Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Íslenska konan sem Ezra réðist á opnar sig: „Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig“

Ezra Miller. Mynd/skjáskot Instagram
Ezra Miller. Mynd/skjá­skot Instagram

Bandaríski leikarinn Ezra Miller, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í kvik­mynda­seríunni Fantastic Beasts and Where to Find Them og sem ofur­hetjan Flash í kvik­myndum DC-teiknimynda­seríu­heimsins, kom til Íslands í fyrstu bylgju Covid-19 faraldursins og varð reglu­legur gestur á börum miðbæjarins. Ezra réðist á konu á Prikinu í apríl árið 2020, sem nú hefur opnað sig um málið í viðtali við Variety.

Ezra Miller skilgreinir sig sem kynsegin og notar fornafnið „hán“, sem verður notað í fréttinni.

„Það var alltaf eitthvað með Ezra,“ segir Carlos Reynir í samtali við Variety, en hann var barþjónn á Prikinu á þeim tíma sem Ezra stundaði barinn. Hann segir tvö tilfelli hafa komið upp þar sem hann þurfti að hafa afskipti af Ezra. Fyrra skiptið hafi verið rifrildi milli Ezra og annars manns, sem hafi byrjað sakleysis­lega en endað þannig að Ezra tók manninn hálstaki og sló hann. Carlos segist hafa gengið á milli þeirra og leyst slags­málin upp, og að Ezra hafi síðar beðið manninn afsökunar. Hinn maðurinn hafi ákveðið að hrista atvikið af sér og afskrifa það sem brandara. Ezra hafi því fengið að koma á barinn áfram.

„Við afskrifuðum þetta bara sem tvo drukkna vini sem lentu í slags­málum,“ segir Carlos. „Þetta er Ísland. Það gerist tvisvar hverja helgi.“

Tók konu hálstaki

Seinna atvikið var ekki hægt að afskrifa svo glatt. Það var þegar Ezra réðist á unga konu á Prikinu, tók hana hálstaki og ýtti í jörðina. Myndband af árásinni fór í dreifingu í apríl árið 2020 og vakti heims­athygli.

Variety ræddi við konuna eftir að atvikið átti sér stað, en hún hefur nú gefið miðlinum leyfi til þess að birta svör sín. Hún kaus að koma fram undir nafnleynd.

Mynd­bandið sýnir að Ezra gengur á konuna, sem brosir, veifar hand­leggjunum og gengur að háni. „Viltu slást? Er það það sem þú vilt?“ spyr hún. Ezra grípur um háls hennar og hún tekur andköf. Samkvæmt Variety greip einstaklingurinn sem tók upp mynd­bandið þá inn í aðstæðurnar.

Samkvæmt heimildum Varitey hafði konan átt í samræðum við Ezra á barnum fyrir atvikið. Hún segist sjálf hafa spurt hán út í sár á fótum hans, sem voru sýnileg þar sem hán klæddist sandölum. Hán á þá að hafa sagt að um bardagaör væri að ræða, eftir slagsmál. Eftir að hafa rætt hvernig hán fékk sárin hafi hún gengið á brott en snúið sér við og sagt í gríni: „En bara svo að þú vitir það, þá gæti ég unnið þig í slag“. Ezra á þá að hafa svarað: „Viltu slást í alvöru?“ og konan hafi þá sagt háni að hitta sig á reykinga­svæðinu eftir tvær mínútur.

Hún segir Ezra loks hafa gengið á hana fyrir utan staðinn. „Ég hélt að þetta væri bara fífla­gangur – en svo var ekki.“

Hún segist hafa sagt háni að hitta sig á reykinga­svæðinu í gríni og Ezra hafi virst taka því sem slíku, þar sem hán hélt kyrru fyrir inni á staðnum. Vinur konunnar hafi hins vegar farið til Ezra og sagst hafa heyrt að leikarinn vildi ekki slást. „Vinur minn hefði ekki þurft að segja það,“ segir hún. „Þetta var auðvitað bara grín – en Ezra tók því bókstaf­lega, varð mjög reitt og kom hlaupandi út.“ Það var þá sem einn af vinum konunnar byrjaði að taka samskiptin upp á símann sinn.

„Allt í einu er hán ofan á mér, að kyrkja mig, öskrandi hvort ég vilji slást. Vinur minn sér að þetta er greini­lega ekki fífla­gangur og greini­lega alvarlegt, svo hann hættir að taka upp og ýtir háni af mér á meðan Ezra er enn að reyna að slást við mig. Tveir karlkyns vinir mínir héldu í Ezra á meðan hán öskraði: „Þetta er það sem þú vildir! Þetta er það sem þú vildir!“

Konan segir Ezra hafa hrækt nokkrum sinnum í andlit vinar síns – eitthvað sem þótti hættulegt á þessum tíma í heims­faraldri án bóluefna. Hún segir að barþjónn, Carlos Reynir, hafi hlaupið út til þeirra til þess að leysa upp slags­málin.

Þurfti að loka staðnum

„Ezra grípur um hálsinn á mér þegar ég er að reyna að koma háni út bakdyramegin og segist ekki ætla að fara,“ segir Carlos Reynir. Hann segir Ezra hafa haldið því fram að vinir konunnar hafi ýtt háni. „Sem þeir gerðu ekki,“ segir hann.

„Hán hrækti í andlitið á mér nokkrum sinnum, en mér tókst að ýta háni út og loka og læsa hurðinni.“

Carlos segist hafa þurft að læsa inngangi barsins, þar sem Ezra hafi hlaupið hringinn og byrjað að berja á hurðina og öskra að háni skuli hleypt inn. Á endanum hafi tveir vinir leikarans komið háni inn í bíl og keyrt á brott.

„Ég held að þetta atvik hafi verið það sem eyðilagði orðspor Ezra á Íslandi. Hán hætti að koma á aðra bari fljótlega eftir þetta,“ segir Carlos.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Barns­hafandi fangi flúði úr fangelsi

Konan var laus við fjötra vegna meðgöngunnar
Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Heimur

Tveir starfs­menn Lækna án landamæra drepnir af Ísrael

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá