InnlentLíkur á því að slydda eða snjókoma falli – Biðja fólk að fara varlega17. ágúst 2024 Í veðrinu er þetta helst að frétta. Áframhaldandi norðan kaldi eða strekkingur verður í dag sem og á morgun; gert er ráð fyrir rigningu norðan heiða. Yfirhöfuð verður bjart sunnantil; með líkum á síðdegisskúrum og hiti verður á bilinu 5 til 14 stig. Á morgun fer að kólna á norðanverðu landinu; eru líkur á því að slydda eða snjókoma falli...
InnlentHann var handtekinn skammt frá staðnum og tókst lögreglu að endurheimta lyklana17. ágúst 2024 Sex ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna á höfuðborgarsvæðinu; þrír urðu að gista fangageymslur vegna brots gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkur þar sem þeir sköpuðu ónæði á miðborgarsvæðinu vegna ölvunar. Þrjár líkamsárásir voru skráðar á tímabilinu; af þeim voru tvær tengdar skemmtanahaldi. Lögregla var kölluð til í þremur aðskildum verkefnum í vesturbæ Reykjavíkur þar sem tilkynnt...
29:15MenningMannlífiðSanna talar ekki lengur við föður sinn: „Ég ákvað að loka á hann fyrir einhverjum árum“17. ágúst 2024 Sanna Magdalena Mörtudóttir var í aðalhlutverki við að koma Sósíalistaflokknum inn í borgarstjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosningu á þar síðasta kjörtímabili. Í kosningunum þar á eftir náðu tveir fulltrúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar undirbýr framboð í öllum kjördæmum. Kraftaverkakonan Sanna segir sögu sína í Mannlífinu. Sanna segir meðal annars frá því að...
SlúðurSkuldir Katrínar17. ágúst 2024 Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er í vanda vegna taumlítillar eyðslu framboðs hennar í forsetakosningunum. Á Facebook-síðu framboðisins hefur verið send út hjalæparbeiðni þar sem biðlað er til fólks og fyrirtækja um að leggja fram peninga til að loka gatinu. Sjálf sagði Katrín á kosningafundi Heimildarinnar að baráttan myndi væntanlega kosta sig um 40 milljónir króna. Líklegt er að upphæðin verði...
MannlífiðHarmleikurinn um borð í varðskipinu Tý: „Hann leit fram starandi, tryllingslegu augnaráði“16. ágúst 2024 Þann 7. janúar árið 1980 myrti Jón Guðmundsson tvo skipsfélaga sína með hníf á varðskipinu Tý. Fórnarlömb hans voru kornungir menn, þeir Jóhannes Olsen og Einar Óli Guðfinnsson. Eftir að hafa sært ungu mennina tvo til ólífis varpaði Jón D. Guðmundsson sér að öllum líkindum fyrir borð . Hann fannst aldrei. Harmleikurinn um borð í varðskipinu Tý þennan dag í...
29:15MenningMannlífiðSigursæl Sanna stefnir á Alþingi: Fátæktin, föðurleysið og fordómarnir16. ágúst 2024 Sanna Magdalena Mörtudóttir var í aðalhlutverki við að koma Sósíalistaflokknum inn í borgarstjórn. Hún braut ísinn og náði sjálf kosningu á þarsíðasta kjörtímabili. Í kosningunum þar á eftir náðu tveir fulltrúar kjöri. Nú stefnir hún á þing og flokkur hennar undirbýr framboð í öllum kjördæmum. Kraftaverkakonan Sanna segir sögu sína í Mannlífinu. Hún ólst upp hjá einstæðri móður og fann...
InnlentHildur vandar Degi ekki orlofskveðjurnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á afturlappirnar“16. ágúst 2024 Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segist líta á orlofsmál Dags B. Eggertssonar, fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur, mjög alvarlegum augum en Dagur fékk 9,7 milljónir króna greiddar vegna orlofs við starfslok sem borgarstjóri. Þar er um að ræða samkvæmt upplýsingum borgarritara, uppsafnað sumarfrí að hluta í 10 ára borgarstjóratíð hans. Hún taldi eðlilegt að kalla eftir upplýsingum með hvaða hætti uppgjörum...
Innlent80 prósent lesenda telja illa staðið að menntamálum á Íslandi16. ágúst 2024 Miklar umræður hafa átt sér stað undanfarnar vikur um stöðu íslenska menntakerfisins og þá sérstaklega á grunnskólastigi en Ásmundur Einar Daðason menntamálaráðherra hefur mátt þola mikla gagnrýni fyrir starf sitt. Sumir telja að íslenskt menntakerfi hafi aldrei staðið jafn höllum fæti meðan aðrir telja að skoða þurfi málið betur. Mannlíf spurði lesendur sína hvernig þeim þætti staðið að menntamálum á...
InnlentStelpurnar okkar hafa aldrei svifið hærra16. ágúst 2024 Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu hefur náð nýjum hæðum á heimslista FIFA en listinn var gefinn út morgun. Ísland er í 13. sæti listans og fer upp um eitt sæti frá því að listinn var gefinn út seinast. Nokkuð ljóst er að 3-0 sigur landsliðsins á Þýskalandi hefur hjálpað mikið til að hífa liðið upp um sæti en liðið sigraði einnig...
InnlentLögreglan lýsir eftir ökumanni sem keyrði á stúlku: „Ók rakleiðis af vettvangi“16. ágúst 2024 Lögreglan lýsir eftir ökumanni sem keyrði á unglingsstúlku í Kópavogi í fyrradag. Ökumaðurinn sem keyrði á stúlkuna flúði af vettvangi og aðrir ökumenn sáu ekki ástæðu til að athuga með líðan hennar eftir að keyrt var á hana. Hægt er að lesa tilkynningu lögreglu hér fyrir neðan „Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns bifreiðar sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í...
InnlentÓskar matreiðslumeistari hefur lifað lengur en læknar þorðu að vona: „Þakklátur fyrir það sem ég á“16. ágúst 2024 Matreiðslumeistarinn Óskar Finnsson greindist með banvænt heilakrabbamein árið 2019 og sögðu læknar honum að hann ætti innan við tvö ár eftir. „Það eru komin fjögur ár,“ sagði Óskar í viðtali um málið á RÚV. „Þetta er búin að vera skrítin ganga. Mjög skrítin.“ Í kjölfar þess að hann fékk greininguna ákvað Óskar að breyta algjörlega um mataræði. „Þegar ég stóð...
InnlentAlbert gengur til liðs við Fiorentina – Fyrirtaka í nauðgunarmáli hans í lok ágúst16. ágúst 2024 Íslenski knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson er að ganga til liðs við ítalska liðið Fiorentina. Albert mun gangast undir læknisskoðun og skrifa undir samning í dag. Liðið endaði í 8. sæti í efstu deild Ítalíu á seinasta tímabili en liðið hefur endað í kringum miðja deild undanfarin áratug en náð ágætis árangri í Evrópukeppnum. Sumir töldu að Albert myndi ekki færa sig...
InnlentGanga gegn þjóðarmorði Ísrael á morgun: „Ekki eitt lík var í heilu lagi“16. ágúst 2024 Á morgun klukkan 14:00 verður gengin mótmælaganga frá Hallgrímskirkju niður á Austurvöll en tilgangur göngunnar er að mótmæla þjóðarmorði á Palestínubúum en greint hefur frá því að í kringum 40 þúsund Palestínubúar hafi verið drepnir á Gaza af Ísraelsher. Þegar á Austurvöll er komið mun Kristín Sveinsdóttir ávarpa fundinn og Kristín Eiríksdóttir les ljóð eftir Mosab Abu Toha en samtökin...
MenningDraugaormar Axels16. ágúst 2024 Fátt er skemmtilegra en íslensk tónlist og það er vegna þess að Íslendingar eru ótrúlega hæfileikaríkir á þessu sviði. Eina sem er betra en íslensk tónlist er ný íslensk tónlist og hefur Mannlíf valið fimm nýleg íslensk lög sem allir þurfa að hlusta á um helgina. Gunnar Heimir – Wish You Were Here Draugar – Worms Benedikt Arnar – Æsku...
SlúðurHalla Hrund og rógurinn16. ágúst 2024 Halla Hrund Logadóttir orkumálstjóri er ekki á meðal umsækjenda um núverandi starf sitt, mörgum til undrunar. Um tíma virtist Halla ætla að ná þeim áfanga í lífi og starfi að verða forseti Íslands. Sá draumur varð ekki að veruleika eftir að rógstungur höfðu sáð sínum fræjum og nafna hennar hreppti hnossið. Halla nýtur aðdáunar vegna útgeislunar og margir innan heims...
InnlentFjórir þjófar og skemmdarvargur – Bormaður í heimahúsi hélt auga sínu16. ágúst 2024 Nóttin var róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og bar fátt annað til tíðinda en það þjófar voru á stangli. Einn slíkur var staðinn að verki í matvöruverslun og löggan kom að málum. Bíljófur náði að krækja sér í bifreið. Þá gerðu skemmdarvargar sig heimakomna í sameign fjölbýlishúss. Óljóst er hvort tekst að hafa hendur í hári skemmdarvarga. Þriðji þjófurinn var...