HeimurKISS lögsóttir vegna COVID12. október 2023 Meðlimir KISS lögsóttir af fjölskyldu látins manns. Gene Simmons og Paul Stanley, meðlimir hljómsveitarinnar KISS, hafa verið lögsóttir af fjölskyldu rótara hljómsveitarinnar. Francis Stueber, rótari, smitaðist af COVID meðan hljómsveitin var á tónleikaferðalagi en lést nokkrum dögum eftir að hann smitaðist. Fjölskyldan heldur því fram að fólk sem var að vinna á tónleikaferðalaginu hafi smitast þegar Paul Stanley smitaðist og...
InnlentSara Odds: „Þessi þjóð er enn að vinna úr sameiginlegri áfallastreitu“12. október 2023 Sara Oddsdóttir markþjálfari og lögfræðingur segir að fólk upp til hópa hafi týnt sinni eigin rödd og þar með ástríðunni og lífsgleðinni. Sara, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar talar í þættinum um hvernig skilyrðingar valdi því að fólk missir sjónar á draumum sínum: „Það eru skilyrðingar úti um allt sem hafa mikil áhrif á okkur. Auðvitað þarf...
InnlentStærsta herskip heims sent til Ísrael: „Ég fordæmi hryðjuverk Hamas, en hvaða rugl er þetta?“12. október 2023 Illugi Jökulsson furðar sig á því að Bandaríkjamenn sendi stærsta herskip heims að ströndum Ísraels. Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson segist í nýlegri færslu á Facebook fordæma hryðjuverk Hamas en spyr hvers vegna Bandaríkjamenn sendi 100.000 tonna kjarnorkuknúið flugmóðurskip, stærsta herskip heims, til Ísrael. Þetta skrifaði Illugi: „Þetta er 100.000 tonna kjarnorkuknúið flugvélamóðurskip Bandaríkjanna, USS Gerald R. Ford, 333 metra langt með...
InnlentRannsókn á hatursglæp miðar hægt12. október 2023 Rannsókn vegna árásar gengur hægt. Rannsókn á líkamsárás í miðbænum í lok september gengur hægt að sögn lögreglu. Ráðist var á ráðstefnugest Samtakanna ’78 og er málið rannsakað sem mögulegur hatursglæpur. Endaði gesturinn með brotnar tennur og sagði að tveir einstaklingar hefðu verið að verki. Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við RÚV að...
InnlentHruniðSegir Margréti leikstjóra ekkert vita um málið: „Þetta er bara sóðaskapur“12. október 2023 Atli Þór Fanndal segir að leikstjóri Baráttan um Ísland viti „greinilega ekkert um þessi mál,“ en hún blæs á gagnrýni á heimildarmyndinni. Mikil óánægja gætir á samfélagsmiðlum vegna heimildarmyndarinnar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dögunum, í tilefni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagnrýnin beinist helst að efnistökum myndarinnar, að of mikil áhersla hafi...
InnlentFrétti að átta ára dóttir hans væri látin: „Þú veist hvað er gert við fólkið, það verra en dauði“12. október 2023 „Hún var annað hvort látin eða í haldi Hamas. Og ef þú veist hvað er gert við fólkið í Gaza þá er það verra en dauði,“ sagði Thomas Hand, breskur karlmaður, um átta ára dóttur sína sem var stödd á Gaza-svæðinu þegar átökin brutust út. Thomas beið frétta af dóttur sinni, Emily, í nokkra daga en segist hann hafa fundið...
MenningÞorgerður Katrín var afhjúpuð MYNDIR12. október 2023 Leynigestur var afhjúpaður í vikulegri göngu Ferðafélags Íslands á Úlfarsfell í gærkvöld. Það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sem mætti flestum göngumanna til undrunar og ánægju. Nokkrar vísbendingar höfðu verið gefnar um leynigestinn dagana fyrir gönguna og var verðlaunum heitið. Meðal vísbendingar var Breiðholt, Rás 2, hestar, Ráðherra Davíðs og Gaflarar. Árbæingurinn Eygló Stefánsdóttir var fyrst til uppgötva um...
LandiðRefir átu lifandi lamb: „Fennt fé og afvelta er líklegast til að verða rebba að bráð“12. október 2023 Tveir refir gripu tækifærið er lamb í Flatatungu á Kjálka, varð afvelta í hríðarbylnum á þriðjudag, og gæddu sér á því. Feykir segir frá því að tveir refir hafi lagst á afvelta lamb fyrir norðan í fyrradag. Þegar fjárins var vitjað á túnum í gærmorgun, höfðu refirnir rifið lambið á hol og voru að gera sér gott af því eins...
InnlentHellisheiðin lokuð – Björgunarsveitir ræstar út12. október 2023 Búið er að loka Hellisheiðinni vegna ófærðar. Búið er að loka Hellisheiði vegna veðurs og ófærðar. Vindhraði mælist í krignum 20 metra á sekúndu á svæðinu og eru aðeins vel búnir bílar sem geta keyrt Þrengslin. Tekið skal fram að vegurinn um þrengsli er á óvissustigi. Björgunarsveitir á Selfossi, Stokkseyri, Eyrarbakka, Þorlákshöfn, Hveragerði og í Reykjavík hafa verið ræstar út...
InnlentFundu óvanalegt dýr í Hlíðunum12. október 2023 Lögregla var kölluð út í gær í hverfi 109 en þar hafði ökumaður gröfu ekið á brú. Maðurinn var hvorki í belti né með réttindi til þess að stjóra slíkri vinnuvél. Í kjölfarið var maðurinn fluttur á bráðadeild til aðhlynningar en hlaut hann minniháttar áverka í slysinu. Í hverfi 105 hringdi íbúi á lögreglu og tilkynnti um dauðan mink sem...
SlúðurVítalía ekki sloppin12. október 2023 Eitt af stærri fréttamálum undanfarinna ára er meint áreiti pottverjanna frægu í garð Vítalíu Lazereva. Atvikið átti sér stað í svallveislu í sumarbústað þar sem fólkið fór saman nakið í heitan pott og Vítalía staðhæfði að hún hefði verið áreitt og brotið gegn blygðunarsemi hennar. Þrátt fyrir kæru ungu konunnar vegna atviksins var ekki talið að framkoman við Vítalíu yrði...
MannlífiðUna var rekin vegna óléttu: „Hún er kona“11. október 2023 Kona var rekin frá hársnyrtistofu fyrir að vera ólétt. „Það gekk allt vel í upphafi þar til ég sagði atvinnurekandanum frá því, að ég væri ófrísk. Þá sneri hann við blaðinu og fór að taka mig fyrir. Það tóku allir eftir því, viðskiptavinir stofunnar og starfsfólkið, hversu illa hann kom fram við mig,“ sagði Una Sveinsdóttir í viðtali við DV...
MenningMugison fór í túr með pabba:„Hann kemur út og stingur sér eins og þetta væri sundlaug – í þorskinn“11. október 2023 Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, sem allir þekkja sem Mugison, var til sjós áður en hann hellti sér út í tónlistina af alvöru í kringum aldamótin. Ferill hans til sjós hófst þegar hann flutt til Hríseyjar um það leyti sem hann hóf nám í 10. bekk grunnskóla. Hann tók þá sumar í frystihúsinu og svo einn eða tvo túra með pabba...
InnlentFélagið Ísland – Palestína sendir frá sér yfirlýsingu:„Fordæmum árásir og morð á almennum borgurum“11. október 2023 Félagið Ísland – Palestína sendi rétt í þessu frá sér harðorða yfirlýsingu vegna stríðsins á milli Hamas og Ísraels. Yfirlýsinguna má lesa hér: Yfirlýsing frá Félaginu Ísland – Palestína – Við fordæmum árásir og morð á almennum borgurum – undantekningarlaust! – Við fordæmum morðárásir Ísraelshers á innilokaða íbúa Gaza! — Við fordæmum morð og ofbeldi Ísraelshers gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum!...
HeimurLæknir á Gaza með neyðarkall til heimsbyggðarinnar – 100 nýburar munu deyja komist rafmagn ekki á11. október 2023 Læknar á Gaza-ströndinni segja 100 nýbura muni deyja fljótlega, komist rafmagn ekki á. Hassna Khalaf, yfirmaður Al-Wafa-sjúkrahússins í Gaza-borg, segir í viðtali við Al Jazeera, að spítalar á svæðinu treystu á vara aflstöðvar, sem eru ekki ætluð til að knýja áfram mörg lækningatæki. Ísraelar hafa nú tekið rafmagn af Gaza-ströndinni, sem og matar- og vatnssendingar, í kjölfar árásar Al-Quaassam herflokksins...
LandiðSigríður er ekki að senda þér tölvupóst: „Viljum við brýna fyrir fólki að svara ekki póstinum“11. október 2023 Lögreglan á Norðurland eystra sendi út tilkynningu. „Við viljum vara við svikatölvupósti sem er í gangi þar sem Sigríður Björk Guðjónsdóttir, ríkislögreglustjóri, er ranglega titluð sendandi póstsins og lítur hann út fyrir að koma frá ríkislögreglustjóra. Þessi tölvupóstur er ekki frá ríkislögreglustjóra og viljum við brýna fyrir fólki að svara ekki póstinum né opna viðhengið sem honum fylgir.Jafnframt viljum við...