam­alt sár hjá henni. „Þegar maður elst upp við að eigin upp­lifun sé dregin í efa, henni breytt eða sagt að hlutir hafi ekki gerst eins og maður man þá, lærir maður smám saman að efast um sjálfan sig. Þegar eitt­hvað sam­bæri­legt ger­ist síðan á full­orð­ins­árum getur gamla efa­semdin kviknað aftur. Ég er enn þann dag í dag að vinna í því að treysta eigin upp­lif­unum og til­finn­ingum. Þegar margar raddir virð­ast sam­þykkja allt aðra útgáfu af manni getur komið augna­blik þar sem ég spyr sjálfa mig: „Er það kannski ég sem er vanda­málið?“ Þá þarf ég að stoppa og minna mig á það sem ég veit, það sem ég upp­lifði og líka þá stað­reynd að í þetta sinn var ég ekki ein. Maðurinn minn og börnin mín upp­lifðu þetta ferli með mér. Það skiptir mig máli vegna þess að þetta er ekki ein­göngu minn­ing mín um eitt­hvað sem gerð­ist fyrir ára­tugum. Þetta er eitt­hvað sem við höfum upp­lifað saman í nútím­anum. Þegar maður hefur lengi lært að ganga gegn eigin upp­lifun til þess að halda frið­inn tekur tíma fyrir huga, lík­ama og sál að læra að treysta aftur. En það er einmitt það sem ég er að læra og æfa mig í í dag.“

Hvaða styrkleika þróum við út frá tilfinningalegri vanrækslu?

Sem sál­fræði­menntuð kona, hefur þú rann­sakað þetta eitt­hvað nánar út frá fræð­unum?

„Já, og per­sónu­leg reynsla mín hefur óhjá­kvæmi­lega haft áhrif á það hvað heillar mig innan sál­fræð­innar. Ég hef mik­inn áhuga á sál­rænum áföllum og ofbeldi, en það sem heillar mig sér­stak­lega er hvað verður um mann­eskj­una eftir á. Af hverju ná sumir að byggja sér gott líf þrátt fyrir mjög erf­iða æsku eða lífs­reynslu? Hvaða vernd­andi þættir skipta máli? Hvaða styrk­leika þróum við? Og geta eig­in­leikar sem urðu upp­haf­lega til sem leið til að lifa af síðar orðið raun­veru­legir styrk­leikar án þess að við þurfum áfram að lifa í varnar­á­stand­inu sem skap­aði þá?“

Þarna mæt­ast áhugi hennar á áföllum og jákvæðri sál­fræði. „Fræði um fjöl­skyldu­kerfi hafa líka hjálpað mér að skilja betur að þegar einn ein­stak­lingur breytir hlut­verki sínu getur allt kerfið brugð­ist við. Fjöl­skyldur geta leit­ast við að við­halda kunn­ug­legu jafn­vægi, jafn­vel þegar það jafn­vægi er ekki heil­brigt fyrir alla innan þess. Hugtök eins og gas­lýs­ing og blóra­bögglun geta hjálpað okkur að setja orð á ákveðin sam­skipta­mynstur. En mér finnst mik­il­vægt að nota fræðin ekki til þess að greina fjöl­skyldu­með­limi úr fjar­lægð eða ákveða hver sé „góður“ og hver sé „vondur“. Fyrir mér eiga fræðin að hjálpa okkur að skilja hegðun og mynstur – ekki setja fólk í kassa.“

Hvað veitir þér ánægju og ham­ingju?

Það sem hefur svo hjálpað henni einna mest í hennar eigin upp­bygg­ingu var þegar hún fór smám saman að færa fók­us­inn frá því að ein­blína ein­göngu á það sem hafði gerst og nei­kvæðar afleið­ingar þess yfir í að spyrja: „Hver er ég í dag? Hvað er það sem gerir mig að mér? Hvað vil ég? Hvers óska ég? Hvernig lífi vil ég lifa? Eftir ára­tuga sjálfs­vinnu finnst mér mik­il­vægt að við séum ekki ein­göngu að spyrja hvað sé að, greina vand­ann, finna hvað mann­eskj­una skortir og leggja alla áherslu á að skilja for­tíð­ina og nei­kvæðar afleið­ingar hennar.“

Hún seg­ist alls ekki vera að gera lítið úr mik­il­vægi þeirrar vinnu. Hún getur verið nauð­syn­leg. Henni finnst ein­fald­lega þurfa að gefa öðrum spurn­ingum meira rými líka: Hvað kom fyrir þig? Hvað hjálp­aði þér að lifa það af? Hverjir eru styrk­leikar þínir? Hvað veitir þér ánægju og ham­ingju? Hvað skiptir þig máli? Og hvað þarft þú til þess að lifa góðu og ham­ingju­ríku lífi og blómstra á þínum eigin for­sendum? Þarna liggur hennar stærsti áhugi í dag.

Sorgin nánast óbærileg á köflum

Hefur þú þurft að slíta sam­skiptum við þína nán­ustu?

„Já, en orðið „slíta“ er erfitt fyrir mig vegna þess að það getur hljó­mað eins og þetta hafi verið ein­föld ákvörðun sem ég tók um að fjar­lægja fólk úr lífi mínu. Ég ætl­aði aldrei að missa fjöl­skyld­una mína. Þegar sam­skiptin rofn­uðu sakn­aði ég fjöl­skyld­unnar minnar gríð­ar­lega. Ég syrgði systk­ini mín, börnin þeirra, sam­ver­una og fjöl­skyld­una sem ég taldi mig eiga. Sú sorg hefur á köflum verið nán­ast óbæri­leg. En fjar­lægðin hefur líka gefið mér sjón­ar­horn sem ég gat ekki haft meðan ég var inni í kerf­inu. Smám saman fór ég að sjá sjálfa mig, æsk­una mína og fjöl­skyldu­mynstrið miklu skýrar. Ég fór að átta mig á hversu margt ég hafði talið eðli­legt sem var í raun skað­legt og óheil­brigt. Og sann­leik­ur­inn er sá að í dag sakna ég fólks­ins ekki lengur á sama hátt. Það tók mig langan tíma að skilja það. Með fjar­lægð­inni fór ég að sjá að svo margt var ekki eins og ég hafði talið mér trú um að það væri. Ég hafði lengi haldið fast í ákveðna mynd af fjöl­skyld­unni minni, góðu stund­unum og sam­bönd­unum okkar og reynt að aðskilja það frá öllu því sem særði. Í dag get ég ekki lengur gert þann aðskilnað. Það þýðir ekki að góðu augna­blikin hafi ekki átt sér stað. Þau gerðu það. En ég sé þau í öðru sam­hengi í dag.“

Ég get verið sorg­mædd yfir því sem tap­að­ist án þess að vilja fá það aftur

Kannski var það hún sjálf sem hún þurfti að syrgja mest, ekki aðeins fólkið sjálft heldur fjöl­skyld­una sem hún hélt að hún ætti, fjöl­skyld­una sem hún reyndi svo lengi að skapa úr því sem þau höfðu og fjöl­skyld­una sem hún von­aði að gæti orðið.

„Það er mjög sér­stök sorg að átta sig á því að það sem maður þráir að fá aftur er kannski ekki eitt­hvað sem var raun­veru­lega til í þeirri mynd sem maður hafði haldið í. Í dag þrái ég því ekki að fara aftur. Ég vil ekki fara aftur inn í þau sam­bönd eins og þau voru. Ég vil ekki lengur vinna fyrir sam­þykki, aðlag­ast til þess að halda frið­inn eða efast um eigin upp­lifun til þess að til­heyra. Ég get verið sorg­mædd yfir því sem tap­að­ist án þess að vilja fá það aftur. Og fyrir mér er það stór hluti af bat­anum.“

Erfiðasta ferli lífs hennar og sér ekki fyrir endan á því

Hefurðu náð að vinna í þessu með fjöl­skyldu þinni og náð ein­hverjum bata?

„Nei, við höfum ekki unnið úr þessu saman sem fjöl­skylda. En ég er að vinna úr því. Og mér finnst mjög mik­il­vægt að segja þetta ekki eins og þetta hafi verið ein­falt frels­is­ferli þar sem ég setti mörk og gekk síðan sterk út hinum megin. Þetta hefur verið eitt erf­ið­asta ferli lífs míns og að mörgu leyti er því ekki lokið. Það er gríð­ar­lega erfitt að standa í eigin sann­leika þegar svo margir virð­ast sam­þykkja allt aðra útgáfu af manni. Þegar fólk sem hefur þekkt mann alla ævi hættir að tala við mann án þess að spyrja hvað hafi gerst, þegar maður heyrir að maður sé sagður vondur, veikur eða eitruð mann­eskja og þegar frá­sögnum af atburðum er dreift sem maður kann­ast ekki við, þá hefur það áhrif. Það hefur stundum brotið mig niður. Ég hef upp­lifað sorg sem ég á erfitt með að lýsa með orðum og á tíma­bili var hún sér­stak­lega djúp vegna systk­ina minna og barn­anna þeirra sem hurfu úr lífi okkar. Og ég hef oft verið reið­ari fyrir hönd barn­anna minna en mína eigin. Þau báðu ekki um þetta, en allt sem hefur gerst síðan ég tók fyrsta skrefið hefur líka breytt mér.“

Í upp­hafi segir hún að til­gang­ur­inn hafi verið að „laga“ fjöl­skyld­una sína. „Fjar­lægðin gaf mér hins vegar sjón­ar­horn sem ég hafði aldrei haft áður og smám saman fór ég að sjá sjálfa mig, æsk­una mína og fjöl­skyldu­mynstrið skýrar. Ég er ekki sama mann­eskjan í dag og ég var þegar ég tók þetta fyrsta skref. Þess vegna er ég í dag, þrátt fyrir alla sorg­ina og allt sem þetta ferli hefur kostað, þakk­lát fyrir að hafa tekið þetta skref. Ekki bara fyrir sjálfa mig, heldur fyrst og fremst fyrir börnin mín. Ég rauf keðj­una. Ég sýndi þeim að það sem var í gangi var ekki í lagi. Að fjöl­skylda og kær­leikur eiga ekki að krefj­ast þess að við afneitum okkur sjálfum, til­finn­ingum okkar eða mörkum. Með því vona ég að ég hafi gefið þeim tæki­færi til að skapa sér aðra sýn á fjöl­skyldu, kær­leika og sam­skipti en þá sem ég ólst sjálf upp við.“

Ég vil fá að standa með minni eigin reynslu án þess að þurfa stöðugt að verja hver ég er

Hún við­ur­kennir að það voru góð augna­blik þó svo að heildin hafi verið skað­leg. „Ég get syrgt það sem ég taldi mig eiga án þess að vilja það aftur. Ég get verið þakk­lát fyrir að hafa farið og samt við­ur­kennt að það kost­aði mig gríð­ar­lega mikið. Ég get verið sterk og samt við­ur­kennt að þetta ferli hefur stundum brotið mig niður. Bæði getur verið satt.“

Í dag er mark­miðið hennar ekki lengur að fá fjöl­skyld­una sína til að sam­þykkja sína útgáfu eða sann­færa aðra um að velja mína hlið. Ég vil frið. Ég vil fá að standa með minni eigin reynslu án þess að þurfa stöðugt að verja hver ég er. Og fyrst og fremst vil ég að mynstrið stoppi hjá mér. Ef þessi frá­sögn getur líka orðið til þess að við sem sam­fé­lag spyrjum aðeins öðru­vísi þegar full­orðið barn slítur tengsl við fjöl­skyldu sína, þá hefur það gildi fyrir mig. Mér finnst við nefni­lega of oft byrja umræð­una á spurn­ing­unni um hvað barnið hafi gert for­eldrum sínum með því að slíta sam­skiptum. Við tölum jafn­vel um að full­orðna barnið hafi „lokað á“ for­eldra sína eða valið að ganga frá fjöl­skyld­unni, en þá er hætta á að við séum að byrja sög­una á end­inum.

Í stað þess að spyrja fyrst:

„Hvernig gat barnið gert for­eldrum sínum þetta?“ langar mig að við þorum líka að spyrja:

„Hvað varð til þess að barnið sá enga aðra leið?“ Því stundum eru sam­skipta­slit ekki upp­haf sög­unnar. Þau eru endir á mjög löngu ferli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu