Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Fórn­ar­lömb leyndrar mynda­töku stíga fram

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Taka upp mynd­bönd undir pils kvenna án sam­þykkis og birta á YouTube og TikTok Mynd: Skjáskot/BBC

BBC afhjúpar umfangs­mikið net sam­fé­lags­miðlarása þar sem karl­menn taka leyni­lega upp mynd­bönd af konum á skemmti­stöðum um allan heim og hagn­ast á því fjár­hags­lega. Fórn­ar­lömb lýsa miklum ótta eftir að hafa kom­ist að því að mynd­skeið af þeim hafa verið skoðuð af millj­ónum manna.

Umfangs­mikil rann­sókn breska rík­is­út­varps­ins, BBC, sýnir að karl­menn stunda það kerf­is­bundið að elta og taka upp mynd­bönd af konum á næt­ur­lífi stór­borga, oft úr lágum sjón­ar­hornum og án þeirra vit­undar eða sam­þykkis. Mynd­böndin, sem gjarnan eru merkt sem skað­lausar „göngu­ferðir“ eða „næt­ur­lífs­efni“, eru í raun hönnuð til að sýna lík­ams­hluta kvenna í fáum fötum eða stuttum pilsum og er þeim hlaðið upp á miðla borð við YouTube, TikTok, Facebook og Instagram.

Rann­sak­endur BBC bera kennsl á meira en 65 rásir á sam­fé­lags­miðlum sem sér­hæfa sig í þessu efni, en mynd­bönd þeirra hafa sam­an­lagt fengið yfir þrjá millj­arða áhorfa á síð­ustu þremur árum. Efnið er tekið upp í borgum á borð við London, Ósló, Miami og Bangkok, en ein vin­sælasta stað­setn­ingin er Manchester á Englandi.

Leyndar myndavélar og grímubúningar

Frétta­menn BBC fóru huldu höfði í miðbæ Manchester yfir Halloween-helgi til að fylgj­ast með ger­end­unum. Þar komust þeir á spor nokk­urra umsvifa­mestu rekstr­ar­að­ila þess­ara rása. Meðal þeirra voru tveir sænskir bræður, Florjan og Roland Reka. Florjan rekur eina stærstu rás­ina af þessu tagi með tæp­lega 200 millj­ónir áhorfa á YouTube og yfir 600 þús­und fylgj­endur á Facebook.

Að sögn frétta­manna létu bræð­urnir sem þeir væru að skoða sím­ana sína í mjaðma­hæð, en héldu í raun á földum mynda­vélum sem beint var upp undir pils kvenna sem gengu fram hjá. Seinna um helg­ina klædd­ust þeir svörtum grímum til að falla inn í hóp skemmt­a­naglaðra veg­far­enda. Mynd­skeið sem birst hafa á rásum þeirra sýna konur úr lágum sjón­ar­hornum þar sem nær­föt eða rassar sjást, auk flegna barma.

Annar maður sem borið var kennsl á var stað­bund­inn leigu­bíl­stjóri, Dean Hill. Hann sást ganga fram hjá hópum kvenna með litla mynda­vél fest við brjóst­kass­ann, áður en hann snéri við og elti þær til að taka myndir aftan frá. Hill neitar sök og full­yrðir í sam­tali við BBC að mynda­vél hans sé alltaf sýni­leg, hann vísar því á bug að hann sé að ein­blína ákveðna hópa eða taki upp nekt­ar­efni og mynd­bönd undir pils.

„Þetta er ekki eðlilegt. Þetta hefði ekki átt að gerast“

BBC hafði uppi á tæp­lega 50 konum sem sjást í mynd­bönd­unum. Flestar þeirra höfðu ekki hug­mynd um að verið væri að taka þær upp fyrr en frétta­menn höfðu sam­band. Ein þeirra, hin 21 árs gamla Grace (ekki hennar rétta nafn), upp­götv­aði að mynd­band af henni fyrir utan skemmti­stað hafði fengið yfir þrjár millj­ónir áhorfa.

„Ég skipu­lagði klæðn­að­inn minn vand­lega. Í augn­hæð var allt hulið. En sjón­ar­hornið á mynd­band­inu var mun lægra,“ segir hún. Systir hennar, Sophie (18 ára), sem var að fara út að skemmt sér í fyrsta sinn, seg­ist vera skít­hrædd og þorir ekki út lengur. „Þetta er ekki eðli­legt. Þetta hefði ekki átt að ger­ast,“ segir hún.

Fyrir neðan þessi mynd­bönd iða athuga­semda­kerfin af kven­fyr­ir­litn­ingu, þar sem not­endur gera lítið úr kon­unum eða kenna klæðn­aði þeirra um að þær verði fyrir áreitni.

Lagalegt grásvæði

Þótt almennt sé lög­legt að taka upp mynd­bönd á opin­berum svæðum í Bret­landi og víðar, segja lög­fræð­ingar sem sér­hæfa sig í staf­rænu ofbeldi að þessi hátt­semi falli inn á laga­legt grá­svæði. Sýnt þykir að slík hegðun geti brotið gegn lögum um kyn­ferð­is­lega frið­helgi (voyeurism), sér­stak­lega svokölluð „ups­kirt“-lög, sem og lögum um áreitni.

Inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, Shabana Mahmood, lýsti því yfir nýverið í tengslum við svip­aða rann­sókn að rík­is­stjórnin myndi ekki umbera að ný tækni væri notuð til að auka ofbeldi og áreitni gegn konum og stúlkum.

Eftir að BBC kynnti nið­ur­stöður sínar fyrir sam­fé­lags­miðlum brást TikTok við með því að eyða fjórum rásum og YouTube lok­aði tveimur. Margar rásir og mynd­bönd, sér­stak­lega á vegum Facebook og Instagram, eru þó enn full­kom­lega aðgengi­leg á net­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife