Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Þorvaldur hótaði ítrekað að myrða lögreglumenn og börn þeirra
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Þor­valdur Harry Þor­valds­son hefur verið dæmdur í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir ítrek­aðar hót­anir í garð lög­reglu­manna á árunum 2023 til 2025. Meðal ann­ars hót­aði hann að skjóta lög­reglu­menn, drepa börn þeirra og kýla tenn­urnar úr einum þeirra.

Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag, 17. sept­em­ber. Þor­valdur var ákærður fyrir þrjú brot gegn vald­stjórn­inni.

Í fyrsta til­vik­inu hafði Þor­valdur verið hand­tek­inn í Reykja­vík og færður í lög­reglu­bif­reið. Þar hrækti hann á öxl lög­reglu­manns með þeim afleið­ingum að hrák­inn kastað­ist á hægri kinn hans.

Við flutn­ing á lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu hót­aði hann síðan þremur lög­reglu­mönnum líf­láti. Sagði hann meðal ann­ars:

„The next time I get a long gun, I will kill every cop I can,“ og bætti síðar við: „Before I die I´m going to kill couple of you motherfuckers.“

Hót­an­irnar héldu áfram í fanga­mót­töku lög­reglu­stöðv­ar­innar. Þar sagð­ist Þor­valdur ætla að reyna að drepa alla lög­reglu­menn sem hann fyndi næst þegar honum yrði sleppt úr haldi.

„Next time I get locked up, when you let me I am going to try to kill every fucking pig I find, I mean that seriously…get me a long gun,“ sagði hann sam­kvæmt ákærunni.

Þegar verið var að færa hann í fanga­klefa hót­aði hann jafn­framt að drepa lög­reglu­menn og börn þeirra.

„When I get a long gun I gurantee you I am going to kill at least five of you motherfuckers,“ sagði Þor­valdur og bætti við: „No I am threa­ten­ing to kill your children.“

Í öðru til­viki var Þor­valdur hand­tek­inn í Aust­ur­stræti. Við flutn­ing á lög­reglu­stöð hót­aði hann lög­reglu­manni lík­ams­meið­ingum.

„Next when I see you and I am sober I am going to beat the shit out of you,“ sagði hann og bætti við: „I will take your teeth out.“

Í þriðja til­vik­inu hót­aði hann tveimur lög­reglu­mönnum eftir hand­töku. Sagði hann meðal ann­ars: „I´m going to kill you.“

Þor­valdur mætti ekki við fyr­ir­töku máls­ins 8. sept­em­ber þrátt fyrir að ákæra og fyr­ir­kall hefðu verið lög­lega birt.

Fram kemur í dómnum að Þor­valdur eigi nokkurn saka­feril að baki en eldri brot hafi ekki haft áhrif á refs­ingu þar sem langt sé um liðið. Hann hafði meðal ann­ars árið 2016 hlotið fimm mán­aða fang­els­is­dóm fyrir brot gegn vald­stjórn­inni.

Refsing Þor­valdar var ákveðin þriggja mán­aða fang­elsi. Fulln­ustu refs­ing­ar­innar er frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skil­orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi