Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar

„Ég get alveg verið alveg ógeðs­lega leið­in­legur sko“

Sveppi segist hafa bitið mann eftir deilur um reykingar
Sverrir Þór Sverr­is­son Er betur þekktur sem Sveppi Mynd: Kazuma Takigawa

Sverrir Þór Sverr­is­son, betur þekktur sem Sveppi, seg­ist skamm­ast sín fyrir atvik þar sem hann beit mann sem reyndi að vísa honum út eftir deilur um reyk­ingar inn­an­dyra. Þetta kemur fram í sam­tali hans við tón­list­ar­mann­inn Emmsjé Gauta í þætt­inum Beint í bíl­inn, sem spyr hann út í flökku­sögu um kvöldið.

Gauti rekur þá útgáfu sög­unnar að Sveppi hafi fengið gist­ingu hjá manni á Ísafirði en ítrekað virt að vettugi óskir hans um að reykja ekki inni. Samkvæmt sög­unni hafi Sveppi að lokum komið af sal­erni með tutt­ugu log­andi sígar­ettur í munn­inum.

Sveppi stað­festir að atvik tengt reyk­ingum hafi átt sér stað en segir frá­sögn­ina hafa ýkst. Sígar­ett­urnar hafi verið fimm en ekki tutt­ugu. Hann tekur jafn­framt fram að hann skammist sín fyrir hegðun sína.

Að sögn Sveppa var hann staddur fyrir vestan til að sinna veislu­stjórn á herra­kvöldi hjá Bolta­fé­lagi Ísa­fjarðar. Eftir skemmt­un­ina hafi hann og vinur hans farið heim til manns sem hafði verið með þeim að skemmta sér kvöldið á undan.

Sveppi seg­ist hafa kveikt sér í sígar­ettu í and­dyri húss­ins vegna kulda úti. Hús­ráð­andi hafi brugð­ist harka­lega við og bent honum á að reyk­ingar væru bann­aðar inn­an­dyra.

Kveikti í fimm sígarettum og beit húsráðanda

Sveppi lýsir því að hafa gert lítið úr athuga­semd­unum og við­ur­kennir að hann geti verið erf­iður í sam­skiptum.

„Og veistu, ég get alveg verið alveg ógeðs­lega leið­in­legur sko,“ segir hann og lýsir sjálfum sér sem dólgi með stæla og vesen.

Í kjöl­farið hafi hann sett fimm sígar­ettur í munn­inn, kveikt í þeim öllum og gengið inn í and­dyrið. Hús­ráð­and­inn hafi þá reynt að koma honum út.

„Hann reif svo fast í mig, ég beit hann,“ segir Sveppi.

Málið varð enn vand­ræða­legra að hans sögn þegar kom að því að fá greitt fyrir veislu­stjórn­ina. Maðurinn sem hann hafði bitið hafi verið gjald­keri félags­ins.

„Ég þurfti að rukka hann á mánu­deg­inum fyrir veislu­stjórn­ina,“ segir Sveppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu