Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Kristinn segir Tyrkland stjórna NATO: „Norrænar þjóðir verða að gefa eftir og lúffa“

Kristinn Hrafnsson
Kristinn Hrafns­son

Fréttir bárust í vikunni að Tyrki hefðu á fundi NATO í Madríd, samþykkt að beita ekki neitunar­valdi sínu gegn aðild Svía og Finna að varnar­bandalaginu. Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks bendir á í færslu, sem hann kallar Tyrknesk-Ameríska hernaðar­bandalagið, á Facebook, augljósa hræsni Nato þegar kemur að Tyrklandi.

Í byrjun færslunar bendir Kristinn á árás Tyrkja á vopnaðar sveitir Kúrda í Sýrlandi sem börðust gegn hryðjuverka­samtökunum ISIS en Haukur Hilmarsson barðist með þeim, allt þar til hann féll í sprengju­regni Tyrklands­hers.

„Samkvæmt fréttum hafa Tyrkir nú fallið frá neitunar­valdi sínu gegn aðild Svía og Finna að NATO og segjast hafa fengið sitt í gegn. Tyrkir vildu stöðva það sem þeir sáu sem linkind þessara ríkja gagnvart stórnmálaflokki Kúrda, PKK og vopnðum sveitum Kúrda YPG. Haukur Hilmarsson barðist við hlið YPG í Sýrlandi gegn ISIS en féll þegar vopnaðar sveitir Tyrkja og stuðnings­liða réðust inn í sýrlenska héraðið Afrin, suður af landa­mærum Tyrklands. Héraðið var hertekið, íbúarnir flæmdir á brott og tóm húsin síðan yfirtekin af liðsveitum islamskra öfgamanna.“

Ritstjórinn fer svo yfir kröfur Tyrkja á NATO fundinum.

„Tyrkir skilgreina PKK sem hryðjuverka­samtök og gerðu kröfu um að Svíar og Finnar tækju undir þá skilgreiningu – ella yrði aðild þeirra að NATO hindruð. Einnig vilja Tyrkir framsal Kúrda frá þessum löndum og að þau falli frá efnahags­legum refsiaðgerðum gegn Tyrkjum. Ekki er auðfundið hvað Svíar og Finnar féllust á í þessum efnum en samkvæmt fréttum verður hryðjuverka­löggjöf breytt innan tíðar í Svíþjóð.

Tyrkir segjast einfald­lega hafa fengið það sem þeir vildu.“

Þá bendir Kristinn á dæmi um vald Tyrklands innan NATO en Tyrkir hafa verið ófeimnir að nota neitunar­vald til að koma sínu fram.

„Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tyrkir ráða stefnu NATO ríkja í málefnum Kúrda. Þannig lögðust þeir gegn því að Anders Fogh Rasmussen yrði framkvæmda­stjóri NATO árið 2009 nema Danir beittu sér gegn Kúrdum þar í landi. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu í bandarískum diplómata­skjölum sem WikiLeaks birti 2010 féllust Danir á að loka sjónvarpsstöð Kúrda sem rekin var í landinu og endur­varpaði meðal annars til Tyrklands.

Vald Tyrkja innan NATO er því mikið því full samstaða allra ríkja þarf að vera um leiðtogaval og nýja meðlimi. Neitunar­vald er því pólitískt vopn og hafa Tyrkir verið ófeimnir við að beita því.“

Að lokum bendir Kristinn á hræsnina sem NATO er sekt um en þar eiga mann­réttindi að vera ofarlega á baugi en Tyrklands­stjórn brýtur ítrekað á mann­réttindum þegna sinna.

„Í Tyrklandi eru stjórnar­andstæðingar og blaðamenn fangelsaðir. Ekkert fjölmiðla­frelsi er í landinu. Tæpast því lýðræði.Á hátíðisstundum er fullyrt í lofræðum að límið í NATO sé háleit gildi um mann­réttindi, frelsi og lýðræði. Ekkert af þessu er tryggt í Tyrklandi sem fær sínu framgengt innan NATO með neitunar­valdi. Norrænar þjóðir innan banda­lagsins verða að gefa eftir og lúffa.Kjölfestu­ríki NATO í austri og vestri, Banda­ríkin og Tyrkland, ráða þessu bandalagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá