Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress

Nú dregur úr ódýrum net­kaupum

Sérstakt gjald lagt á fatnað frá Shein, Temu og AliExpress
Lögin sögð mis­muna fyr­ir­tækjum Mynd: Unsplash/Linus Belanger

Stjórn­völd í Frakk­landi hafa hert reglur um svo­kall­aða hrað­tísku og inn­leitt sér­stakt umhverf­is­gjald á fatnað sem seldur er á net­inu. Lögin, sem tóku gildi í byrjun sept­em­ber, bein­ast sér­stak­lega gegn stórum kín­verskum net­versl­unum á borð við Shein, Temu og Ali­Ex­press. Markmið ráð­staf­an­anna er að sporna gegn ofneyslu og draga úr útbreiðslu á ódýrum fatn­aði sem end­ist stutt og mengar mikið. Frakk­land er fyrsta landið innan Evr­ópu­sam­bands­ins sem grípur til jafn afger­andi aðgerða gegn við­skipta­mód­eli hrað­tísku­fyr­ir­tækja, að því fram kemur í frétt Reuters.

Allt að 12 evra gjald á jakka

Auka­gjaldið lagð­ist á vörur strax í þess­ari viku og ræðst upp­hæðin af teg­und flík­ur­innar. Um er að ræða stig­vax­andi gjald­skrá:

  • Nærföt: 0,5 evrur á flík.
  • Stutt­erma­bolir: 2 evrur á flík.
  • Galla­buxur: 9 evrur (um 1.265 krónur).
  • Jakkar: 12 evrur (rúm­lega 1.680 krónur).

Á næstu fjórum árum mun gjaldið hækka reglu­lega og stefnt er að því að það verði orðið allt að 20 evrur (um 2.800 krónur) á hverja flík árið 2030. Lögin kveða þó á um það hámark að gjaldið megi aldrei vera hærra en sem nemur helm­ingi af upp­runa­legu verði vör­unnar fyrir skatta.

4.700 nýjar flíkur á dag

Hrað­tíska er í nýju lög­unum skil­greind út frá tveimur meg­in­þáttum: magni flíka sem fyr­ir­tæki setja á markað á hverjum degi og því hversu dýrt er að gera við flík­ina í sam­an­burði við sölu­verð hennar.

Umsvif þess­ara fyr­ir­tækja eru gríð­ar­leg; til dæmis bauð Shein upp á rúm­lega tvær millj­ónir vöru­teg­unda í net­verslun sinni í vor og bætir við um 4.700 nýjum fata­teg­undum á mark­að­inn á hverjum ein­asta degi. Serge Papin, við­skipta­ráð­herra Frakk­lands, gagn­rýndi fyr­ir­tækin harð­lega í sam­tali við franska dag­blaðið Ouest France. Hann sagði þau gefa sig út fyrir að verja kaup­mátt en selja í stað­inn varn­ing sem upp­fyllir ekki gæða­kröfur og end­ist skammt.

Auk þess sýna rann­sóknir að hluti af vörum frá Temu og Shein inni­heldur eit­ur­efni langt yfir leyfi­legum mörkum í Evrópu. Sú þróun hefur þegar haft áhrif hér á landi, þar sem dæmi eru um að nytja­mark­aðir og versl­anir með not­aðan fatnað neiti að taka við fötum frá þessum risum.

Kínverjar segja lögin mismuna

Nýju regl­urnar hafa ekki mælst með ein­róma lofi. Við­skipta­ráðu­neyti Kína hefur mót­mælt lög­unum harð­lega og segir þau fela í sér mis­munun sem brjóti mögu­lega gegn meg­in­reglum Alþjóða­við­skipta­stofn­un­ar­innar (WTO).

Gagn­rýn­is­raddir hafa einnig heyrst innan Evrópu, þar sem evr­ópsk vöru­merki eins og H&M og Zara eru und­an­þegin gjald­inu að svo stöddu. Telja sumir að lög­unum sé ætlað að hlífa evr­ópskum efna­hags­legum hags­munum fremur en að vernda umhverfið. Franska rík­is­stjórnin stendur þó fast á sínu og telur aðgerð­irnar nauð­syn­legt skref í átt að sjálf­bær­ari fram­tíð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife