Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Ára­tug­a­reynsla úr sjón­varpi, leik­húsi, Eurovision og drag­heim­inum sam­einuð í nýju íslensku förð­un­ar­merki þar sem sköp­un­ar­gleði og frelsi eru í fyr­ir­rúmi.

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup
„Hæ Halla, þetta er Skjöldur, eigum við að setja saman okkar eigin augnskugga­pal­lettu?“ Mynd: Íris Hólm Jónsdóttir

Förð­un­ar­fræð­ing­arnir Halla Þór­ar­ins­dóttir og Skjöldur Mio Eyfjord kynna íslenska förð­un­ar­merkið Just Makeup. Vöru­merkið byggir á ára­tug­a­reynslu þeirra úr íslenskum og alþjóð­legum skemmt­ana­bransa og er ætlað öllum sem vilja nota förðun á eigin for­sendum. Vörurnar eru fáan­legar á Íslandi í net­verslun Just Makeup.

Just Makeup hófst með einu sím­tali og ein­faldri spurn­ingu:

„Hæ Halla, þetta er Skjöldur, eigum við að setja saman okkar eigin augnskugga­pal­lettu?“ Upp­haf­lega ætl­uðu þau aðeins að þróa eina augnskugga­pal­lettu. Hug­myndin stækk­aði hins vegar fljótt og varð að heilli vöru­línu með skýra sýn: Að gera vand­aða förðun aðgengi­lega, skemmti­lega og auð­velda í notkun.

„Við höfum bæði unnið við förðun í mörg ár og séð ólíkar hliðar hennar á sviði, bak­sviðs, í sjón­varpi, kvik­myndum, mynda­tökum og í dag­legu lífi. Við vildum skapa gæða­vöru­merki sem setur fólki ekki reglur um hvernig það á að nota makeup. Þú mátt prófa, klúðra, þurrka af og byrja aftur. Það er einmitt hluti af gleð­inni,“ segja Halla og Skjöldur, stofn­endur Just Makeup.

Förðun fyrir alla – án óþarfa reglna

Grunn­hug­mynd Just Makeup er að förðun geti verið hvað sem hver og einn vill að hún sé. Hún getur verið smá mask­ari áður en farið er út úr húsi, rauður vara­litur á venju­legum þriðju­degi eða full­komið glam með glimmeri og augn­hárum. Hún getur líka verið leið til að skapa karakter, prófa eitt­hvað nýtt, tjá sig eða ein­fald­lega gera eitt­hvað skemmti­legt fyrir sjálfa sig.

„Þú þarft ekki að vera atvinnu­förð­un­ar­fræð­ingur, kunna allar regl­urnar eða gera allt full­kom­lega. Þú mátt vera nátt­úru­leg í dag og fara í full-glam á morgun. Það er ekk­ert eitt rétt útlit. Þetta er bara makeup,“ segja stofn­end­urnir.

Markmið fyr­ir­tæk­is­ins er að sam­eina fag­leg gæði, gott nota­gildi, sköp­un­ar­gleði og frelsi.

Vörurnar eru hugs­aðar fyrir fólk á öllum aldri, óháð kyni, reynslu eða því hvers konar förðun það kýs.

Yfir 20 ár í íslenskum fjölmiðlum

Halla Þór­ar­ins­dóttir, for­stjóri og með­stofn­andi Just Makeup, lærði förðun árið 2005 og hóf störf hjá Stöð 2 áður en námi hennar lauk. Hún starf­aði í meira en tvo ára­tugi hjá Stöð 2 og síðar Sýn við fjöl­breytt verk­efni í sjón­varpi og skemmt­ana­brans­anum.

Á ferl­inum hefur Halla meðal ann­ars unnið við Idol, X Factor, Ísland Got Talent, Eurovision, tón­leika, tón­list­ar­mynd­bönd, sjón­varps­þætti, fréttir og fjölda íþrótta­þátta. Hún hefur einnig unnið við karakt­er­sköpun og gervi og borið ábyrgð á förðun heilla sjón­varps­þáttar­aða.

Áhugi Höllu á förðun kvikn­aði strax í æsku. Móðir hennar starf­aði sjálf sem sminka hjá Stöð 2 og Halla fylgd­ist ung með henni að störfum. Halla bjó einnig í Los Angeles í tvö ár, þar sem hún kynnt­ist öðrum hliðum förð­un­ar­heims­ins, sótti við­burði hjá stórum snyrti­vöru­merkjum og vann að verk­efnum innan alþjóð­legs skemmt­ana­bransa. Und­an­farin ár hefur hún haldið förð­un­ar­nám­skeið og hjálpað fólki að öðl­ast sjálfs­traust og finna sína eigin leið í förðun.

„Það sem skiptir mestu máli er að þora – að hugsa út fyrir boxið, prófa sig áfram og hafa gaman. Förðun þarf ekki að vera full­komin, fylgja öllum reglum eða vera flókin. Hún má ein­fald­lega vera þín,“ segir Halla.

Þrjátíu ára reynsla úr sviðslistum og förðun

Skjöldur Mio Eyfjord, skap­andi stjórn­andi og með­stofn­andi Just Makeup, á að baki um 30 ára feril innan förð­unar, sviðs­lista og skap­andi greina. Margir þekkja hann einnig sem dragdrottn­ing­una Mio Amore.

Skjöldur hefur unnið við fjöl­breytt verk­efni fyrir Eurovision, tón­list­ar­mynd­bönd, sjón­varps­þætti, kvik­myndir, leik­hús og mynda­tökur. Hann hefur farðað fjölda brúða, skapað útlit fyrir svið og mynda­vélar og unnið með allt frá lát­lausri förðun yfir í stórt og lit­ríkt sviðs­glamúr.

Í dag starfar hann einnig sem gerva­hönn­uður við leik­hús í Stavan­ger í Noregi. Þar er förðun meðal ann­ars notuð til að breyta aldri, skapa per­sónur og umbreyta leik­urum áður en þeir stíga á svið.

„Dragið kenndi mér að vera óhræddur við förðun – að ýkja, prófa, mis­takast, þurrka af og byrja aftur. Sem Mio Amore hef ég lík­lega sett meira makeup á mitt eigið and­lit en nokkur mann­eskja ætti með góðu móti að við­ur­kenna,“ segir Skjöldur.

„En eftir öll þessi ár hef ég líka lært að góð förðun þarf ekki að vera flókin. Stundum þarf bara smá mask­ara, stundum allan pakk­ann og stundum ekki neitt. Það er ekk­ert rétt eða rangt. Það er bara makeup.“

Sköpun, gleði og frelsi

Just Makeup vill hvetja fólk til að prófa sig áfram og nota förðun sem tæki til sjálf­stján­ingar án óþarfa reglna eða full­komn­un­ar­áráttu. Vörurnar eru í góðum gæðum, á aðgengi­legu verði og hann­aðar með það að mark­miði að þær henti sem flestum, óháð stíl eða ald­urs­hópum.

„Við viljum gera makeup aðgengi­legt, skemmti­legt og fyrir alla. Þegar allt kemur til alls snýst förðun ekki um það sem þú átt að gera. Hún snýst um það sem þig langar að gera,“ segja Halla og Skjöldur.

„Have fun! It’s Just Makeup.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu