Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Breyttur heimur sem verður aldrei eins

Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son er mús­íkalskur við­skipta­fræð­ingur sem hefur meðal ann­ars unnið hjá Plain Vanilla, Gang­verki og upp­boðs­fyr­ir­tæk­inu Sothebys. Í fyrra­haust stofn­aði hann ásamt Davíð Helga­syni frum­kvöðli hug­veit­una Vörðu sem leggur áherslu á þjóðar­ör­yggi og við­náms­þrótt. Varða stendur meðal ann­ars reglu­lega fyrir við­burðum og hélt fyrstu alþjóð­legu ráð­stefn­una sína á Íslandi í sumar – Reykja­vik Security Forum

Breyttur heimur sem verður aldrei eins
Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son Mynd: Golli

Kristinn Árni Lár Hró­bjarts­son kynnt­ist snemma hinum stóra heimi en hann fædd­ist á Íslandi en flutti svo til Þýska­lands þar sem for­eldrar hans voru í námi og var að verða sjö ára þegar fjöl­skyldan flutti til Íslands.

„Ég var svo­lítið í tölvu­leikjum og svona nör­da­stöffi. Nexus-dótaríi. Ég var líka í tón­list en ég spil­aði á klar­inett og óbó.“

Hann var átta ára þegar hann byrj­aði að læra á klar­inett og í tvö ár lærði hann á það hljóð­færi en svo tal­aði kenn­ar­inn hans um að hann færi að læra á óbó og það gerði hann í átta ár eða þar til hann var átján ára.

Tón­listin tog­aði fast í hann og á árunum í Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð, þar sem hann var á bæði nátt­úru­fræði- og mála­braut, söng hann ten­ór­rödd með Kór Mennta­skól­ans við Hamra­hlíð og síðan með Hamra­hlíð­ar­kórnum í þrjú ár eftir að stúd­ents­húfan var komin á koll­inn.

„Mér finnst tölu­vert skemmti­legt að vera í kór. Það er hóp­upp­lifun, frá­brugðið því þegar maður er að læra á ein­leiks­hljóð­færi. Maður fer í gegnum það með öðrum og að æfa og flytja tón­list saman sem ein heild. Svo má ekki gleyma félags­skapnum í kringum starfið.

Maður söng á tón­leikum sem var búið að und­ir­búa lengi og það varð jákvætt til­finn­inga­legt upp­nám eftir tón­leika. Maður komst á sömu bylgju­lengd með fullt af öðru fólki við að búa til eitt­hvað sem öðrum gæti þótt fal­legt í jafn­vel stór­brotnu umhverfi. Það kom allt saman og varð bara tótal snilld.“

Kristinn átti sín upp­á­halds­lög sem hann söng með kór­unum. „Mér finnst Úr útsæ rísa Íslands­fjöll eftir Pál Ísólfs­son vera stór­kost­legt. Við sungum það mjög oft. Það er þjóð­remb­ingslag. Svo er það Sandur um kvöld sem er karla­kórslag eftir Sigvalda Kalda­lóns. Það fannst mér alltaf vera frá­bært. Síðan var það Ísland far­sælda frón í útsetn­ingu Jóns Leifs sem situr alltaf eftir.“

Skiptinám í Texas

Kristinn sá fyrir sér að verða for­rit­ari og ein­hvern tím­ann dreymdi hann um að vinna í banka í fram­tíð­inni. „Ég hef for­ritað en ekki unnið í banka. Ekki ennþá. Ég átti ekki mikla spesífíska drauma um hvað ég myndi gera.“

Hann fór í lög­fræði og heim­speki í Háskóla Íslands í einn vetur. „Ég kláraði nokkra áfanga í lög­fræði, þar á meðal inn­gang­inn og almenna lög­fræði, og í heim­spek­inni var það frum­speki, rök­fræði og sið­fræði. Eftir fyrsta árið fann ég að þetta pass­aði ekki við mig.“ Hann fór síðan í nám í við­skipta­fræði.

„Þetta var eftir hrun og ég fann að mig lang­aði til að byggja eitt­hvað upp en ég fór í við­skipta­fræði af því að hún er opin og sveigj­an­leg og snýst að miklu leyti um að byggja upp.

Hápunkt­ur­inn á þeim tíma var að fara í skipti­nám til Banda­ríkj­anna og þar fékk ég tölu­vert meiri áhuga á nám­inu. Maður var pínu búinn að vera að gera þetta með annarri hendi en svo fór ég út og þá hafði ég svo mik­inn tíma. Ég var þá ekki í vinnu með skóla og var ekki með vini mína, þótt ég hafi kynnst þar fólki sem ég er ennþá í sam­bandi við í dag, og þá hafði ég svo ótrú­lega mik­inn tíma sem fór meðal ann­ars í námið sem var mjög skemmti­legt. Þetta var geggjað ár,“ segir Kristinn sem bjó í bænum Lubbock í Texas þar sem meðal ann­ars er að finna Buddy Holly Center en Buddy Holly var frá Lubbock. Hann vann lengi með skóla í Herra­garð­inum í Kringl­unni og gaf út bók­ina Litla herra­mennsu­kverið á þeim tíma eða árið 2011.

„Bærinn er í vest­ur­hluta Texas og þar er eig­in­lega ekki neitt,“ segir Kristinn. „Þetta er rúm­lega tvö hund­ruð þús­und manna bær og aðal­á­stæðan fyrir því að hann er líf­legur er háskól­inn Texas Tech Uni­versity en án hans væri þetta frekar mik­ill svefn­bær. Hann lifnar svo allur við á laug­ar­dögum á haustin þegar rúm­lega sex­tíu þús­und manns mæta á fót­bolta­völl­inn að fylgj­ast með háskóla­lið­inu.“

Keypti hann kúreka­hatt? „Ekki hatt. Þeir eru allt of dýrir en alvöru­hattar kosta aldrei minna en hund­rað þús­und krónur. Ég keypti mér hins vegar kúreka­stíg­vél og nota þau enn í dag. Mér fannst vera lík­legra að ég myndi nota stíg­vél. Þetta eru geggj­aðir skór. Þægi­legir og næs.“

„Þetta gekk svaka­lega vel framan af“

Sotheby's

Kristinn fór beint inn í startup-geir­ann eftir útskrift. „Ég hafði ekki gert ráð fyrir að gera það en mjög góður vinur minn hvatti mig til að sækja um starf hjá fyr­ir­tæk­inu þar sem hann vann. Ég var pínu efins fyrst af því að ég ætl­aði að fara í meist­ara­nám en lét til leið­ast og þar fékk ég fyrstu vinn­una mína eftir útskrift, í þjón­ustu og þróun hjá sprota­fyr­ir­tæk­inu Plain Vanilla. Ég fór síðan ekk­ert í þetta meist­ara­nám.“

Hjá Plain Vanilla var hann starfs­maður númer 32 eða svo og gegndi nokkrum stöðum á tíma­bil­inu, síð­ast sem for­stöðu­maður rekstrar áður en félagið lok­aði. „Þetta gekk svaka­lega vel framan af,“ segir hann en Plain Vanilla gaf út far­síma­leik­inn QuizUp sem varð eitt hrað­ast vax­andi app síns tíma. „Félagið sótti þó nokkuð magn af pen­ing erlendis frá og leik­ur­inn var með ótrú­lega marga not­endur. Þetta var ein­stakt á Íslandi. Starfs­menn end­uðu á að vera hund­rað og tíu þegar mest var. Svo fórum við niður í núll af því að við kláruðum pen­ing­inn.“

Hvað ein­kennir sprota­fyr­ir­tækja­geir­ann? „Það sem mér finnst ein­kenna hann er að maður ein­blínir á mögu­leika frekar en ástæðu fyrir því að hlutir ættu ekki að virka. Þannig að það er ein­hver inn­byggð bjart­sýni eða jákvæðni. Það er ein­hver orka í því sem maður finnur ekki alls staðar. Það er líka mikil ákefð oft, jákvæð finnst mér, og allt öðru­vísi álag, sér­stak­lega þegar maður er að stofna eitt­hvað ímynda ég mér, og það þarf alltaf að vera að reyna að tryggja að þetta lifi áfram. Og ég held að það sé upp­lifun sem fólk fái ekki þegar það kemur inn í eitt­hvað fyr­ir­tæki sem er gam­alt og stöndugt. Það er ekki ábyrgð starfs­manna að tryggja að félagið lifi af en sprota­fyr­ir­tæki eru ekki enn komin á beinu braut­ina.

Í kjöl­farið á Plain Vanilla hélt ég áfram í tækni og nýsköpun. Ég var ráð­gjafi hjá Kolibri og síðar fram­kvæmda­stjóri rekstrar hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Gang­verki þar sem ég kom inn í annað ört vax­andi alþjóð­legt verk­efni.“

Gangverk var verk­taki hjá upp­boðs­fyr­ir­tæk­inu Sotheby's í New York sem var í mik­illi tækni­veg­ferð á þeim tíma. Í kjöl­far eig­enda­skipta hjá Sotheby's bauðst Kristni þar staða sem fram­kvæmda­stjóri vöru­þró­unar og þar leiddi hann breyt­ingar á skipu­lagi og tækn­i­notkun þess í sam­ræmi við stefnu nýrra eig­enda. Að mestu leyti var um fjar­vinnu að ræða.

„Ég bjó aldrei í New York sem var pínu leið­in­legt. Ég fékk þessa vinnu í mars árið 2020 og um tíu dögum seinna kom skipun frá Donald Trump um að það ætti ekki að afgreiða land­vist­ar­leyfi út af Covid. Þannig að ég var að vinna í tvö og hálft ár á Íslandi fyrir Sotheby's en ég hætti á sama tíma og þeir voru að byrja að hleypa fólki aftur inn í landið varð­andi land­vist­ar­leyfi. Ég var þó í New York í sjö til tíu daga í mán­uði.“

Á þessum tíma eign­uð­ust Kristinn og kona hans, Sunna Karen Ein­ars­dóttir kór­stjóri, sína eldri dóttur.

Kristinn lærði ýmis­legt af því að vinna í svona alþjóð­legu umhverfi. Hann segir að þegar hann vann við Quiz Up hafi hann lært um skala, að heim­ur­inn sé tölu­vert stærri heldur en Ísland. „Þá var maður að vinna í hug­bún­aði og það voru um sjö hund­ruð þús­und manns að spila á hverjum degi. Hjá Sotheby's var skal­inn minna í fjölda not­enda og meira í umfangi við­skipta. Eitt vel heppnað upp­boð gat þýtt tekjur upp á 50 millj­arða króna og því mik­il­vægt að allt gengi eftir. Sotheby's var einnig fyr­ir­tæki sem var „always on“, ein­hver skrif­stofa þess var opin hvenær sem er sól­ar­hrings og maður lærði ýmis­legt svo sem hvernig sam­skipta­mynstur mis­mun­andi þjóða eru. Sotheby's er með skrif­stofur í þrjá­tíu löndum. Banda­ríkja­menn voru með ákveð­inn hátt og Bret­arnir voru með aðeins öðru­vísi hátt og Frakk­arnir enn frá­brugðn­ari. Svo lærði maður „business-hugsun“ þarna úti og hversu mik­il­væg tengsla­net eru.“

Þá er Kristinn stofn­andi og rit­stjóri nýsköp­un­ar­vefs­ins Northstack auk þess að vera for­maður stjórnar sprota- og nýsköp­un­ar­sjóðs­ins Kríu frá stofnun þar til sjóð­ur­inn sam­ein­að­ist Nýsköp­un­ar­sjóði atvinnu­lífs­ins.

„Ég var hjá Sotheby´s kom­inn með nóg af að vinna fyrir eitt­hvað ríkt fólk við að selja dýr mál­verk“

Að pæla í loftslagsmálum

Kristinn og Davíð Helgason frum­kvöð­ull eru vinir og árið 2022 stofn­aði Davíð ásamt Kjartani Erni Ólafs­syni fyr­ir­tækið Transition Labs en starf­semin bygg­ist á að leita uppi fram­úr­skar­andi erlend lofts­lags­verk­efni, aðstoða við að koma þeim á legg hér á landi og auð­velda þeim að skala fyr­ir­tækin upp í rekstr­ar­hæfa stærð. Kristinn er í stjórn félags­ins.

„Ég var hjá Sotheby´s kom­inn með nóg af að vinna fyrir eitt­hvað ríkt fólk við að selja dýr mál­verk. Dóttir mín var orðin eins árs og ég var far­inn að hugsa um hvað ég ætl­aði að skilja eftir mig og þá fór ég að pæla í lofts­lags­málum. Ég hjálp­aði til við að stofna Transition Labs og út úr því kom fyrsta fyr­ir­tækið sem Trasition Labs hjálp­aði til við að koma til Íslands og kom­ast á lagg­irnar hér.“ Um var að ræða banda­rískt sjáv­ar­tækni­fyr­ir­tæki á sviði kolefn­is­förg­unar, Running Tide, og hóf það starf­semi á Íslandi fyrir milli­göngu Transition Labs. Kristinn var ráð­inn fram­kvæmda­stjóri þess hér á landi og þeirri stöðu gegndi hann í tæp­lega þrjú ár. „Svo kláruðum við pen­ing­inn og þurftum að loka árið 2024. Ég lok­aði því batt­eríi. Svo fór ég í „exploration mode“ og út úr því kom Varða.“

Þá værum við flóttafólkið

Kristinn segir að þegar verið var að slíta félag­inu hafi þeir Davíð og nokkrir félagar þeirra farið að skoða AMOC, velti­hringrás Atl­ants­hafs­ins. Lofts­lags­breyt­ingar eru taldar geta veikt velti­hringrás­ina með því að valda ann­ars vegar hlýnun sjávar og hins vegar auknu flæði ferskvatns úr bráðn­andi ísbreiðum og gæti veik­ingin valdið lægra hita­stigi meðal ann­ars á Norð­ur­lönd­unum. Slíkt gæti haft ham­fara­kennd áhrif á búsetu­skil­yrði til dæmis á Íslandi.

„Þetta var mikið rætt í lofts­lags­brans­anum og fyrir mig breytti það stöðu Íslands af því að maður sá alltaf fyrir sér að í versta falli þyrftum við á Íslandi að taka á móti fullt af lofts­lags­flótta­fólki ef allt fer í klessu. En ef þessi sviðs­mynd raun­ger­ist, að velti­hringrásin stöðv­ist, þá eru meiri líkur á að við verðum flótta­fólkið sem aðrir þyrftu að taka á móti. Það var pínu dramat­ísk realís­er­ing fyrir mig og breytti því hvernig ég sé fram­tíð og mögu­leika Íslands í því. Við héldum nokkra lok­aða við­burði tengda þessum mögu­leika, horfðum á heim­ilda­mynd um þetta og buðum upp á sam­tal í fjöl­breyttum hóp. Þar kom meðal ann­ars fram að fólk hefði jú áhyggjur af þessu en fólk sem ég lít upp til benti á að það væru jafn­miklar hættur nær okkur í tíma og rúmi sem þyrfti líka að hugsa um. Ísland væri algjör­lega týnt í þessum örygg­is­málum almennt og það væri jákvæð við­bót að efla það sam­tal og þekk­ingu tengda þeim mála­flokki. Það sam­tal lifði í ein­hvern tíma og svo fengum við hvatn­ingu frá vin­konu okkar Constanze Stelzenmüller að setja upp hug­veitu um öryggis- og varn­ar­mál á Íslandi. Hún sagði að það væri þarft. Og fjöl­margir aðrir töl­uðu á svip­uðum nótum um að umræðan væri ekki djúp og að það skorti þekk­ingu utan stjórn­kerf­is­ins. Sú þekk­ing sem væri til staðar væri lokuð inni í kerf­inu. Heim­ur­inn er ekki sá sami og hann var hvort sem það er út frá ham­fara­hættum tengdum lofts­lags­málum, ham­fara­hættum tengdum alþjóða­stjórn­málum eða valda­brölti eða gervi­greind. Þetta er bara ekki gott. Og það er mik­il­vægt að við á Íslandi eigum alvöru­gefið og upp­lýst sam­tal um það og okkar stöðu.“

Kristinn bendir á að það fólk sem býr yfir þekk­ingu inni í kerf­inu sé oft­ast bundið trún­að­ar­skyldu, sé að vinna að opin­berum verk­efnum og geti ekki mikið tjáð sig eða gefið út sem hann segir að sé mjög skilj­an­legt. „Það er aðeins að breyt­ast núna. Grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra gefur til dæmis reglu­lega út skýrslur og grein­ingar um þessi mál, til dæmis innra öryggi Íslands, stöðu skipu­lagðrar glæp­a­starf­semi og fleira og það er frá­bært og mik­il­vægt til að efla umræð­una og almenna vit­neskju.“

Brúarsmíði

Kristinn segir að stóri punkt­ur­inn sé að við höfum getað reitt okkur á aðra þegar kemur að öryggi og vörnum lands­ins. „Við þurfum að hugsa miklu meira um okkur sjálf. Og það er flókið að byrja að gera það upp úr þurru. Það sem við hjá Vörðu erum að gera að ein­hverju leyti er að reyna að efla umræð­una, leggja eitt­hvað verð­ugt fram og stuðla að jákvæðri þróun.

Við sáum tæki­færi og þörf fyrir aukna þekk­ing­ar­sköpun og almenna umræðu sem fer á dýpt­ina. Ein leiðin er að leggja eitt­hvað til og það er það sem við erum að gera með skýrslum og grein­ingum. Þá tölum við um brú­ar­smíði bæði inn­an­lands og utan en það felst í að efla sam­tal stjórn­valda við fyr­ir­tæki og efla sam­tal þvert á fyr­ir­tæki og svo við aka­demín­una - tengja saman þessa mis­mun­andi aðila í umræðu um þjóðar­ör­yggi út af því að við erum svo fámenn þjóð að það þurfa allir að vera með. Svo er það brú­ar­smíði milli landa. Fyr­ir­tækin þurfa að hugsa um hvernig alþjóð­aum­hverfið hefur áhrif á þau og hvað það þýðir fyrir okkur hvernig þetta er allt að breyt­ast. Umræðan á Íslandi þarf þekk­ingu erlendis frá, enda eru allar þessar breyt­ingar að ger­ast í stærra sam­hengi og sér­fræð­ingar til dæmis í öðrum hug­veitum geta komið með mik­il­væg sjón­ar­horn í umræð­una hér.

Við vildum líka prófa ákveðnar leiðir til sam­skipta. Við höfum haldið lok­aðar hring­borðsum­ræður þar sem gilda trún­að­ar­reglur sem var lítið gert ef nokkuð á Íslandi þegar við vorum að byrja. Þar er hug­myndin að búa til rými fyrir fólk að eiga sam­tal um það sem skiptir máli án þess að það séu hljóð­nemar á staðnum eða að fólk eigi á hættu að sam­talið breyt­ist í fyr­ir­sögn. Að mínu viti ætti þjóðar­ör­yggi ekki að vera flokkspólítískt mál - það ætti að vera eitt­hvað sem allir ættu að vera sam­mála um að tryggja.“

„Fyrir örygg­is­hags­muni Íslands er óheppi­legt að þetta sé orðið hern­að­ar­legt áhuga­mál stór­velda“

Reykjavík Security Forum

Kristinn segir að eitt af því sem þau hjá Vörðu hafi fund­ist skipta máli teng­ist því að af því að ekki hafi verið fjár­fest í þekk­ing­ar­grunni á þessu sviði þá ætti að vinna með erlendum aðilum til þess að nýta þekk­ingu þeirra á því sem er í gangi í þessum bransa og tengja þau við Ísland.

„Við byrj­uðum þess vegna á að fá frá­bæran sér­fræð­ing frá breskri hug­veitu til að gera sam­an­burð­ar­grein­ingu á stefnu stjórn­valda í öryggis- og varn­ar­málum sem kom út og var sam­þykkt í vor. Í kringum það héldum við slatta af við­burðum þannig að við höfum verið að byggja upp sam­starf við leið­andi hug­veitur í heim­inum - svo sem þýskar, breskar og banda­rískar - til að sanka að okkur þekk­ingu, búa til tengsla­net og reyna þannig að vekja athygli erlendra aðila á Íslandi. Leiðin til þess að þekk­ing erlendra aðila sem eru sér­fróðir í ein­hverju sem teng­ist örygg­is­málum nýt­ist á Íslandi er að þeir skilji betur hvernig Ísland er og hvernig það virkar. Og til þess að þau geri það þurfa þau að hafa áhuga á Íslandi og til þess þess að hafa áhuga á Íslandi þá þurfa ein­hverjir að benda þeim á að Ísland sé áhuga­vert. Ég finn það þegar ég fer á ráð­stefnur erlendis í þessum mála­flokki að það veit eng­inn nokkurn skap­aðan hlut um Ísland. Bara ekki neitt. Það er ekk­ert aðgengi­legt, það er eng­inn að taka neitt út og mjög fáir að skrifa nokkuð. Það er áhuga­vert.“

Í júní var haldin fyrsta alþjóð­lega ráð­stefna Vörðu, Reykja­vík Sercurity Forum, og voru þátt­tak­endur um hund­rað og tutt­ugu frá ýmsum löndum. Blaða­maður sótti ráð­stefn­una sem var mjög áhuga­verð en eins og Kristinn segir þá ríkir trún­aður yfir því sem þar fór fram. „Við erum að blanda saman stjórn­mála­fólki, sér­fræð­ingum, her og öðrum við­bragðs- og lög­gæslu­að­ilum, fyr­ir­tækjum og fjár­festum til að eiga sam­tal um þetta sem skiptir máli. Annars vegar til að fólk læri og skilji betur en líka til að koma auga á hvar eru spennur sem þarf að útkljá eða vinna sig í gegnum. Ég held að Ísland geti verið frá­bær staður til að safna fólki saman og eiga svona sam­töl. Við erum her­laust smá­ríki og höfum ekki sömu alþjóða­stjórn­mála­lega hags­muni og mörg stærri. Það býr til öðru­vísi stemmn­ingu og sam­hengi fyrir svona við­burð heldur en að vera í Banda­ríkj­unum, Þýska­landi eða Bret­landi þar sem það er alltaf hang­andi yfir manni staðan þar, áherslur þeirra og áætl­anir. Það er hægt að brúa þessa tvo heima og ég held að það sé mik­il­vægt. Við vorum brúin á milli Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna þegar þau áttu sam­tal á seinni hluta níunda ára­tug­ar­ins. Núna þurfum við kannski að vera brú á milli Banda­ríkj­anna og Evrópu.“

Gamlir frekir karlar

Heims­myndin er breytt. Stað­setn­ing Íslands má segja mitt á milli Evrópu og Banda­ríkj­anna getur í sumum til­fellum verið góð, svo sem þegar kemur að mál­efnum norð­ur­slóða og má nefna vænt­an­lega umskip­un­ar­höfn á Aust­ur­landi, en svo er ekki alltaf.

„Fyrir örygg­is­hags­muni Íslands er óheppi­legt að þetta sé orðið hern­að­ar­legt áhuga­mál stór­velda. Það væri betra fyrir okkur ef það væri áfram frosið á norð­ur­slóðum og eng­inn að pæla í þessu. Ég tala stundum um að við séum að fara frá því að vera eins og brú á milli tveggja vin­veittra stór­velda - Banda­ríkj­anna og Evrópu - og yfir í að vera hring­torg óvin­veittra stór­velda. Ég held að það sé ekki endi­lega frá­bært fyrir okkur að vera hring­torg. Ef við horfum á hern­að­ar­bröltið hjá stór­veld­unum og síðan lofts­lags­breyt­ing­arnar og mögu­legar ham­farir tengdum þeim þá þarf ekki mikið að fara úrskeiðis til að þetta endi illa.

Í fyrstu skýrsl­unni sem við gáfum út fórum við yfir skemmd­ar­verk Rússa á innviðum í Evrópu - við vorum að vekja athygli á því að í raun er allt sem þarf til þess til staðar á Íslandi. Við erum með dreifða inn­viði, við erum með gamla inn­viði og við erum með aðgengi­lega inn­viði og það þarf skipu­lagða glæpa­hópa sem hægt er að fjar­stýra í gegnum Telegram eða borga þeim í bitcoin fyrir að gera eitt­hvað rugl. Það er hér allt til staðar og nóg af því. Það skortir vænt­an­lega vilja til að gera eitt­hvað. Það hefði ekk­ert upp á sig ímynda ég mér en það væri ekki mikið mál að setja allt á annan end­ann á Íslandi.

Við vitum að það hafa verið alla­vega tvær skipu­lagðar netárársir af hendi Rússa á Íslandi - í tengslum við leið­toga­fund Evr­ópu­ráðs­ins 2023 og svo Frétta­blaðið þegar í því birt­ist mynd af úkra­ínskum her­mönnum að stappa á rúss­neska fán­anum í kringum stríðið. Þetta er ekk­ert sér­stak­lega flókið - það eru bara vondir karlar þarna úti - mesmegnis karlar sem eru 70+ virð­ist vera - sem eru með allt aðra hug­mynd um hvernig heim­ur­inn á að virka heldur en við. Það er það sem skiptir máli í þessu finnst mér. Og hvernig dílar maður við gamla freka karla? Við þurfum að geta passað upp á okkar út frá því sem skiptir okkur máli.“

Ráðgjafaráð Vörðu

Davíð Helgason fjár­magnar Vörðu í gegnum eins og Kristinn orðar það „góð­gerð­ar­arm“ sinn Foobar Foundation.

Varða er með ráð­gjafa­ráð. „Við ákváðum stuttu eftir að við byrj­uðum með Vörðu í fyrra­haust að það væri mik­il­vægt fyrir okkur að vera með óháð ráð­gjafa­ráð til að hjálpa okkur varð­andi fag­lega þróun, stefnu­mótum og áherslu­mál og hand­völdum við inn í það fimm alveg frá­bæra ein­stak­linga.“

Hlutverk ráð­gjafa­ráðs­ins er að veita Vörðu ráð og fag­legt aðhald í tengslum við stefnu, áætl­anir, verk­efni og áherslur hug­veit­unnar og tryggja að starf­semin hvíli á traustum grunni þekk­ingar og reynslu.

Ari Kristinn Jónsson er for­stjóri NATO Innovation Fund. Hann var rektor Háskól­ans í Reykja­vík og þar áður var hann í tíu ár vís­inda­maður og stjórn­andi hjá NASA í Banda­ríkj­unum.

Garðar Forberg var varn­ar­mála­full­trúi Íslands í Washington DC og áður her­mála­full­trúi Íslands í her­mála­nefnd NATÓ. Hann er liðs­for­ingi að mennt úr liðs­for­ingja­skóla þýska hers­ins, Bundeswehr, og hefur ára­langa reynslu af flug­rekstri.

Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir sat á þingi fyrir Kvenna­list­ann og Sam­fylk­ing­una, er fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, utan­rík­is­ráð­herra og borg­ar­stjóri Reykja­víkur. Hún var umdæm­is­stjóri UN Women í Evrópu og Mið-Asíu og síðar fram­kvæmda­stjóri Lýðræðis- og mann­rétt­inda­stofn­unar Öryggis- og sam­vinnu­stofn­unar Evrópu (ODIHR).

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, sendi­herra, hefur gegnt emb­ættum utan­rík­is­ráð­herra, ferða­mála-, iðn­aðar og nýsköp­un­ar­ráð­herra, fjár­mála­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra.

Rannveig Rist var lengi for­stjóri ÍSAL – Rio Tinto á Íslandi. Hún hefur setið í fjölda stjórna fyr­ir­tækja og sam­taka og þar má nefna SAMÁL, Samtök atvinnu­lífs­ins, Við­skipta­ráð, HB Granda, Klíník­ina, Lýsi og Símann.

„Við hittum þau reglu­lega á fundum og eigum í sam­tali við þau um hvernig við eigum að nálg­ast verk­efnin.“

Kristinn segir að hug­veita sé nýtt fyr­ir­bæri á Íslandi en að hug­veitur sé að finna víða um heim og í öllum löndum sem við berum okkur saman við. „Grænland var til dæmis með hug­veitu um öryggis- og varn­ar­mál en ekki Ísland. Það þarf að þjálfa fólk upp í að skilja hvað þetta fyr­ir­bæri er og það er nýtt að það sé óháður aðli sem er ekki hags­mun­að­ili að tala um opin­bera stefnu­mótun og reyna að stuðla að sam­tali.“

Ekki undirbúin

Varða mun halda fleiri við­burði, efla sam­talið meira og betur, auka sam­starf við erlenda aðila og gefa út meira efni. Fyrsta tíma­rit Vörðu kom út stuttu fyrir fyrr­nefnda ráð­stefnu og er gert ráð fyrir tveimur tíma­ritum á ári.

Hvað hefur Kristinn lært af þessu öllu?

„Þetta er frum­kvöðla­starf. Að ein­hverju leyti er þetta þekkt vara, hug­veita, á nýjum mark­aði, Íslandi, og það er alltaf vinna - gef­andi og skemmti­leg vinna - að kynna nýjar hug­myndir fyrir fólki. Ég er búinn að læra það að það veit eng­inn neitt um Ísland sem er ekki á Íslandi. Ég er búinn að læra það að það þarf miklu meiri umræðu og miklu meiri aðgerðir í þessu hér á Íslandi. Almenn­ingur þarf að hafa áhuga á þessu og setja þetta í for­gang til þess að stjórn­málin setji þetta í for­gang. Maður er búinn að læra meira hvað raun­veru­lega er í gangi úti í heimi og hversu yfir­gengi­lega hræði­leg þessi inn­rás Rússa inn í Úkraínu er, hvaða áhrif það er að hafa, hvað þjóðir Eystra­sands­land­anna eru hræddar og hvað þetta er alvar­legt. Við erum svo langt í burtu og þetta verða bara ein­hverjar tölur og ein­hver tweet. Við erum að tala um það að heim­ur­inn er það breyttur að hann mun aldrei verða eins aftur og við vitum ekki hvernig hann mun líta út í fram­tíð­inni. Allt sem við byggjum okkar sjálfs­mynd og sam­fé­lag á er bara smá spurn­inga­merki. Og það er ekki gott. Ég myndi helst bara vilja vera að gera eitt­hvað app en það er allt á mjög vondum stað sem skiptir okkur máli.“

Hvaða ógn telur Kristinn að steðji helst að Íslandi? „Ég veit það ekki. Það er ekki búið að gefa út hættu­mat. Ég held að mesta til­veruógnin teng­ist lofts­lags­breyt­ingum af því að þær gætu sett til­veru Íslands á hlið­ina í verstu sviðs­myndum sem von­andi ger­ist ekki og er alls ekki víst að ger­ist.“

Kristinn seg­ist halda að stóra málið teng­ist alþjóða­kerf­inu og hvernig í krafti yfir­burða Vest­ur­land­anna hafi verið hægt að vera með ákveðna röð og reglu á hlut­unum sem byggir á því sem skiptir okkur máli. Hættan sé að það grotni niður og ekki verði hægt að ná að fóta sig í nýjum heimi ann­ars konar sam­skipta, alþjóða­sam­skipta. Hann nefnir það sem er að ger­ast sums staðar erlendis. „Nið­ur­brot lýð­ræð­is­legrar umræðu, grund­vall­ar­mann­rétt­inda á borð við mál­frelsi, lyk­il­stofn­ana á borð við sjálf­stætt dóms­vald, vænt­inga til stjórn­mála­fólks og pólarís­er­ing í sam­fé­lag­inu. Þetta er að herja á sam­fé­lögin innan frá með dyggri hjálp erlendra stór­velda sem hafa hag af því að Vest­ur­lönd missi fót­anna sem ýtir undir það að við - Vest­ur­lönd -förum í nei­kvæðan spíral.“

Óttast Kristinn fram­tíð­ina varð­andi örygg­is­mál eða örygg­is­leysi á Íslandi og að eitt­hvað ger­ist? „Já, ég ótt­ast ekki að við verðum fyrir inn­rás en ef það hitnar ennþá meira í Evrópu þá munum við drag­ast inn í það hvort sem okkur líkar betur eða verr. Annars vegar af því að þá breyt­ist allt varð­andi hvernig heim­ur­inn virkar og hins vegar gæti stað­setn­ing Íslands verið eitt­hvað sem ein­hver annar gæti haft áhuga á að nýta sér. Ég held að við séum alls ekki und­ir­búin undir það, hvorki sam­fé­lagið né stjórn­kerfið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Stjórnandinn

Viðtal
Stjórnandinn

Forysta snýst ekki um titla heldur áhrif

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, er reynslumikill stjórnandi, móðir og náttúruunnandi. Hún hefur á rúmlega tveggja áratuga ferli leitt fólk, byggt upp vinnustaðamenningu, stýrt breytingum og tekist á við krefjandi verkefni í atvinnulífi, fjölmiðlum og félagasamtökum.
Viðtal
Stjórnandinn

Intró­vert­inn sem þurfti að verða extró­vert

Viðtal
Stjórnandinn

Rík af reynslu og auð­mjúk eftir röð áfalla