Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

„Staða hans er nú orðin afar alvar­leg.“

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Rui Pinto Pinto varð fyrir árás í apríl síð­ast­liðnum Mynd: THOMAS SAMSON / AFP

Maðurinn sem upp­ljóstr­aði um hin fjöl­mörgu brot Manchester City, Rui Pinto hefur nú verið sviptur vernd rík­is­ins.

Pinto stofn­aði Football Leaks og hefur með upp­ljóstr­unum sínum hjálpað til við að afhjúpa myrku hlið­arnar á fót­bolt­anum utan vallar.

Í jan­úar 2017 komst hann yfir ein­hver dýpstu og myrk­ustu leynd­ar­mál Manchester City með því að nýta sér tölvu­póst sem not­aður var í vef­veiða­árás (e. phising). Síðustu daga hefur hann fagnað nið­ur­stöðu máls­ins gegn félag­inu á sam­fé­lags­miðlum, eftir að úrskurður um sekt City var gerður opin­ber.

„Áralangt svindl, lygar og mis­notkun munu loks­ins hafa afleið­ingar,“ skrif­aði hann í einni af fjöl­mörgum færslum sínum á sam­fé­lags­miðl­inum X.

Pinto telur sig eflaust hafa fengið upp­reisn æru með nið­ur­stöðu óháðrar nefndar ensku úrvals­deild­ar­innar. Manchester City hefur þó ítrekað haldið fram sak­leysi sínu og stað­fest að félagið hygg­ist áfrýja nið­ur­stöð­unni.

Portú­galski upp­ljóstr­ar­inn hefur hins vegar fengið slæmar fréttir. Á mið­viku­dag stað­festu portú­gölsk yfir­völd að hann nyti ekki lengur verndar sem vitni. Pinto, sem er 37 ára, hefur verið undir vernd rík­is­ins frá árinu 2020 og meðal ann­ars búið í öruggu hús­næði á vegum yfir­valda. Verndin verður aft­ur­kölluð 10. októ­ber.

Þrátt fyrir að nýlegir atburðir hafi beint kast­ljós­inu að honum á ný hafa yfir­völd nú metið áhætt­una sem steðjar að honum litla. Honum hefur verið ráð­lagt að halda sig frá sam­fé­lags­miðlum, hafa ekki sam­band við fjöl­skyldu sína og forð­ast fjöl­menna staði.

Í yfir­lýs­ingu á föstu­dag kröfð­ust lög­menn hans þess að ákvörð­unin yrði aft­ur­kölluð. Þeir köll­uðu hana „skammar­legar aðgerðir“ og líktu henni jafn­vel við „hryðju­verk rík­is­ins“.

„Staða hans er nú orðin afar alvar­leg. Hót­an­irnar gegn honum eru ekki aðeins fræði­legar; ráð­ist var á hann í Lissabon í apríl síð­ast­liðnum,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

„Upp­ljóstr­anir hans vörð­uðu áhrifa­mikið fólk með gríð­ar­leg fjár­ráð og mörg þeirra mála sem þær leiddu af sér eru enn til með­ferðar. Það sést meðal ann­ars á nið­ur­stöðu sem óháð nefnd ensku úrvals­deild­ar­innar kvað upp fyrir örfáum dögum vegna Manchester City.

Með því að vera skyndi­lega sviptur vernd­uðu hús­næði sínu og skil­inn eftir í afar ótryggri stöðu er Rui Pinto nú ber­skjald­aðri en nokkru sinni frá árinu 2020.“

Lögmenn Pinto segja að honum hafi borist líf­láts­hót­anir eftir að hann lagði mikið í söl­urnar til að afhjúpa mis­ferli á bak við tjöldin í fót­bolta­el­ít­unni. Hann kallar sig upp­ljóstr­ara en hefur jafn­framt verið dæmdur fyrir tölvu­árásir.

Í sept­em­ber 2023 var Pinto, sem áður stund­aði sagn­fræði­nám í Porto, dæmdur í fjög­urra ára skil­orðs­bundið fang­elsi. Hann var fund­inn sekur um til­raun til fjár­kúg­unar, ólög­legan aðgang að gögnum og brot á frið­helgi bréfa­skipta. Málið tengd­ist leka gagna frá Doyen Sports, fjár­fest­ing­ar­sjóði og umboðs­skrif­stofu.

Pinto hafði áður verið þekktur undir dul­nefn­inu „John“, áður en raun­veru­legt nafn hans kom í ljós. Hann hafði brot­ist inn í tölvu­kerfi Doyen Sports og lekið fjölda skjala sem vöktu heims­at­hygli.

Hann var fram­seldur frá Ung­verja­landi til Portú­gals í mars 2019 til að svara til saka. Pinto hafði þá búið í höf­uð­borg­inni Búdapest. Fram­salið átti sér stað aðeins nokkrum mán­uðum eftir að fyrstu ásak­an­irnar á hendur Manchester City komu fram.

Í nóv­em­ber 2018 birti þýska tíma­ritið Der Spiegel fréttir byggðar á gögnum sem Pinto hafði stolið. Þar var því haldið fram að Manchester City hefði brotið fjár­hags­reglur til að ná for­skoti á keppi­nauta sína. Þessar afhjúp­anir leiddu fyrst til ákæru UEFA á hendur félag­inu og síðar til máls­ins hjá ensku úrvals­deild­inni, en nið­ur­staða þess hefur nú loks verið kynnt.

UEFA bann­aði Manchester City upp­haf­lega þátt­töku í evr­ópskum keppnum í tvö ár. Banninu var síðar hnekkt eftir áfrýjun til Alþjóða­í­þrótta­dóm­stóls­ins (CAS).

Í máli ensku úrvals­deild­ar­innar voru meðal ann­ars not­aðir tölvu­póstar starfs­manna Manchester City sem Pinto hafði kom­ist yfir með tölvu­árásum og félagið hafði ekki afhent deild­inni.

Upp­ljóstr­anir Pinto áttu þátt í því að enska úrvals­deildin gat gengið mun lengra í ásök­unum sínum en UEFA hafði gert. Alls hafa 114 ásak­anir verið stað­festar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife