InnlentStaðfest að Bjarni fær mótframboð í formannsembættið: Guðlaugur Þór fundaði með hulduhernum í gær26. október 2022 Guðlaugur Þór Þórðarson hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Sjálfstæðisflokkins á landsfundi sem fram fer í Laugardalshöll dagana 4. til 6.nóvember næstkomandi. Ákvörðun um framboðið var tilkynnt rétt áðan á heimili Guðlaugs Þórs í Foldunum í Reykjavík. Þangað var innsti kjarni stuðningsmannahóps Guðlaugs Þórs boðaður kl. 20 í kvöld. Foringjar Hulduhersins voru mættir til fundarins. Verður Guðlaugur Þór...
InnlentGuðmundur var með lögregluvernd allan sólarhringinn: „Ég var með áhöfnina á stofuglugganum“26. október 2022 Guðmundur Kristjánsson, sem hættir bráðum störfum sem hafnarstjóri á Ísafirði, á að baki langan og áhugaverðan sjómannsferil sem hann lýsti í viðtali við Reyni Traustason sem birt var fyrir viku síðan og er þetta framhald af því viðtali. Hér birtist seinni kaflinn í því viðtali, Falklandseyjar, og eftir hann er svo framhaldið (https://gamla.mannlif.is/frettir/gudmundur-kristjansson-islandsmid-falklandseyjar-og-graenhofdaeyjar/) „Stefán Þórarinsson hafði samband við mig og...
InnlentPáll bloggari og kennari: „Þetta samtal er tekið upp, þú verður spurður út í þetta af lögreglu“26. október 2022 Bloggarinn og kennarinn Páll Vilhjálmsson ákvað að henda í eina færslu um blaðamann og skipstjóra: „Síminn hringir hjá Páli skipstjóra Steingrímssyni 20. maí í fyrra kl. 14:56. Páll Steingrímsson. Á línunni er Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans. Daginn eftir ætlar Þórður Snær að birta frétt upp úr stolnum síma skipstjórans. Samtalið er eftirfarandi: Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans. Þórður Snær:...
InnlentBlönduðu óvart sykruðum Opal við sykurlausan Opal – Nói Síríus innkallar vöruna frá neytendum26. október 2022 Matvælastofnun Íslands sendi frá sér viðvörun til neytenda í dag en varan sem um ræðir er svartur Opal. Varar stofnunin neytendur við einni framleiðslulotu af sykurlausum svörtum Opal frá Nóa og Síríusi vegna mistaka sem urðu gerð við pökkun. Var vörunni dreift í verslanir um allt land. Í þessari framleiðslulotu var sykurlausum svörtum Opal blandað rauðum Opal með sykri. Hefur...
InnlentÁstin á tímum RÚV26. október 2022 Fréttakonan Sunna Valgerðardóttir og dagskrárgerðarmaður Guðni Tómasson, bæði á RÚV, eru nýtt par; hafa verið að kynnast betur og betur á undanförnum mánuðum. Guðni Tómasson. Sunna og Guðni vinna hvort í sinni deildinni á RÚV; Sunna starfar á fréttadeildinni og annast hún til dæmis þættina Þetta helst og Heimskviður á gömlu góðu gufunni – Rás 1. Listsagnfræðingurinn Guðni hefur umsjón...
InnlentÍhugar að rukka íslenska nagladekkjanotendur um 20 þúsund á ári26. október 2022 Til greina kemur að rukka þá Íslendinga sem nota nagladekk um sérstakt gjald og horfir Umhverfisstofnun til Noregs sem fyrirmynd í þessum efnum sem lið í áætlun um loftgæði. Þar nemur gjaldið 20 krónum yfir veturinn. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur í loftgæðum hjá Umhverfisstofnun, segir í samtali við Fréttablaðið að til mikils sé að vinna þar sem breytingin myndi draga úr...
MenningAriana Grande setur internetið á hliðina: „Nýir eyrnalokkar“26. október 2022 Söngdívan smávaxna Ariana Grande setti internetið á hliðina fyrir tveimur stundum með nýrri ljósmynd sem hún birti á Instagram. Grande, sem þekkt er bæði fyrir hressandi popptónlist og fallegt, dökkt hár sem hún hefur iðulega í hárri teygju. Um 336 milljónir fylgja söngkonunni á Instagram en nýjasta ljósmyndin sem hún birti fyrir tveimur klukkustundum, hefur fengið yfir þrjár milljónir „læka“....
InnlentSéra Davíð Þór segir Íslendinga ósanngjarna við Þjóðkirkjuna: „Við viljum ekki vera í neinu stríði“26. október 2022 Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, telur að landsmenn séu margir hverjir ósanngjarnir gagnvart Þjóðkirkjunni og það skýri meðal annars undanhald kirkjunnar í samfélaginu: „Við höfum orðið vör við að það er töluverð andstaða við kirkjuna. Okkur finnst við ekki njóta sannmælis,“ segir Davíð Þór. Nýlega gagnrýndi Kristrún Heimisdóttir, varaforseti kirkjuþings, þá ákvörðun Davíðs að meina skólabörnum aðgang að...
InnlentÞorsteinn Már þreyttur á þrasinu um Samherja: „Við höfum farið að lögum í þessu eins og öllu öðru“26. október 2022 Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, er orðinn þreyttur á eilífum deilum í íslensku samfélagi þegar kemur að sjávarútvegsfyrirtækjum og greiðslu veiðigjalda. Hann bendir á að í Noregi þurfi fyrirtækin ekki að greiða veiðigjöld. „Hér er orðið mjög þreytandi að hlusta á þessar deilur og reyndar að hluta til nánast annan hvern dag. Um veiðigjöldin já og framtíð sjávarútvegs á Íslandi,...
InnlentSólveig kveður mótmælendur í kút: „Fulltrúar skrifstofuvirkisins og háskólamenntaðar millistéttar“26. október 2022 Hópur kvenna gekk út af jafnréttisþingi og virtust gefa Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, rauða spjaldið er hún hélt erindi sitt á ráðstefnunni í Hörpu í dag. Þessi hópur virðist ekki hafa þekkt Sólveigu Önnu betur en svo að rauða spjaldið minnti hana fremur á rauðan fána alþýðunnar fremur en eitthvað íþróttatengt. Það segir Sólveig sjálf í það minnsta. Sólveig...
Innlent„Þetta er glatað og eitthvað sem maður skammast sín fyrir sem Hafnfirðingur“26. október 2022 „Þetta er okkur Hafnfirðingum ekki til sóma og það á ekkert barn að mæna á göturnar í bænum á meðan önnur börn mæta glöð í skólann,“ segir Símon Birgisson kennari í Hafnarfirði. Hann ritar færslu á Facebook vegna þess að nú eru 39 börn í bænum sem ekki fá skólavist þar. Öll eru þau börn flóttafólks. „Þetta eru ótrúlegar tölur...
InnlentAndrés hæðist að Helga Magnússyni – Hefur tapað 1,4 milljarði og stendur uppi áhrifalaus26. október 2022 „Það er eitthvað fallegt og hughreystandi við það að maður sem kaupir fjölmiðil til þess eins að öðlast pólitísk áhrif sitji á endanum uppi með milljarða tap og svipuð áhrif á stjórnmálin eins og duglegur símatímainnhringjandi á Útvarpi Sögu.“ Þetta skrifar Andrés Jónsson, ein helsti almannatengill Íslands, á Twitter og deilir frétt Viðskiptablaðsins þar sem kemur fram að rekstrartap Torgs,...
Menning4. þáttur: Spænsk Gumma Ben-fræði og Grikkinn sem blúsaði yfir sig26. október 2022 Í þessum þætti sýna þeir Jón Sigurður og Rucio framá að íþróttaþulir hér á Spáni mega ekki hafa uppi Gumma Ben takta og æpa hvað sem þeim kemur í hug og hvernig sem þeim lystir því, þvert á það sem allir halda, þá ríkja hér strangar reglur um allt, meira að segja það hvernig íþróttaþulir fagna mörkum. Hlustendur fá að...
HeimurKynsegin unglingur grunaður um að myrða móður sína en lést nokkrum dögum fyrir réttarhöldin26. október 2022 Breskur 18 ára kynsegin einstaklingur, Rowan Thompson, lést aðeins nokkrum dögum áður en hán átti að mæta fyrir dómi, sakað um að hafa orðið móður sinni að bana en hún fannst látin á heimili sínu með yfir hundrað stungusár. Kom í ljós eftir blóðprufu að Rowan væri með mikinn kalíumskort en hán lést aðeins nokkrum klukkutímum síðar. Einkennin voru síþreyta,...
InnlentSkoðanakönnun Mannlífs: Hvern myndir þú kjósa sem formann Sjálfstæðisflokksins?26. október 2022 Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn núna í byrjun nóvember. Talið er að Guðlaugur Þór eigi vísan stuðning yfir 70 prósenta landsfundarfulltrúa flokksins í Reykjavík og 60 prósent í Kópavogi. Í Hafnarfirði er fylgi Guðlaugs Þór talið vera um 50 prósent. Vert verður að fylgjast náið með en þangað til vörpum við spurningunni til ykkar:
InnlentHulduher Guðlaugs tilbúinn og hefur tryggt fylgi: „Við verðum varir við mikla þreytu í garð Bjarna“26. október 2022 Hulduher Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hefur verið virkjaður í þeim tilgangi að bylta forystu Sjálfstæðisflokksins. Undanfarna mánuði hefur verið unnið skipulega að því að tryggja að til landsfundar í byrjun nóvember veljist fulltrúar sem eru andvígir því að Bjarni Benediktsson formaður sitji áfram eftir það sem kallað er „niðurlægingartímabil“ flokksins. Heimildarmaður Mannlífs úr Hulduhernum telur að árangur smölunar sé góður. Hann...