MenningZac Efron fluttur á sjúkrahús á Ibiza6. ágúst 2024 Lífið er ekki alltaf dans á rósum hjá fræga fólkinu og stórleikarinn Zac Efron fékk að kynnast því um helgina en flytja þurfti Baywatch-stjörnuna á sjúkrahús á Ibiza. Leikarinn geðþekki var að njóta lífsins með vinum sínum á eyjunni frægu þegar hann ákvað að stinga sér til sunds í sundlaug í húsinu sem hann var að leigja en því miður...
InnlentBjargað af Baulu6. ágúst 2024 Tveimur göngumönnum var í nótt bjargað af Baulu. Mennirnir sendu frá sér hjálparbeiðini í gærkvöld eftir að annar þeirra féll í skriðu og handleggsbrotnaði. Björgunarsveitir komu á vettvang um klukkan tvö í nótt. Hinn slasaði fékk verkjalyf og var mönnunum fylgt niður af fjallinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út. Hún lenti við fjallið og flutti hinn slasaða á sjúkrahús. Aðstæður...
InnlentDauðaleit gerð að ferðamönnum við Kerlingafjöll – Grjóthrun lokaði þá inni í helli6. ágúst 2024 Umfangsmikil björgunaraðgerð stendur nú yfir í Kerlingafjöllum vegna tveggja manna sem festust í helli eftir grjóthrun. Björgunarhópar frá Suðurlandi eru komnir á staðinn. Dauðaleit stendur yfir á svæðinu og er unnið að því að staðsetja mennina. Auk mannafla hafa verið send tæki til rústabjörgunar á svæðið til að bjarga mönnunum. Á annað hundrað björgunarmenn voru komnir á vettvang í morgun....
SlúðurMyndin af Bjarna6. ágúst 2024 Hver skoðanakönnunin af annarri undirstrikar óvinsældir Bjarna Benediktssonar, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, sem hreppti embætti sitt eftir heljarstökk Katrínar Jakobsdóttur út úr pólitík. Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með fylgi sem er í sögulegri lægð. Sjálfur er Bjarni á toppnum þar sem óvinsældir stjórnmálamanna eru mældar. Bjarni hefur helst verið sýnilegur í embætti þar sem hann þeytist um fjarlæg lönd og lætur...
Innlent„Það virðist allt benda til þess að kreppa sé í aðsigi“5. ágúst 2024 „Í stuttu máli, það sem er að gerast er að atvinnuleysistölur í Bandaríkjunum eru háar. Og það virðist hafa komið á óvart hversu háar þessar atvinnuleysistölur eru og það virðist allt benda til þess að kreppa sé í aðsigi. Þá eru fyrstu viðbrögð fjárfesta almennt að selja hlutabréf,“ segir Már Wolfgang Mixa, sem er dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, um...
InnlentBragi Páll um ofbeldið á Englandi: „Þeir eru rót vandans, ekki brúnt fólk“5. ágúst 2024 Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur tjáir sig um ofbeldisölduna sem er nú að skekja Bretland – og hann gangrýnir þá orðræðu sem í gangi er þar og víða annarsstaðar í heiminum. Segir: „Ofbeldisaldan sem nú gengur yfir Bretland er afleiðing nákvæmlega sömu orðræðu og Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð og fleiri hafa flutt inn til þess að kaupa sér atkvæði.“ Bragi Páll...
InnlentÓk á búfé á Þingvallavegi – Missti stjórnina og bíllinn endaði ofan í læk5. ágúst 2024 Lögreglan á Suðurlandi segir að frá hádegi í gær til hádegis í dag hafi sex ökumenn verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur; var sá sem hraðast ók á 124 kílómetra hraða. Alls voru níu ökumenn stöðvaðir fyrir ölvun við akstur; einn ökumaður fyrir akstur án gildra ökuréttinda. Þrjú umferðaróhöpp urðu á síðasta sólarhring og ekið var á búfé á Þingvallavegi....
Innlent„Niðurstöður sýna að skaðleg einkenni streitu minnkuðu hjá konum sem stunduðu meira kynlíf“5. ágúst 2024 Það hefur komið fram að mæður eigi það til að setja sig í síðasta sæti fjölskyldulífsins; en þá getur streitan tekið yfir ef ekki er gætt að álagi, eins og segir á Smartlandi Ný rannsókn er birt var á National Library of Medicine leiddi í ljós að kynlíf dregur úr skaðlegum streitueinkennum mæðra ungra barna; sýndu niðurstöður að mæður er...
InnlentDómaranum var ekki heimilt að kveða upp svo mildan dóm5. ágúst 2024 Sif Sigmarsdóttir ritar pistil og byrjar hann á þessum orðum. „Fyrir þremur árum skrifaði ég grein um ungan Breta sem átti yfir höfði sér fimmtán ára fangelsi. Ben John, nemandi í afbrotafræði við háskóla í Leicester, var tuttugu og eins árs þegar hann var fundinn sekur á grundvelli hryðjuverkalaga um að hafa ólöglega undir höndum þúsundir skjala um hvernig búa...
InnlentAndlát: Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari5. ágúst 2024 Ólafur Vignir Albertsson píanóleikari er látinn. Fjölskylda Ólafs greinir frá andlátinu í tilkynningu og þar segir: „Ólafur Vignir fæddist í Reykjavík 19. maí 1936, sonur hjónanna Alberts Ólafssonar, múrarameistara, og Guðrúnar Magnúsdóttur, húsmóður. Yngri systur Ólafs Vignis eru Sesselja Margrét Albertsdóttir, Guðný Böðvarsdóttir og Alberta Guðrún Böðvarsdóttir er lést 5. maí síðastliðinn. Tónlistarhæfileikar Ólafs Vignis komu snemma í ljós. Áður...
InnlentNú er ég blindfullur og kemst ekki heim, blindfullur og finn ekkert geim5. ágúst 2024 Tilkynnt var um ofurölvi aðila við skemmtistað í miðbænum; tókst ekki að koma viðkomandi heim; þurfti því viðkomandi að gista í fangaklefa allt þar til að runnið væri af aðilanum. Átta aðilar voru vistaðir í fangaklefa í nótt. Ökumaður einn var stöðvaður; grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna; var hann sviptur ökuréttindum. Annar ökumaður var stöðvaður – einnig...
InnlentÚtlit fyrir mun rólegra veður5. ágúst 2024 Lægð suður af Reykjanesi færist í suðvestur og því dregur úr vindi sem var ansi hvass í nótt sem leið. Mun samt sem áður hvessa norðvestanlands; geta myndast þar varasamar aðstæður fyrir bíla er taka á sig mikinn vind. Kemur fram að veðurviðvaranir vegna mikils vinds eru í gildi fyrir Vestfirði, Breiðafjörð, Strandir sem og Norðurland vestra. Eru ökumenn þar...
SlúðurÁgúst níðingur með nýtt nafn5. ágúst 2024 Það vakti mikla athygli þegar ofbeldismaðurinn Mohamed Kourani, sem sætir átta ára fangelsi fyrir ítrekuð ofbeldisbrot, breytti um nafn og tók upp millinafnið Thor og eftirnafnið Jóhannesson. Hann getur því kynnt sig sem Mohamad Th. Jóhannesson og falið sig bak við nýtt nafn. Barnaníðingurinn Ágúst Magnússon, sem fékk fimm ára dóm vegna kynferðisbrota gegn ungum drengjum árið 2004, hefur farið...
MannlífiðEinar Steingrímsson kærði skólameistarann fyrir reykingar: „Við töluðum nú ekkert um þetta“4. ágúst 2024 Einar Steingrímsson stærðfræðingur hefur lengi haft gaman af því að rugga bátnum og hefur oft farist það vel úr hendi, eins og baksýnisspegill kvöldsins er til vitnis um. Það var um vorið 1974 að skólameistari Menntaskólans á Akureyri varð þannig á í messunni að hann lét nappa sig við að reykja vindil á heimavistinni en reykingar þar voru stranglega bannaðar....
InnlentSéra Frank Martin Halldórsson er látinn4. ágúst 2024 Sr. Frank M. Halldórsson fyrrum sóknarprestur í Nessókn er látinn. Hann lést á bráðadeild Landsspítalans í Fossvogi þann 31. júlí s.l. 90 ára að aldri. Frank fæddist í Reykjavík 23. febrúar 1934. Frank lauk stúdentsprófi frá MR árið 1954; las síðan guðfræði við Háskóla Íslands; nam einnig guðfræði í Sviss, við The Graduate School of Ecumenical Studies í Chateau de...
InnlentTelur fangaverði vera almennt örugga í störfum sínum þrátt fyrir aukið ofbeldi4. ágúst 2024 Sá sorglegi atburður átti sér að fangi réðst fyrirvaralaust á fangaverði á föstudag síðasta með þeim afleiðingum að þrír verðir slösuðust; þurftu að leita aðhlynningar á spítala. Formaður Fangavarðafélags Íslands – Heiðar Smith – gat ekki tjáð sig mikið um atvikið; segir það alvarlegt, en þetta kom fram á RÚV. Er líðan fangavarðanna nokkuð góð miðað við aðstæður: „Þegar svona...