Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Tímamót í fjölmiðlasögu

Sýn hættir fram­leiðslu sjón­varps­frétta og Íslandi í dag

Tímamót í fjölmiðlasögu
Rit­stjórn frétta­stofu Sýnar Síðasti sjón­varps­frétta­tími í kvöld Mynd: Sýn

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið Sýn hefur ákveðið að hætta fram­leiðslu og útsend­ingu sjón­varps­frétta frá og með 1. sept­em­ber 2026. Síðasti sjón­varps­frétta­tím­inn á SÝN verður sendur út í kvöld og lýkur þar með 40 ára sam­felldri sögu sjón­varps­frétta hjá félag­inu, sem hófst með til­komu Stöðvar 2 árið 1986. Samhliða þessu verður fram­leiðslu og útsend­ingu á þætt­inum Íslandi í dag hætt og munu upp­sagnir ganga yfir það starfs­fólk sem sinnt hefur sjón­varps­frétta­fram­leiðslu.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Herdísi Dröfn Fjeld­sted, for­stjóra Sýnar, sem send var starfs­fólki í morgun. Í til­kynn­ing­unni segir að störfum hjá fyr­ir­tæk­inu verði fækkað, einkum meðal þeirra sem koma að frétta­flutn­ingi í sjón­varpi.

Breyttar neysluvenjur og harðnandi samkeppni

Ákvörðun Sýnar er sögð tekin í ljósi mik­illa breyt­inga á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði á und­an­förnum árum. Frétta­neysla almenn­ings hefur færst í vax­andi mæli frá línu­legu sjón­varpi yfir á staf­ræna miðla, sem hefur veikt tekju­grunn inn­lendra fjöl­miðla. Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands rann meira en helm­ingur (51%) af öllu aug­lýs­ingafé á Íslandi til alþjóð­legra tæknirisa á borð við Google og Meta árið 2024.

Þessi þróun hefur gert sam­keppni einka­rek­inna miðla við Rík­is­út­varpið á aug­lýs­inga­mark­aði að enn meiri áskorun. Í til­kynn­ing­unni kemur fram að til­lögur stjórn­valda til stuðn­ings einka­reknum fjöl­miðlum hafi ekki haft nægj­an­leg áhrif á rekstur sjón­varps­frétt­anna til að breyta þess­ari nið­ur­stöðu.

Horft til framtíðar á Vísi og Bylgjunni

Sýn ætlar að beina kröftum sínum í auknum mæli að staf­rænum miðlum og útvarpi þar sem eft­ir­spurnin er mest. Mark­miðið er að styrkja frétta­þjón­ust­una á vef­miðl­inum Vísi og útvarps­stöð­inni Bylgj­unni, og tryggja um leið grund­völl fyrir sjálf­bærum rekstri til fram­tíðar. Vísir er í dag á meðal vin­sæl­ustu vef­miðla lands­ins og um 170 þús­und manns á aldr­inum 12 til 80 ára hlusta á útvarps­stöðvar Sýnar í hverri viku.

Í til­kynn­ing­unni segir að frétta­stofa Sýnar muni áfram sinna frétta­þjón­ustu af fag­mennsku og þróa miðl­un­ina í takt við breyttar venjur lands­manna. Þá færði for­stjóri Sýnar því starfs­fólki sem verður fyrir áhrifum af breyt­ing­unum inni­legar þakkir fyrir ómet­an­legt og mik­il­vægt fram­lag í þágu félags­ins í gegnum árin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ