Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Guðjón Þórðarson í „bölvuðu basli“

„Þetta eru erf­iðir dagar, vikur og mán­uðir“

Guðjón Þórðarson í „bölvuðu basli“
Guðjón Þórð­ar­son opnar sig um veik­indin Mynd: Skjáskot/RÚV

Guðjón Þórð­ar­son, einn reynslu­mesti knatt­spyrnu­þjálf­ari þjóð­ar­innar, glímir við mik­inn heilsu­brest þessi miss­erin. Guðjón greind­ist með Park­in­son-veiki árið 2023 og þjá­ist auk þess af alvar­legum bak­vanda­málum. Hann fylgist þó enn náið með íslenskum fót­bolta og lýsir yfir ánægju með nýjan leikstíl lands­liðs­ins, þótt hann hafi áhyggjur af ákveðnum þáttum.

Í við­tali hjá RÚV opnar Guðjón sig um erf­iða bar­áttu við veik­indi. Hinn 71 árs gamli þjálf­ari, sem stýrði karla­lands­lið­inu á árunum 1997–1999, segir síð­ustu mán­uði hafa verið þunga en veik­indin hafa skert hreyfi­getu hans veru­lega.

„Ég hef nú verið betri. Þetta eru erf­iðir dagar, vikur og mán­uðir. Það er tvennt sem hefur verið að hrjá mig. Annars vegar Park­in­son sem ég greind­ist með árið 2023 og síðan hef ég verið með bak­vanda­mál. Þetta leiðir niður í fætur og ég missi mátt,“ segir Guðjón, sem hefur þurft að styðj­ast við göngu­grind og hjóla­stól. Markmið hans sé þó skýrt: að hressa upp á lík­amann og kom­ast aftur í golf.

Agi og skipulag framar öllu

Í við­tal­inu rifjar Guðjón upp lands­liðsárin sín þar sem hann inn­leiddi strangan aga. Hann stopp­aði áfeng­is­neyslu stjórn­ar­manna í hádeg­is­mat með leik­mönnum og hélt fast í skipu­lags­hand­bók­ina þegar leik­menn vildu bregða sér af hót­eli.

Aginn skil­aði sér á vell­inum, meðal ann­ars í hinu fræga 1-1 jafn­tefli gegn heims­meist­urum Frakka haustið 1998. Guðjón bindur endi á sögu­sagnir um að jöfn­un­ar­mark Ríkharðs Daða­sonar hafi verið til­viljun. „Þetta var upp­lagt og æft,“ segir Guðjón, en upp­skriftin var að trufla franska mark­vörð­inn Fabien Barthez í háum boltum.

Eftir þann leik átti sér stað eitt eft­ir­minni­leg­asta atvik íslenskrar íþrótta­sögu þegar Ingólfur Hann­es­son, frétta­maður RÚV, kyssti Guðjón í beinni útsend­ingu. Guðjón rifjar það upp með bros á vör og segir það vera fræg­asta koss sem hann hafi fengið, þótt hann hefði frekar viljað sleppa honum.

Hrifinn af Arnari en áhyggjur af vörninni

Guðjón fylgist enn vel með bolt­anum og lýsir yfir ánægju með Arnar Gunn­laugs­son, sem tók við lands­lið­inu fyrr á þessu ári (2025). Hann hrósar Arnari fyrir að færa bolt­ann hraðar í gegnum liðið en bendir á að vörnin sé áhyggju­efni.

„Það er verk­efni fyrir íslenskan fót­bolta að búa til mið­verði og djúpar sexur fyrir Ísland. Það ger­ist ekki á þeim árum sem Arnar verður við völd,“ segir Guðjón og bætir því við að þetta sé sam­fé­lags­legt verk­efni. Þá gerir hann ríkar kröfur til lík­am­legrar hreysti leik­manna í dag og segir ólíð­andi að sjá lands­liðs­menn leggj­ast niður með krampa á 60. mín­útu.

Guðjón hefur alið af sér marga af helstu þjálf­urum lands­ins, en auk Arnars má nefna Rúnar Krist­ins­son, Heimi Guð­jóns­son og Óskar Hrafn Þor­valds­son. Hann seg­ist njóta þess að fylgj­ast með sínum gömlu mönnum á hlið­ar­lín­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu