Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur íslenskum karlmanni fyrir ítrekuð brot gegn valdstjórninni á árunum 2023 til 2025.
Samkvæmt ákæru er manninum gefið að sök að hafa í þremur aðskildum tilvikum hótað lögreglumönnum lífláti og alvarlegu ofbeldi í kjölfar handtöku og meðan á flutningi hans og vistun á lögreglustöð stóð.
Elsta atvikið er frá febrúar 2023 þegar hann var handtekinn á Skúlagötu í Reykjavík. Þar er honum meðal annars gefið að sök að hafa hrækt á lögreglumann og ítrekað hótað lögreglumönnum lífláti. Samkvæmt ákæru lét hann einnig falla hótanir um að drepa börn lögreglumanna.
Annað atvikið átti sér stað í október 2024 eftir handtöku við Austurstræti. Þar á hann að hafa hótað lögreglumanni líkamsmeiðingum og sagst ætla að berja hann og slá úr honum tennurnar.
Þriðja atvikið er frá júlí 2025 þegar ákærði var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Þá á hann meðal annars að hafa hótað tveimur lögreglumönnum lífláti og líkamsmeiðingum.
Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.































Athugasemdir