Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“

Sið­ferð­is­um­ræða hefur skap­ast í kjöl­far þess að frétta­mað­ur­inn lék í aug­lýs­ingu

Telur Magnús Hlyn vera „á svokölluðu gráu svæði“
Magnús Hlynur er einn þekkt­asti frétt­maður Íslands Hefur und­an­farið unnið á RÚV Mynd: Samsett

Þátttaka Magnúsar Hlyns Hreið­ars­sonar, frétta­manns RÚV, í aug­lýs­ingu fyrir jólatón­leik­ana Vitr­ing­ana 3 hefur vakið umræðu um mörkin milli starfa frétta­manna og þátt­töku þeirra í aug­lýs­ingum.

Í aug­lýs­ing­unni leikur Magnús Hlynur sjálfan sig í hlut­verki frétta­manns. Vitr­ing­ana 3 standa þeir Eyþór Ingi Gunn­laugs­son, Friðrik Ómar Hjör­leifs­son og Jógvan Hansen fyrir.

Umræða hefur skap­ast á sam­fé­lags­miðlum um hvort þátt­taka starf­andi frétta­manns í aug­lýs­ingu geti skapað hags­muna­á­rekstra eða haft áhrif á trú­verð­ug­leika hans.

Magnús Hlynur vildi ekki veita Mannlífi við­tal vegna máls­ins og vís­aði á Heiðar Örn Sig­ur­finns­son, frétta­stjóra RÚV.

Heiðar sagði í skrif­legu svari að leyfi hefði verið veitt fyrir þátt­tök­unni en mis­skiln­ingur hefði komið upp um tíma­setn­ingu birt­ingar aug­lýs­ing­ar­innar.

„Í þessu til­felli sem þú vísar til var gefið leyfi fyrir mis­skiln­ing um tíma­setn­ingar. Það var mis­skiln­ingur um það hvenær þetta átti að birt­ast. Ef fólk er á tíma­bundnum samn­ingum getur það skipt máli,“ sagði Heiðar.

Hann vildi ekki svara því hvort almenn regla hjá RÚV væri sú að frétta­menn mættu ekki koma fram í aug­lýs­ingum.

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, vildi ekki taka sér­staka afstöðu til þess hvort frétta­menn ættu að koma fram í aug­lýs­ingum fyrir fyr­ir­tæki en vís­aði til siða­reglna félags­ins í heild sinni.

Aug­lýs­ingin umrædda

Óvissa um áframhaldandi störf

Greint var frá upp­sögnum og öðrum hag­ræð­ing­ar­að­gerðum hjá RÚV í gær. Aðspurður um fram­tíð Magnúsar Hlyns hjá miðl­inum sagði Heiðar að hún væri enn óljós.

„Það eru sam­töl í gangi við hann um hvort það verður fram­hald og þá á hvaða formi en það liggur ekk­ert fyrir ennþá,“ sagði Heiðar.

Varar við óhóflegum kröfum

Mannlíf leit­aði einnig álits Henrys Alex­and­ers Henrys­sonar á mál­inu. Hann segir að þátt­taka frétta­manna í aug­lýs­ingum geti fallið á grátt svæði og að meta þurfi hvert til­vik fyrir sig.

„Mér sýn­ist þannig að það dæmi sem núna er í umræð­unni vera á svoköll­uðu gráu svæði fremur en aug­ljós­lega ámæl­is­vert,“ segir Henry.

Hann bendir á að mik­il­vægt sé að líta til þess hvaða hags­munir séu undir og hvers konar vara eða þjón­usta sé aug­lýst. Annað eigi til dæmis við þegar um skemmti­efni sé að ræða en þegar frétta­maður nýti trú­verð­ug­leika sinn til að kynna umdeilda eða skað­lega vöru.

Henry telur þátt­töku Magnúsar Hlyns ekki hafa farið yfir sið­ferði­leg mörk.

Hann varar jafn­framt við því að gera óhóf­legar sið­ferð­is­kröfur og gagn­rýna hvert til­vik með sama þunga. Stöðug hneykslan geti gert almenn­ing ónæm­ari fyrir þeim málum þar sem raun­veru­leg ástæða sé til að grípa inn í.

Trúverðugleiki lykilatriði

Henry segir umræð­una þó mik­il­væga enda séu fáar starfs­stéttir jafn háðar trú­verð­ug­leika og frétta­menn.

„Án trausts eru fréttir í raun ákaf­lega lít­ils virði og raunar bara eins og hver önnur upp­lýs­inga­gjöf,“ segir hann.

Þegar trú­verð­ug­leiki sé undir þurfi sér­stak­lega að huga að óhlut­drægni og mögu­legum hags­muna­tengslum. Gagnsæi geti þó einnig skipt miklu máli og hags­muna­tengsl þurfi ekki sjálf­krafa að úti­loka trú­verð­ug­leika ef þau séu öllum ljós.

Henry segir erfitt að setja algildar og nákvæmar starfs­reglur um slík mál. Þess vegna hafi siða­reglur frekar verið not­aðar sem við­mið sem geri ráð fyrir gráum svæðum og að fólk beiti eigin dóm­greind.

„Of geir­negldar reglur geta orðið hjá­kát­legar – það verður að vera rými fyrir fólk að beita dóm­greind sinni,“ segir Henry.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag