Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð

Nýtt til­rauna­verk­efni á Akureyri?

Vilja breyta vannýttu svæði á Akureyri í lifandi samfélagsgarð
Skora á Akur­eyr­arbæ að breyta snjó­geymslu við Mýrarveg í sam­fé­lags­garð

Fimm manna starfs­hópur vinnur nú að skýrslu sem leggja á fyrir bæj­ar­stjórn Akur­eyrar þar sem þess er farið á leit að van­nýttu svæði við Mýrarveg verði breytt í lif­andi sam­fé­lags­garð. Hug­myndin snýst um að efla lýð­heilsu, vinna gegn félags­legri ein­angrun og skapa grænan sam­veru­stað fyrir íbúa á öllum aldri.

Það er Eyrún Gígja Kára­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Umhverfis- og orku­stofnun, sem varpar hug­mynd­inni fram í grein sem birt­ist á akur­eyri.net. Auk Eyrúnar skipa starfs­hóp­inn þau Heiðrún Sig­urð­ar­dóttir, for­stöðu­maður Mat­jurta­garða Akur­eyrar, Valur Þór Hilm­ars­son, for­stöðu­maður Lysti­garðs­ins, og Fjóla Sig­urð­ar­dóttir og Margrét Alfreðs­dóttir fyrir hönd stjórnar Félags eldri borg­ara á Akureyri (EBAK).

Úr snjógeymslu í grænan þráð hverfisins

Horft er til svæðis við norð­ur­enda Mýr­ar­vegar, nánar til tekið sunnan við blokk­irnar númer 111–117. Svæðið er í dag nýtt sem snjó­geymsla á vet­urna en undir möl og bygg­ing­ar­efni á sumrin, og mýr­lent svæðið er oft blautt og subbu­legt langt fram á sumar.

Hópurinn sér mikla mögu­leika í að breyta þessu svæði í hjarta græns þráðar sem tengi saman Kletta­borg­ar­hverfi, Mýr­ar­hverfi og Gerða­hverfi. Hug­mynd­irnar fela meðal ann­ars í sér:

  • Upp­hækkuð rækt­un­ar­beð og lítil gróð­ur­hús sem henta fólki á öllum aldri.
  • Sam­veru­svæði með bekkjum, borðum, úti­skák, pétanque-velli og ein­földum lík­ams­rækt­ar­tækjum.
  • Betri göngu- og hjóla­stíga sem lið­ast á milli trjánna á nær­liggj­andi grónum svæðum, auk útsýn­is­staðar á klöpp­unum með útsýni yfir Eyja­fjörð.

„Ræktum ekki aðeins grænmeti, við ræktum samfélag“

Rækt­un­ar­mögu­leikar eru þegar til staðar á Akureyri hjá Gömlu gróðr­ar­stöð­inni, en Eyrún leggur áherslu á að sam­fé­lags­garður snú­ist fyrst og fremst um fólkið og nærum­hverfið. Garð­ur­inn eigi að vera staður þar sem engin krafa er gerð, þar sem nágrannar hitt­ast, nýir íbúar kynn­ast hverf­inu og eldri borg­arar miðla þekk­ingu til yngri kyn­slóða. „Þannig ræktum við ekki aðeins græn­meti, við ræktum sam­fé­lag,“ skrifar Eyrún.

Áskorun um að byrja smátt

Hópurinn skorar á nýjan meiri­hluta hjá Akur­eyr­arbæ að dusta rykið af eldri til­lögum og gefa verk­efn­inu tæki­færi með því að byrja smátt. Lagt er til að ráð­ast ekki í dýrar heild­ar­fram­kvæmdir strax, heldur setja upp nokkur rækt­un­ar­beð og bekki og prófa verk­efnið sem til­raun í tvö til þrjú sumur til að meta áhug­ann.

Að lokum hvetur starfs­hóp­ur­inn áhuga­sama bæj­ar­búa sem vilja taka þátt í mótun skýrsl­unnar og verk­efn­is­ins til að setja sig í sam­band við ein­hvern úr hópnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil