Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kaldhæðin Magga Stína skýtur á Katrínu og Þórdísi: „Saman munum við láta þá hafa það óþvegið“

Magga Stína
Magga Stína Mynd: YouTube-skjáskot

Söngkonan Margrét Kristín Blöndal eða Magga Stína eins og hún er gjarnan kölluð, skrifaði pistil á Vísi í gær þar sem hún dregur Katrínu Jakobs­dóttur og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa­dóttur sundur og saman í háði vegna þátttöku þeirra á NATO-fundinum í Madríd.

Magga Stína beitir kaldhæðninni óspart út allan pistilinn, sem hún skýrir Heja!

„Mikið yljar það mér sem móður, dóttur og ömmu að sjá hve vel þær standa sig, konurnar okkar sem ég vil kalla svo og á þá að sjálfsögðu við okkar mæta forsætis­ráðherra Katrínu Jakobs­dóttur og hennar vinkonu utan­ríkis­ráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfa­dóttur, þar sem þær standa keikar og svo elegant í glæsi­legum hópi helstu stríðs­herra heimsins! Það er sko stór­borgar­bragur á okkar konum þessa dagana!“

Seinna í pistlinum þakkar Magga Stína NATO fyrir að auka útgjöld til hermála í heiminum.

„Í okkar þágu ætla þessir englar að auka stórlega útgjöld til hermála á öllum sínum vígstöðvum og í herliðum Evrópu skal fjölgað!

Ég segi takk. Ég segi takk, öll þið sem takið undir með kórnum. Ég segi takk öll sem leggið lið þeim málstað sem tætir í sundur “rétta drengi” og ég þakka fyrir hve sameinuð við erum, íslensk þjóð um það að liðka fyrir lengra stríði, stærra stríði við hinn eina sanna óvin! Ég þakka fyrir það hve átaklaust það hefur verið fyrir okkar fremstu, útvöldu eðal­foringja að setja þetta stríð í „rétt“ samhengi. Saman munum við láta þá hafa það óþvegið og fórnum sonum og eigin­mönnum og feðrum svo sannarlega fyrir þann málstað!“

Lokaorð Möggu Stínu eru einnig löðrandi í kaldhæðni en hún talar um gleði­bylgju sem hríslaðist um „okkur“ þegar innlimun Svía og Finna í NATO var tilkynnt.

„Við Íslendingar, Bandaríkja­menn, Tyrkir, Bretar, Ungverjar, Danir og öll hin stöndum sem aldrei fyrr, mótþróalaust loksins saman að stríðs­rekstrinum! Það munar um svoleiðis, maður veit það alveg. Fundum við kannski ekki öll gleði­bylgjuna hríslast um okkur þegar fregnirnar af innlimun Svía og Finna gekk í garð í gær? Þótt það hefði ekki verið fyrir annað en að Nato gerði okkur kleift að tala „dönsku“, á Spáni.“

Hægt er að lesa pistilinn í heild sinni á Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá