Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Guðmundur Halldórsson skipstjóri er látinn

Guðmundur Halldórsson skip­stjóri í Bolungarvík er látinn. Guðmundur fæddist á Ísafirði árið 1933 og ólst þar upp en hann hefði orðið níræður næst­komandi janúar.

Fram kemur á bb.is að Guðmundur hafi verið sjómaður og stundað það ævistarf í rúmlega hálfa öld. Tók hann mikinn þátt í félags- og æslulýðsmálum og beitti sér meðal annars fyrir málefnum fatlaðra, íþrótta­keppnum og stóð fyrir námskeiðum í sjóvinnu fyrir ungt fólk í Bolungavík. Samkvæmt Bæjarins bestu bar Guðmundur hag Vestfjarða fyrir brjósti og stóð oftar en einu sinni fyrir borgara­fundum þar sem mikilvæg hagsmunamál Vestfirðinga voru rædd, þann síðasta í september 2017 á Ísafirði.

Þá kemur einnig fram hjá bb.is að barátta Guðmundar fyrir breytingum á kvóta­kerfinu fyrir 20 árum, hafi vakið athygli um land allt en í desember 2003 var tekin upp svonefnd línuívilnun sem í kjölfarið varð mikil lyftistöng fyrir útgerð á Vestfjörðum. Guðmundur var tekinn tali í Morgun­blaðinu fyrir tíu árum síðan þar sem hann rifjaði upp stöðuna á sínum tíma „Við reyndum allt til að vekja athygli á málstað okkar, því tilveru­réttur byggðar­laganna var í hættu. Þetta var upp á líf eða dauða,“ og „Línuívilnunin var lykillinn að nýrri uppbyggingu hér í plássinu og hefur skipt sköpum fyrir mörg minni byggðarlög.“

Árið 2002 var Guðmundur kjörinn Vestfirðingur ársins og er heiðurs­félagi í Lands­sambandi smábáta­sjómanna og Eldingu, smábáta­félaginu á Vestfjörðum.

Mannlíf vottar aðstand­endum Guðmundar samúð sína.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá