Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gauti sakar Katrínu um „kjánalegan orðaleik“

„Getur hún lagst öllu lægra?“

Gauti sakar Katrínu um „kjánalegan orðaleik“
Gauti B. Egg­erts­son, pró­fessor í hag­fræði akar Katrínu um ódýra orða­leiki Mynd: econfip.org

Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hefur lýst því yfir að hún muni greiða atkvæði gegn áfram­hald­andi aðild­ar­við­ræðum Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni sem fram fer á morgun. Þetta er í fyrsta skipti í kosn­inga­bar­átt­unni sem Katrín greinir opin­ber­lega frá afstöðu sinni. Mál­flutn­ingur hennar hefur vakið hörð við­brögð, meðal ann­ars frá Gauta B. Egg­erts­syni hag­fræð­ingi, sem sakar hana um ódýra orða­leiki.

Katrín greindi frá ákvörðun sinni að loknum sam­stöðu­fundi í gær og sagði afstöðu sína hafa breyst frá því að hún sam­þykkti að kanna við­ræður í rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2009. Hún sagði ákvörð­un­ina um að stíga fram erf­iða, enda hafi hún ætlað að halda sig utan við póli­tík­ina, en málið sé ein­fald­lega of stórt fyrir fram­tíð Íslands til að hún gæti þagað.

Yfir­lýs­ing Katrínar sam­ræm­ist stefnu Vinstri grænna, flokks­ins sem hún leiddi áður, en fer þvert gegn ákvörðun núver­andi for­manns flokks­ins, Rósu Bjarkar Brynj­ólfs­dóttur, sem hyggst kjósa með áfram­hald­andi við­ræðum. Katrín árétt­aði þó að hún væri ekki á leið aftur í stjórn­málin.

Hafnar túlkun ríkisstjórnarinnar

Í ræðu sinni á fundi sam­tak­anna Áfram Ísland gagn­rýndi Katrín þá nálgun for­svars­fólks rík­is­stjórn­ar­innar að atkvæða­greiðslan snú­ist ein­ungis um að „kíkja í pakk­ann“ en ekki um aðild­ina sjálfa.

„Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn,“ sagði Katrín. Hún bætti því við að engin þjóð legði af stað í slíka veg­ferð, sem væri risa­vaxin póli­tísk ákvörðun, án þess að vilja raun­veru­lega ganga í Evr­ópu­sam­bandið. Þjóðin sé því að lýsa yfir vilja sínum með beinum hætti en ekki aðeins að skoða mögu­leika.

Sem mennta­mála­ráð­herra árið 2009 kvaðst Katrín hafa talið það skyldu sína að kanna ESB-leið­ina í miðju efna­hags­hruni, en sú veg­ferð hafi að lokum styrkt hana í þeirri sann­fær­ingu að aðild hent­aði ekki Íslandi. Hún nefndi strangar kröfur sam­bands­ins gagn­vart kreppu­ríkjum, patt­stöðu í við­ræðum um sjáv­ar­út­veg og land­búnað, auk þess sem stjórn­ar­skipan ESB væri ekki eins lýð­ræð­is­leg og hún vildi sjá.

Gauti sakar Katrínu um „kjánalegan orðaleik“

Mál­flutn­ingur Katrínar hefur mætt harðri and­stöðu og tók hag­fræð­ing­ur­inn Gauti B. Egg­erts­son til máls í opin­berri færslu þar sem hann svar­aði frétt­inni.

„Getur Katrín lagst öllu lægra,“ spyr Gauti í færslu sinni. „Þarf hún virki­lega líka að taka upp tal­punkta Hannesar Hól­steins og Áfram Íslands með þessum mál­flutn­ingi sem allir sjá að er kjána­legur orða­leikur.“

Gauti notar sam­lík­ingu úr atvinnu­líf­inu til þess að hrekja rök­semda­færslu Katrínar um að umsókn jafn­gildi end­an­legri ákvörðun um inn­göngu:

„Þegar þú sækir um vinnu, segjum t.d. hjá fast­eigna­fé­lag­inu Eykt, bendir það vissu­lega til áhuga þíns til að starfa fyrir það félag. Hvort þú takir því starfi fer eftir því hvaða kjör eru í boði, og hvort í því felist ein­hverjar aðrar óvæntar og sér­kenni­legar skyldur. Hvort þú takir svo starf­inu er svo allt annað mál og fer eftir því hvernig samn­ingur er í boði,“ skrifar Gauti að lokum.

Ljóst er að yfir­lýs­ing fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra hefur hleypt miklum hita í loka­sprett kosn­inga­bar­átt­unnar fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una á laug­ar­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag