Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helgi Seljan biðst afsökunar

„Og hvað nú?“

Helgi Seljan biðst afsökunar
Helgi Seljan Er einn þekkt­asti fjöl­miðla­maður Íslands. Mynd: Heiða Helgadóttir

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Helgi Seljan gagn­rýnir harð­lega ákvörðun um að hætta frétta­út­send­ingum Stöðvar 2 og segir lokun frétta­stof­unnar marka mikil tíma­mót í íslenskri fjöl­miðla­sögu. Þetta kemur fram í ítar­legri færslu sem Helgi birtir á Facebook.

Helgi segir frétta­stofu Stöðvar 2 hafa gegnt lyk­il­hlut­verki í íslenskri fjöl­miðlun allt frá stofnun hennar fyrir fjöru­tíu árum. Að hans mati hafi til­koma frétta­stof­unnar leitt til mik­illa fram­fara í íslenskri blaða­mennsku og jafn­framt veitt öðrum fjöl­miðlum, ekki síst RÚV, mik­il­vægt aðhald.

„Frétta­stofan hefur síðan, oft verið leið­andi í gagn­rýn­inni blaða­mennsku en líka séð til þess að halda keppi­nautum sínum – þá helst RÚV – við efnið,“ skrifar Helgi.

Hann þekkir starf­sem­ina af eigin raun en starf­aði á frétta­stof­unni í tvö ár fyrir um tveimur ára­tugum. Þar hafi starfað reynslu­mikið fag­fólk sem hafi lagt áherslu á gagn­rýna og aðgangs­harða blaða­mennsku.

Helgi beinir jafn­framt sjónum að eig­endum Sýnar und­an­farin ár og sér­stak­lega aðkomu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Hann nefnir meðal ann­ars Líf­eyr­is­sjóð versl­un­ar­manna, Gildi, Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins og Birtu og gagn­rýnir að þeir hafi fylgst með þróun fyr­ir­tæk­is­ins án þess að koma í veg fyrir þá stöðu sem nú sé komin upp.

Hann segir sjón­varps­frétta­stofu vissu­lega ekki vera auð­veldan eða sér­stak­lega arð­bæran rekstur en telur jafn­framt að ýmsar ákvarð­anir hafi verið teknar í rekstri fyr­ir­tæk­is­ins und­an­far­inn ára­tug sem vert sé að gagn­rýna.

Helgi segir sér­stak­lega kald­hæðn­is­legt að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna sé líf­eyr­is­sjóður margra þeirra blaða­manna sem nú hafi misst störf sín.

Í lok færsl­unnar beinir Helgi orðum sínum að fyrr­ver­andi sam­starfs­fólki sínu sem ann­að­hvort hafi verið sagt upp eða sitji áfram eftir á frétta­stof­unni við breyttar aðstæður.

„Ég hef að vísu borgað í þrjá af þessum líf­eyr­is­sjóðum – sem eiga eða áttu ykkur, svo kannski fer bara best á því ég biðji ykkur afsök­unar,“ skrifar Helgi og lýkur færsl­unni á spurn­ing­unni:

„Og hvað nú?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi