Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi

Biðlistar lengj­ast og vandi eykst

Börn bíða mánuðum og árum saman eftir aðstoð á Íslandi
Þúsundir barna í langri bið eftir aðstoð Mynd: Shutterstock

Nýjustu tölur Umboðs­manns barna sýna alvar­lega stöðu í heil­brigðis- og grein­ing­ar­kerf­inu. Þúsundir barna bíða mán­uðum eða árum saman eftir nauð­syn­legri grein­ingu og með­ferð. Umboðs­maður barna Salvör Nordal skorar á stjórn­völd að setja mála­flokk­inn í algjöran for­gang.

Umboðs­maður barna hefur birt upp­lýs­ingar um bið barna eftir þjón­ustu í tíunda sinn. Nið­ur­stöð­urnar sýna að þrátt fyrir fyr­ir­heit stjórn­valda og tals­verða umræðu í sam­fé­lag­inu hefur staðan víða farið versn­andi. Gríð­ar­legur fjöldi barna situr fastur á biðlistum sem lengj­ast mánuð frá mán­uði.

Yfir 2.700 börn bíða hjá Geðheilsumiðstöð barna

Þunginn er mestur hjá Geð­heilsu­m­ið­stöð barna þar sem alls 2.705 börn bíða nú eftir grein­ingu. Þar af hefur mik­ill meiri­hluti, eða 2.591 barn, beðið lengur en þrjá mán­uði. Börnum á biðlist­anum hefur fjölgað um 252 síðan í febr­úar og þeim sem hafa beðið lengur en þrjár vikur hefur fjölgað um 691 á sama tíma­bili. Staðan er svipuð hjá öðrum lyk­il­stofn­unum:

  • Ráð­gjafar- og grein­ing­ar­stöð: 774 börn eru á biðlista og hafa 697 þeirra beðið lengur en þrjá mán­uði.
  • Göngu­deild BUGL: Þar bíða 42 börn og hafa 31 þeirra beðið lengur en þrjá mán­uði. Til sam­an­burðar hafði ekk­ert barn beðið svo lengi í febr­úar síð­ast­liðnum.
  • Heil­brigð­is­stofnun Norð­ur­lands: Meðalbið eftir sál­fræði­þjón­ustu er nú 428 dagar og hafa 165 af 206 börnum á list­anum beðið lengur en þrjá mán­uði.

Jákvæð teikn inn á milli en heildarmyndin alvarleg

Þótt útlitið sé dökkt á stóru stofn­un­unum má sjá jákvæðar breyt­ingar á ein­staka stöðum. Börnum sem bíða eftir með­ferð í Barna­húsi hefur fækkað og þá hafa biðlistar styst hjá Heilsu­skól­anum. Hinar almennu tölur sýna hins vegar að kerfið hrópar á mark­vissar og sam­ræmdar aðgerðir.

Snemmtæk íhlutun í hættu

Salvör Nordal, umboðs­maður barna, segir stöð­una óvið­un­andi og bendir á afleið­ingar þess að láta börn bíða mán­uðum eða árum saman eftir aðstoð.

„Á meðan börn bíða mán­uðum og jafn­vel árum saman getur vandi þeirra auk­ist og tæki­færi til snemmtækrar íhlut­unar glat­ast,“ segir Salvör.

Hún sendir skýr skila­boð til ráða­manna:

„Embætti umboðs­manns barna skorar á stjórn­völd að setja í algjöran for­gang að stytta bið barna og tryggja að börn fái þá þjón­ustu sem þau þarfn­ast, þegar þau þurfa á henni að halda.“

Nánari sund­ur­liðun á töl­fræð­inni og stöð­unni á hverri stofnun fyrir sig má finna á vefnum barn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Verslunin í Hafnarfirði hefur verið sjálfstæð um áratuga skeið
Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag