Lonely Planet hefur gefið út nýjan lista yfir 10 bestu áfangastaði Evrópu fyrir komandi vetur. Þótt margir tengi álfuna fyrst og fremst við sumarfrí, býður veturinn upp á fjölbreytta möguleika á borð við sólarlandasælu eða snævi þakin ævintýri, allt án hefðbundinnar mannmergðar og á betra verði.
Hér eru fimm af helstu áfangastöðunum sem ferðahandbókin mælir með:
Sól og vellíðan í stað vetrarkulda
- Fuerteventura (Kanaríeyjar, Spánn):

Mynd: Unsplash/Jessy Hoffmann
- Fullkominn staður fyrir þá sem sakna sumarsins, en meðalhiti í janúar er um 21°C. Eyjan er þekkt fyrir stórfenglegar strendur og mikla áherslu á vellíðan, svo sem jóga og hugleiðslu undir berum himni, eins og margir Íslendingar þekkja svo vel.
- Madeira (Portúgal):

Mynd: Unsplash/Lina Bob
- Býður upp á milt og sólríkt loftslag þar sem hitinn nær um 20°C í febrúar. Vetrarmánuðirnir henta vel í gönguferðir um hinar frægu levadas (áveituskurði), fjallahjólreiðar eða til að smakka staðbundna kokteilinn poncha.
Vetrarstemning og menning
- Kapadokía (Tyrkland):

Mynd: Unsplash/Burak Arslan
- Stórfenglegar klettabyggingar og hellakirkjur Göreme-safnsins njóta sín vel í vetrarsnjónum. Helstu kostirnir eru lægra gistiverð og færra fólk og tilvalið er að hita sig upp í tyrknesku baði (hammam) eftir skoðunarferðir dagsins.
- Eryri / Snowdonia (Wales):

Mynd: Unsplash/Anthony
- Fyrir ævintýrafólk breytist svæðið í villta paradís með snævi þöktum fjöllum og fossum. Hægt er að fara í leidda vetrargöngu eða kanna gamlar námur neðanjarðar með sviflínum.
- Bilbao (Spánn):

Mynd: Unsplash/Jorge Fernandez Salas
- Þótt veturinn sé svalur og rigningarsamur eða um 12°C er borgin iðandi af lífi. Lægra verð utan háannatíma gefur meira svigrúm til að njóta baskneskra pintxos (smárétta) og heimsækja heimsfræg söfn eins og Guggenheim.





















Athugasemdir