Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn

Konan hafði fundið fyrir óþæg­indum í kvið

Fór á sjúkrahús með krampa og eignaðist óvænt barn
Lítið barn eftir fæð­ingu Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Christian Bowen/Unsplash

41 árs kona fékk heldur betur óvæntar fréttir þegar hún komst að því að hún væri ólétt aðeins nokkrum klukku­stundum áður en hún eign­að­ist son.

Konan, Sammy, hafði fundið fyrir óþæg­indum í kvið og taldi sjálf að um gæti verið að ræða kvið­slit eða tognun eftir reglu­legar kvið­æf­ingar. Eftir skoðun tveggja lækna kom hins vegar upp grunur um að hún gæti verið barns­haf­andi.

Samkvæmt breska dag­blað­inu Mirror hafði Sammy ekki haft blæð­ingar í nokkra mán­uði en taldi það tengj­ast breyt­inga­skeiði. Hún hafði jafn­framt misst mikið í þyngd eftir maga­bands­að­gerð og því hafði lítið sem ekk­ert sést á henni að hún gengi með barn.

Fyrsta þung­un­ar­prófið á lækna­stof­unni reynd­ist nei­kvætt en annar læknir taldi sig sjá daufa línu á próf­inu og ráð­lagði henni að taka annað próf heima. Það reynd­ist jákvætt.

Sammy gerði sér þó enn enga grein fyrir því að með­gangan væri komin svo langt.

Fór á bráðamóttöku vegna krampa

Síðar sama kvöld fékk Sammy krampa í kvið­inn og leit­aði á bráða­mót­töku. Þar var gerð ómskoðun og kom fljót­lega í ljós að barn var í móð­ur­kviði.

„Hann gerði ómskoð­un­ina og byrj­aði að segja: „Þarna er fót­leggur. Þarna er hand­leggur. Þarna er bakið,““ sagði Sammy um augna­blikið þegar læknir skoð­aði hana.

Um klukkan sjö morg­un­inn eftir sendi hún Triston McKend, 38 ára sam­býl­is­manni sínum, skila­boð og sagði honum að hún væri ólétt.

Sammy taldi fyrst að hún gæti verið skammt komin á leið og ótt­að­ist jafn­vel að hún væri að missa fóstrið. Starfs­fólk sjúkra­húss­ins færði henni hins vegar enn óvænt­ari tíð­indi.

„Svo kom önnur kona inn og sagði: „Þú ert komin af stað í fæð­ingu.“ Ég sagði: „Fyr­ir­gefðu, nei, það getur ekki verið.“ Hún svar­aði: „Jú, barnið er að koma.““

Sonurinn fæddist fimm tímum síðar

Aðeins fimm klukku­stundum eftir að Sammy kom á sjúkra­húsið fæddi hún heil­brigðan dreng, Noah, sem vó rúm­lega 3,6 kíló.

Hún segir að það hafi tekið tíma að átta sig á því sem hafði gerst og að tengslin við barnið hafi ekki mynd­ast sam­stundis vegna þess hve skyndi­lega hann kom inn í líf hennar.

„Ég hugs­aði eig­in­lega bara: Guð minn góður, er hann raun­veru­legur? Ég gat ekki með­tekið þetta,“ sagði hún.

Sammy telur mikið þyngd­ar­tap eftir maga­bands­að­gerð hafa átt þátt í því að með­gangan upp­götv­að­ist ekki. Hún hafði misst um 63 kíló og segir þyngd sína aðeins hafa auk­ist um rúmt kíló frá því í maí þar til hún fæddi.

Hún hafði auk þess verið mjög virk alla með­göng­una. Hún fór meðal ann­ars á tón­leika, spil­aði fót­bolta, fór í fjög­urra klukku­stunda hjóla­ferð og tók þátt í vatns­leik­fimi aðeins tólf klukku­stundum áður en fæð­ingin hófst.

Triston hyggst nú flytja tíma­bundið til Bournemouth til að aðstoða Sammy við umönnun Noahs, sem kom for­eldrum sínum svo sann­ar­lega á óvart.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife