„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“ Svavar Knútur Kristinsson
InnlentSex rauðar þotur hjá Play – Sífellt fleiri fljúga með flugfélaginu1. júlí 2022 Sjötta rauða þotan er komin til landsins frá Frakklandi og flugfélagið Play í skýjunum með viðbótina. Í tilkynningu frá flugfélaginu kemur fram að bókunarstaða þeirra sé sterk og sætanýting hefur farið hækkandi jafnt og þétt síðustu vikur. Play flutti hátt í 100 þúsund farþega í júní og býður félagið upp á 25 áfangastaði í Evrópu og Bandaríkjunum. Þotan verður tekin...
InnlentHreimur gaf út lag á afmælisdaginn sinn: „Dagurinn byrjaði nú ekki vel“1. júlí 2022 Afmælisbarn dagsins er enginn annar en Hreimur Örn Heimisson, poppsöngvari með meiru. Telja árin hans nú fjóra áratugi og fjögur ár til viðbótar. Hreimur sló rækilega í gegn í lok síðustu aldar með hljómsveit sinni Land og synir en einnig hefur hann sungið og spilað með böndum á borð við Föroingabandið, Sexappeal, Eins og hinir, Richter og nú síðast Made...
InnlentSeðlabankastjóri meðal þeirra sem fengu ofgreidd laun1. júlí 2022 Fjársýsla ríkisins hefur ofgreitt laun ýmissa embættismanna undanfarin þrjú ár. Embættismennirnir eru 260 talsins en þar með talin eru laun forseta Íslands, alþingismenn og seðlabankastjórar. Greint var frá þessu á vef Fjársýslu ríkisins en verður krafa gerð um að viðkomandi aðilar endurgreiði ofgreidd laun. „Við undirbúning launabreytinga fyrir árið 2022 kom í ljós að frá gildistöku laganna hafði viðmið við...
InnlentKaldhæðin Magga Stína skýtur á Katrínu og Þórdísi: „Saman munum við láta þá hafa það óþvegið“1. júlí 2022 Söngkonan Margrét Kristín Blöndal eða Magga Stína eins og hún er gjarnan kölluð, skrifaði pistil á Vísi í gær þar sem hún dregur Katrínu Jakobsdóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sundur og saman í háði vegna þátttöku þeirra á NATO-fundinum í Madríd. Magga Stína beitir kaldhæðninni óspart út allan pistilinn, sem hún skýrir Heja! „Mikið yljar það mér sem móður,...
MenningBret Michaels fluttur á sjúkrahús – Poison varð að aflýsa tónleikum1. júlí 2022 Bret Michaels söngvari glysrokkhljómsveitarinnar Poison dvelur nú á sjúkrahúsi í Nashville samkvæmt fjölmiðlum ytra. Rokkarinn var fluttur á spítala um daginn, stuttu áður en hljómsveit hans átti að kokma fram á tónleikum ásamt Def Leppard, Mötley Crüe og Joan Jett and the Blackhearts, samkvæmt People . Hljómsveitarmeðlimir Poison komu á sviðið og tilkynntu gestum að Bret hefði verið fluttur á...
InnlentÍslenska konan sem Ezra réðist á opnar sig: „Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig“1. júlí 2022 Bandaríski leikarinn Ezra Miller, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í kvikmyndaseríunni Fantastic Beasts and Where to Find Them og sem ofurhetjan Flash í kvikmyndum DC-teiknimyndaseríuheimsins, kom til Íslands í fyrstu bylgju Covid-19 faraldursins og varð reglulegur gestur á börum miðbæjarins. Ezra réðist á konu á Prikinu í apríl árið 2020, sem nú hefur opnað sig um málið í...
InnlentKristinn segir Tyrkland stjórna NATO: „Norrænar þjóðir verða að gefa eftir og lúffa“1. júlí 2022 Fréttir bárust í vikunni að Tyrki hefðu á fundi NATO í Madríd, samþykkt að beita ekki neitunarvaldi sínu gegn aðild Svía og Finna að varnarbandalaginu. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks bendir á í færslu, sem hann kallar Tyrknesk-Ameríska hernaðarbandalagið, á Facebook, augljósa hræsni Nato þegar kemur að Tyrklandi. Í byrjun færslunar bendir Kristinn á árás Tyrkja á vopnaðar sveitir Kúrda í...
MenningTwitter-aðgangi Jordan Peterson lokað: „Hann mun aldrei eyða færslunni“1. júlí 2022 Samkvæmt New York Post hefur Twitter-aðgangi Jordan Peterson, sálfræðings, verið lokað. Samfélagsmiðillinn Twitter lokaði aðgangi Jordans vegna haturorðræðu og dauðnefningar (deadname). Skjáskot hefur birst af umræddri færslu sálfræðingsins en í henni stóð: „Remember when pride was a sin? And Ellen Page just had her breasts removed by a criminal physician.“ En þýðing af færslu Jordans væri: „Manstu þegar stoltið/pride var...
InnlentGuðmundur Halldórsson skipstjóri er látinn1. júlí 2022 Guðmundur Halldórsson skipstjóri í Bolungarvík er látinn. Guðmundur fæddist á Ísafirði árið 1933 og ólst þar upp en hann hefði orðið níræður næstkomandi janúar. Fram kemur á bb.is að Guðmundur hafi verið sjómaður og stundað það ævistarf í rúmlega hálfa öld. Tók hann mikinn þátt í félags- og æslulýðsmálum og beitti sér meðal annars fyrir málefnum fatlaðra, íþróttakeppnum og stóð...
InnlentVeðrið um helgina – Fjórar gráður og ský1. júlí 2022 Fyrir þá sem ætla að elta góða veðrið um helgina er Akureyri líklega ekki rétti staðurinn. Búist er við skýjuðu veðri um allt land, fram á sunnudag, að frátöldum Vestmannaeyjum. Samkvæmt spá Veðurstofu Íslands er búist við kólnandi veðri á Norðurlandi. Hiti verður á bilinu 4-9 stig en um hádegi á sunnudag er búist við aðeins fjórum gráðum á Akureyri...
MannlífiðBorðar þú avocado? Hér eru fimm góðar ástæður til þess að byrja á því1. júlí 2022 Avókadó getur haft margvíslegan heilsufarslegan ávinning, þar á meðal að bæta meltingu, draga úr hættu á þunglyndi og minnka hættu á krabbameini. Einnig þekktur sem krókódíla pera eða lárpera, er avókadó í raun tegund af berjum sem vaxa í heitu loftslagi. Avókadó veita umtalsvert magn af einómettuðum fitusýrum og eru rík af mörgum vítamínum og steinefnum. Með því að fella...
InnlentÍsland skoraði lægst – Barnabætur í Svíþjóð sex sinnum hærri en hér á landi1. júlí 2022 „Áður stóð Ísland betur að vígi í samanburði á útgjöldum til velferðarþjónustu, en þar hefur hallað á eftir að útgjöld til heilbrigðisþjónustu hafa dregist umtalsvert saman á síðasta einum og hálfum áratugnum,“ segir í ritinu, Kjarnafréttir Eflingar, sem gefið var út í dag. Þar er sýnt fram á mikinn mismun á útgjöldum hér á landi samanborið við aðrar Norðurlandaþjóðir þegar...
SlúðurAgnes pönkast á prestum1. júlí 2022 Agnes Sigurðardóttir, biskup Íslands, er á meðal þeirra umdeildari sem gegnt hafa þeirri stöðu. Hún þykir harðskeytt í umgengni við þá sem ekki eru í náðinni hjá henni og nýtur þar öflugs stuðnings Péturs Markan, ritara biskups, sem stundum er kallaður stallari Agnesar. Fræg er meðferð hennar á séra Skírni Garðarssyni sem hún pönkaðist á og hrakti úr embætti sínu...
InnlentSteinbergur segir þremenningana mögulega þolendur – Ein stærsta fjárkúgunartilraun sögunnar1. júlí 2022 Steinbergur Finnbogason lögmaður segir gögn Vítalíumálsins, um tilraun til fjárkúgunar, vera eitt það stærsta í Íslandssögunni ef marka má umfjöllun fjölmiðla. Í grein Steinbergs, sem Fréttablaðið birti, segir hann freistnivanda hafa skapast við það sönnunarbyrði réttarríkis hafi verið aftengd. Þá segir hann andrúmsloft rétttrúnaðarins ekki taka það til greina að hugsanlega geti þrír þjóðþekktir miðaldra karlmenn verið þolendur í málinu...
InnlentDiagnosed with monkeypox in Iceland – A cause for concern says Chief Epidemiologist30. júní 2022 A middle-aged man was diagnosed with monkeypox on Tuesday. This is the fourth infection to be diagnosed in Iceland and the country’s Chief Epidemiologist says that the case is most likely a domestic infection, which is a cause for concern. RÚV originally reported on this. „These are similar symptoms as in the other three, which are mainly skin symptoms. People...
InnlentBrynjar segir Stefán ekki í jafnvægi30. júní 2022 Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður ráðherra, hjólar í Stefán Ingvar Vigfússon fyrir að gagnrýna Jordan Peterson, kanadískan áhrifavald. Stefán gagnrýndi að vísu líka Brynjar, sem kann að skýra viðbrögð Brynjars. Nánar má lesa um pistil Stefáns og viðbrögð við honum hér. Brynjar segir á Facebook að Stefán sé ekki í jafnvægi. „Hinn geðþekki uppistandari, Stefán Ingvar Vigfússon, var með uppistand...