SlúðurElín niðurlægð26. apríl 2023 Einhver reynslumesti fréttamaður landsins, Elín Hirst, hefur starfað sem fréttastjóri á Ríkisútvarpinu og Stöð 2 í gegnum árin. Elín átti góða spretti á Hringbraut sálugu þar sem hún stjórnaði um tíma sjónvarpsfréttum. Elín sótti um sumarstarf hjá Ríkisútvarpinu nokkru áður en Hringbraut fór í þrot. Einhver hefði talið að fréttastofu ríkisins hefði þótt fengur að slíkum reynslubolta. Elín var kölluð...
InnlentPirraður golfari hringdi á lögreglu vegna konu sem fékk sér göngutúr á vellinum26. apríl 2023 Lögreglu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í hverfi 108 í gær. Þegar lögregla fór á vettvang til þess að svipast um eftir manninum fannst hann hvergi. Í sama hverfi, nokkru síðar, var tilkynnt um skemmdarverk í verslun en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvað gekk á. Í miðbænum var brotist inn á vinnusvæði og vinnutækjum stolið. Málið er í...
InnlentGlúmur minnist Hjartar: „Ekkert mannlegt var honum óviðkomandi og hann krafðist réttlætis“25. apríl 2023 Eins og Mannlíf greindi frá fyrr í dag þá er tónlistarmaðurinn Hjörtur Howser látinn. Glúmur Baldvinsson þekkti Hjört og minnist hans með hlýjum orðum: Glúmur Baldvinsson. „Fráfall Hjartar er mér mikið áfall. Í lífsins blóma. Eldhress í síðustu viku. Fallvalt er lífið.“ Glúmur bætir því við að „hann hlýtur að vera ógleymanlegur öllum sem þekktu hann. Hjörtur var maður ástríðu...
InnlentBenedikt Bóas og Glúmur sækjast eftir sama starfi25. apríl 2023 Alls sóttust tuttugu einstaklingar eftir því að hneppa starf sem fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins; var starfið auglýst þann 22. mars, var umsóknarfrestur til 12. apríl. Á meðal umsækjenda má greina nokkur velþekkt nöfn; til dæmis Benedikt Bóas Hinriksson blaðamaður, Lovísu Arnardóttur fyrrverandi fréttastjóra Fréttablaðsins, Glúm Baldvinsson fyrrum frambjóðanda til Alþingis sem og Auðunn Arnórsson verkefnastjóra hjá Blaðamannafélagi Íslands. Hér að neðan má...
InnlentVilhjálmur argur út í Sólveigu Önnu: „Það grátbroslega er að hún tók síðan nákvæmlega sama samning“25. apríl 2023 Félagsfundur Eflingar samþykkti í gær að boða til atkvæðagreiðslu um aðild þess að Starfsgreinasambandi Íslands; forysta Eflingar telur lítið fást fyrir þann pening sem aðildin að SGS kostar, en þetta kom fram á RÚV. Segir Vilhjálmur Birgisson, formaður SGS, Eflingu ekki greiða meira en önnur félög til sambandsins, og að greiðslan miðist við stærð félaganna; hann segir það ekki rétt...
HeimurNý Barbie dúkka brýtur blað í sögunni: „Við viljum ekki vera falin frá alheiminum“25. apríl 2023 Leikfangaframleiðandinn Mattel hefur hafið framleiðslu á Barbie dúkkum með Down‘s heilkenni. Þykir þetta brjóta blað í sögu fyrirtækisins enda er dúkkan sú fyrsta sem á að vera með andlega fötlun. Framleiðandinn hannaði dúkkuna í samvinnu við Down‘s félag Bandaríkjanna. Mattel gaf fyrst út Barbie dúkku með fötlun árið 1997 þegar „Share a Smile Becky“ kom á markað en hún var...
InnlentHjörtur er látinn25. apríl 2023 Hjörtur Howser, leiðsögumaður og tónlistarmaður, lést í gær. Aðstandendur hans greina frá andlátinu á samfélagsmiðlum. Hjörtur varð bráðkvaddur við Gullfoss í gær þar sem hann var við störf. Hann var fæddur þann 30. júní 1961 og því 61 árs þegar hann lést. Hann starfaði sem leiðsögumaður undanfarin ár en var hljómborðsleikari á árum áður með þekktum hljómsveitum. Hann lék með...
InnlentMYNDBAND: Hræðilegur aðbúnaður hunda í Helgadal25. apríl 2023 Í samfélagsmiðlahópnum Hundasamfélagið var athygli var vakin á slæmum aðbúnaði hunda innst í Helgadal í Mosfellssveit. Í myndskeiði sem birt var með færslunni má sjá tvo hunda á vargsveiðitegundum í útigerðum. Vælir annar þeirra sáran og hinn hleypur viðstöðulaust í hringi sem er táknhegðun hunda fyrir mikla vanlíðan. Indíana Auðunsdóttir sem tók myndskeiðið segir í samtali við Mannlíf: „Í dalnum...
InnlentMiðgarður fær ekki að halda leiki í efstu deild karla þrátt fyrir fullyrðingar bæjarstjórnar25. apríl 2023 KSÍ hefur ákveðið að veita milljarðahöllinni í Garðabæ, Miðgarði, vallarleyfi C. Þýðir það að leikir í næst efstu og efstu deild kvenna í knattspyrnu geta farið fram í höllinni og leikir í næst efstu deild karla en ekki í þeirri efstu. Mannlíf hefur lengi beðið eftir svari frá KSÍ um niðurstöðu sína varðandi vallarleyfi til handa Miðgarði en samskiptastjóri Garðabæjar...
InnlentLíf og fjör í Síðumúla í dag – Nú er tækifæri til að versla fyrir garðvinnuna25. apríl 2023 „Komdu og kynntu þér kosti öflugu garðverkfæranna frá Milwaukee.“ Í dag 25.apríl verður garðverkfærasýning hjá Verkfærasölunni í Síðumúla 9 milli kl 10.00 og 17.00. Á staðnum verða sérfræðingar í garðverkfærum frá Milwaukee ásamt starfsmönnum Verkfærasölunnar. Allt það nýjasta, verkfæraprófun, léttar veitingar og kynningartilboð. Sjón er sögu ríkari.
InnlentRíkisstjórnin sefur af sér gistináttaskattinn25. apríl 2023 Í kjölfar kórónuveirufaraldursins tók ríkisstjórnin ákvörðun að leggja tímabundið niður gistináttaskattinn til ársins 2024. Var ákvörðunin tekin þegar mikil óvissa og samdráttur ríkti í ferðaþjónustunni. Nýjustu tölur frá Hagstofu Íslands sýna mikla aukningu ferðamanna á milli ára og þá sýna tölurnar að 103 prósent aukning er í hópi erlendra ferðamanna. Gistináttaskattur er 300 krónur fyrir hverja selda gistináttaeiningu. Mynd/hagstofan.is Almennt...
MenningJón Gnarr byggir torfþak: „Notar þú ekki örugglega knekkti þegar þú lætur hann trosna?“25. apríl 2023 Jón Gnarr er margt til lista lagt, svo vægt sé til orða tekið. Hann hefur skrifað bækur, samið leikrit, samið sketsa fyrir gamanþætti og margt fleira. Og nú er hann að gera torfþak. „ég er að gera torfþak í fyrsta sinn. ætla að leggja torfið á sökkuldúk sem ég breiði yfir þakið. ætla ekki að leggja tvöfalt lag heldur smyr...
InnlentEnn hækkar verð á Subway – Bátur dagsins hækkar um rúm 11 prósent25. apríl 2023 Enn hækkar bátur dagsins á Subway. 12 tommu bátur dagsins hefur hækkað um rúm 11 prósent frá því í desember 2022. Kostar í dag 1999 krónur en í desember 2022 kostaði hann 1799 krónur. Eins hefur 6 tommu bátur dagsins hækkað um tæp 8 prósent, kostar í dag 1399 krónur en kostaði í lok ársins 1299 krónur. Inn á grúbbunni...
MannlífiðBrasserie Kársnes – Kósí og huggulegur staður í Kópavoginum25. apríl 2023 „Þetta er fjölskyldurekinn veitingastaður; hverfisstaður úti á Kársnesi. Kósí, huggulegur staður þar sem fólk getur gert vel við sig í mat og drykk,“ segir Ólafur Helgi Kristjánsson matreiðslumeistari sem rekur veitingastaðinn ásamt eiginkonu sinni, Sólveigu J. Guðmundsdóttur. Óli sér um að kokka ásamt frábæru teymi sem hefur mikla ástríðu fyrir matargerð á meðan Sólveig er í salnum með sýnu teymi...
MenningMeghan neitaði að kyssa Harrý fyrir framan áhorfendur – Sjáðu myndbandið!25. apríl 2023 Frekar vandræðalegt atvik átti sér stað á körfuknattleik Los Angeles Lakers og Memphis Grizzlies í úrslitakeppni NBA. Þegar „kossakameran“ beindist að Harrý prins og Meghan, hallaði prinsinn sér að frúnni en hún hló bara. Daily Mail segir frá því að þau Meghan og Harrý hafi verið á Lakers-leiknum ásamt fleiri stjörnum. Má þar helst nefna Kim Kardashian, Adam Sandler og...
InnlentHarmleikur við Njarðvíkurhöfn – Enn logar í bátnum25. apríl 2023 Mikill harmleikur varð í nótt í Njarðvík en slökkvilið er enn að störfum við Njarðvíkurhöfn en eldur kviknaði um borð í skipi þar um klukkan tvö í nótt. Einn lést og tveir voru fluttir á sjúkrahús. Enn logar í bátnum.Mynd: Mannlíf Samkvæmt Sigurði Skarphéðinssyni, varaslökkviliðsstjóra Brunavarna Suðurnesja logaði mikill eldur í skipinu. „Útkallið kemur tíu mínútur yfir tvö í nótt....